Fréttablaðið - 01.10.2014, Qupperneq 50
USD 121,24
GBP 196,27
DKK 20,52
EUR 152,7
NOK 18,8
SEK 16,69
CHF 126,57
JPY 1,10
Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
Gengi gjaldmiðla
Viðskiptavefur Vísis
@VisirVidskipti
STJÓRNAR -
MAÐURINN
Forvitnilegt hefur verið að fylgjast
með útboðsferli Isavia í tengslum við
verslunarrými á Keflavíkurflugvelli.
Kaffitár er eitt þeirra fyrirtækja sem hafa
verið með aðstöðu í Leifsstöð, og raunar
er það fastur liður hjá stjórnarmanninum
að stoppa í einn tvöfaldan áður en hann
fer í morgunflug.
STJÓRNARMAÐURINN las því af athygli
grein forstjóra Kaffitárs í Markaðnum í
síðustu viku, þar sem hún gagnrýndi fyrir-
komulag við útboðsferlið, og að til standi
að gera samning við „alþjóðlegt stórfyrir-
tæki sem rekur um þrjú þúsund verslanir
og sérhæfir sig í rekstri í flugstöðvum”.
Í tengslum við útboðsferlið hefur
jafnframt komið fram að danska kaffi-
húsakeðjan Joe & the Juice sé eitt þeirra
fyrirtækja sem fái pláss í flugstöðinni, og
þá væntanlega sem undirleigutaki hjá
fyrrnefndu alþjóðlegu stórfyrirtæki. Fréttir
hafa verið sagðar af því að þetta fari
fyrir brjóstið á þeim sem fyrir eru á fleti,
enda þyki skorta á íslenskan varning og
áherslur hjá Joe & the Juice.
FORSTJÓRI KAFFITÁRS og kollegar
hennar spila þarna út þekktu spili, sem
sumir myndu kalla útlendingsspilið, og
gefa í skyn að Isavia sé að bregðast þjóð
sinni. Rétt hefði verið að úthluta leigu-
plássum í fríhöfninni á þjóðernislegum
forsendum.
Stjórnarmaðurinn er sem fyrr segir
aðdáandi Kaffitárs, enda fyrirtækið eitt
þeirra sem þakka má þá framúrskarandi
kaffimenningu sem nú þrífst á Íslandi.
Hann er þó ósammála því að sérstök
þjóðernisrök eigi að ráða för þegar versl-
unarplássi er úthlutað.
ÞESS UTAN er hæpið að segja Kaffitár að
einhverju leyti „íslenskara“ en til dæmis
Joe & the Juice. Kaffitár er tiltölulega
hefðbundin kaffihúsakeðja að erlendri
fyrirmynd – stjórnarmaðurinn veit a.m.k.
ekki til þess að hafin sé kaffibaunarækt í
ylhúsum í Hveragerði. Með sömu rökum
er hæpið að kalla Joe & the Juice „danska
kaffihúsakeðju”, enda íslensk útgáfa
þess ágæta staðar rekin af hérlendu
rekstrarfélagi, með íslenska kennitölu og
höfuðstöðvar, þótt félagið borgi vafalaust
erlendu eignarhaldsfélagi mánaðarlegt
leyfisgjald.
Við skulum því anda rólega, og fagna
því að „alþjóðlegt stórfyrirtæki” sækist
eftir því að stunda viðskipti hér á landi.
Að gleypa fréttatilkynningu
STJÓRNARMANNINUM hefur lengi þótt
vanta ákafann í íslenska viðskiptablaða-
menn, enda virðist nokkuð landlægt í
þeirri ágætu stétt að sjá ekki skóginn fyrir
trjánum.
Því kom honum ekki á óvart að sjá
einfaldar fyrirsagnir á borð við „MP banki
selur MP Pension Fund Baltic”, þegar
greint var frá sölu MP banka á litháísku
dótturfélagi sínu. Þarna vantaði að menn
spyrðu sig hvers vegna bankinn losaði
þessa erlendu eign sína, sem á tíma
gjaