Fréttablaðið - 01.10.2014, Síða 26
| 4 1. október 2014 | miðvikudagur
„Ég er sannfærður um að athugun-
in eigi eftir að leiða í ljós að fram-
kvæmdin sé hagkvæm en við erum
ekki að stefna að því að ríkið fjár-
magni og reki verksmiðjuna,“ segir
Þorsteinn Sæmundsson um þings-
ályktunartillögu sína og sex ann-
arra þingmanna Framsóknarfl okks-
ins um stofnun áburðarverksmiðju.
Í tillögunni er lagt til að ríkið fjár-
magni athugun á því hvort hag-
kvæmt sé að reisa 120 milljarða
króna verksmiðju í Helguvík eða
Þorlákshöfn sem gæti framleitt
700 þúsund tonn af áburði og sama
magn af kalsíumklóríði.
Ekki nógu hipp og töff
Tillagan var einnig lögð fram á síð-
asta þingi en náði þá ekki fram að
ganga og er nú endurfl utt óbreytt.
Hugmyndin er umdeild og tillagan
hefur meðal annars verið gagnrýnd
fyrir að útskýra ekki nógu vel hvað
fl utningsmönnum hennar gengur
nákvæmlega til. Þorsteinn segir
gagnrýnina byggjast á misskilningi.
„Það virðist einhver hafa haldið
að hér ætti að byggja 1954 módel
af Áburðarverksmiðju ríkisins og
síðan hafa menn étið þetta upp hver
eftir öðrum. Við viljum einungis
að ríkið kosti athugun á því hvort
verkefnið sé hagkvæmt. Síðan hafa
margir rekið upp stór augu og spurt
af hverju ríkið eigi að gera það. Þá
bendi ég á að þingmenn taka oft
ákvarðanir um að veita ívilnanir
í skattaumhverfi nu, setja fé ríkis-
sjóðs í dýr verkefni og breyta lögum
um málefni sem varða atvinnulífi ð.
Því er mjög eðlilegt að ríkið komi að
svona hagkvæmniathugunum. En
mörgum fi nnst þetta rosalega hall-
ærislegt og ekki veit ég af hverju,“
segir Þorsteinn.
Hann nefnir einnig að mikið
hefur verið vitnað í þann hluta til-
lögunnar þar sem segir að verk-
smiðjan geti skapað vel launuð störf
og þannig vakið „ungum Íslending-
um von í brjósti um að stjórnvöld
ætli að skapa þeim tækifæri og
atvinnuöryggi í framtíðinni“.
„Það sem við meinum með því
er að rétt tæp 40 prósent af þeim
störfum sem verða til í verksmiðju
sem þessari eru störf sem krefjast
mikillar menntunar í fögum eins
og efnafræði, verkfræði, viðskipta-
fræði og svo framvegis,“ segir Þor-
steinn og heldur áfram:
„Ég veit ekki hvað mönnum fi nnst
hipp og töff. Við erum búin að reyna
að selja hver öðrum verðbréf. Það
fór illa hjá okkur en það þótti voða-
lega flott. En mér finnst eins og
mönnum þyki ekki eins fl ott að gera
eitthvað áþreifanlegt.“
Óttast ekki samkeppni og sveiflur
Í tillögu sjömenninganna er vísað
í skýrslu OECD þar sem segir að
auka þurfi matvælaframleiðslu í
heiminum um 50 prósent á næstu
tuttugu árum. Þar er einnig full-
yrt að heimsmarkaðsverð á áburði
muni „að öllum líkindum haldast
hátt í næstu framtíð vegna aukinnar
ræktunar matvæla sem nauðsyn er
á til að brauðfæða síaukinn mann-
fjölda“. Verð á áburði sveifl ast hins
vegar, og hefur lækkað talsvert frá
árinu 2008 þegar það náði hámarki,
en Þorsteinn segist ekki óttast verð-
sveifl ur.
„Ég get ekki séð niðursveifl una.
Það er verið að nota tvö prósent
meira af áburði á hverju ári en
árið áður og það mun halda áfram.
Það sem gæti þó verið ógn í þessu
tengist aukinni notkun á jarðgasi í
heiminum sem notað er til að kynda
svona verksmiðjur. Gasið er ódýr-
ara en rafmagn en ég hef í sjálfu sér
engar áhyggjur af því. Þó menn séu
nú með tímabundið hagstætt verð á
gasi eigum við ekki að láta það aftra
okkur í að nota okkar ódýru orku
hér á Íslandi.“
Þorsteinn segir að hann óttist
ekki heldur samkeppni frá stórum
erlendum áburðarframleiðendum
sem margir hverjir framleiða millj-
ónir tonna á hverju ári. Hann segir
að erfi tt geti reynst að markaðssetja
framleiðsluna en sér í þeim efnum
fyrir sér að hægt verði að fara í
samstarf við erlenda framleiðend-
ur. Hann nefnir meðal annars fyrir-
tækið IFFCO CANADA sem undir-
býr nú byggingu áburðarverksmiðju
í Québec-fylki.
„Mér skilst að ekki sé loku fyrir
það skotið að við getum gengið í
samstarf við eitthvert af þessum
stórfyrirtækjum. Svo er IFFCO
einnig samvinnufélag bænda, eins
og okkur vantar svo mikið hér á
landi, og það talar einnig um að
skapa vel launuð gæðastörf.“
Fór sjálfur til Fertils ehf.
Aðspurður segir Þorsteinn að hann
hafi lengi gengið með hugmynd um
að fá það kannað hvort hér geti á ný
risið áburðarverksmiðja.
„Ég held að kveikjan hafi verið
þegar gamla Áburðarverksmiðja
ríkisins var seld til Afríku. Skömmu
seinna hækkaði áburðarverð upp úr
öllu valdi og við fórum að eyða mikl-
um gjaldeyri í þetta. Það var kveikj-
an að þessu hjá mér og ég hef talað
um þetta á fundum í Framsóknar-
fl okknum í fi mm til tíu ár.“
Í tillögunni er sagt frá hópi
áhugamanna sem hefur unnið frum-
áætlun um byggingu áburðarverk-
smiðju hér á landi. Nokkrum dögum
eftir að tillagan var lögð aftur fram
var greint frá því á Vísir.is að sá
hópur er félagið Fertil ehf. Það
hefur stefnt að byggingu áburðar-
verksmiðju um nokkurt skeið. Í des-
ember 2009 greindi Morgunblaðið
frá því að áætlanir forsvarsmanna
Fertils um framleiðslu á 700 þúsund
tonnum af áburði á ári, og 780 þús-
und tonnum af kalíumnítrati, væru
langt á veg komnar.
„Ég frétti af þessum hópi um það
leyti sem ég samdi þessa tillögu. Þá
hafði ég samband við þessa ágætu
menn og komst að því hvað þeir eru
að hugsa og vísaði til þeirra áforma
í tillögunni. Það verður því hægt að
ganga í smiðju þessa áhugahóps við
gerð hagkvæmniathugunarinnar og
ríkið þyrfti því ekki að byrja með
autt blað,“ segir Þorsteinn. Hann
segist ekki vita til þess að forsvars-
menn Fertils tengist Framsóknar-
fl okknum á einn eða annan hátt.
„Ég hef ekki spurt þessa ágætu
menn hvaða stjórnmálaskoðan-
ir þeir hafa. En það er til ofsa-
lega mikið af framsóknarmönn-
um á Íslandi og ég þekki þá ekki
alla,“ segir Þorsteinn og bætir við
að áætlanir félagsins miðist við að
meirihluti fjárfestingarinnar verði
erlendur.
Leitaði ekki út fyrir þingflokkinn
Þorsteinn er sannfærður um að
þingsályktunartillagan fái stuðn-
ing meirihluta þingmanna en tekur
fram að hann hafi ekki leitað eftir
stuðningi úr öðrum fl okkum áður
en hann lagði tillöguna aftur fram.
„Þar sem ég hef fengið tækifæri
til að kynna þetta mál fyrir alvöru
hefur mér fundist menn taka þessu
vel. Og ég hef þá trú á þingmönnum
að þeir séu upp til hópa það fram-
sýnir að þeir sjái tækifærin sem
liggja í þessu. Við þurfum jú líka
fjölbreytni hér og ég held að það
séu allir sammála um að síðasta
álverið sé byggt eða um það bil. En
eins og ég segi þá er fyrsta skrefi ð
að fl ytja þessa tillögu og koma henni
til atvinnuveganefndar og ég efast
ekki um að að slíkri athugun lokinni
verði menn sannfærðir um að þetta
sé vel gert.“
Fullviss um að tillagan
verði samþykkt á þingi
Þorsteinn Sæmundsson alþingismaður segist sannfærður um að bygg-
ing 120 milljarða áburðarverksmiðju sé hagkvæm framkvæmd. Hann
segir ekki stefnt að því að ríkið fjármagni og reki verksmiðjuna.
REYNIR AFTUR Þorsteinn
Sæmundsson er fyrsti
flutningsmaður þings-
ályktunartillögunnar um
stofnun áburðarverk-
smiðju en sama tillaga
var lögð fram á síðasta
þingi.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
EINSTÖK
TILBOÐ!
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
TILBOÐ
GERÐU FRÁBÆR KAUP
NISSAN PATHFINDER SE
Nýskr. 06/08, ekinn 94 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 3.990.000
TILBOÐSVERÐ!
2.990 þús.
KIA CARENS
Nýskr. 05/08, ekinn 142 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 1.990.000
TILBOÐ kr. 1.490 þús.
HYUNDAI IX35
Nýskr. 06/11, ekinn 113 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 3.390.000
TILBOÐ kr. 2.890 þús.
NISSAN QASHQAI SE
Nýskr. 04/11, ekinn 120 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 3.420.000
TILBOÐ kr. 2.990 þús.
TOYOTA YARIS TERRA
Nýskr. 03/13, ekinn 53 þús km.
bensín, beinskiptur.
Verð áður kr. 2.350.000
TILBOÐ kr. 1.880 þús.
RANGE ROVER SPORT
Nýskr. 12/07, ekinn 86 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 7.980.000
TILBOÐ kr. 6.290 þús.
TOYOTA LAND CRUISER 150
Nýskr. 10/11, ekinn 105 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð áður kr. 7.690.000
TILBOÐ kr. 6.790 þús.
Rnr. 281887
Rnr. 102116
Rnr. 281899
Rnr. 131062
Rnr. 120360
Rnr. 151317
Rnr. 281689
GÖNGUM FRÁ
FJÁRMÖGNUN Á
STAÐNUM
WWW.BÍLALAND.IS
VIÐTAL
Haraldur Guðmundsson | haraldur@frettabladid.is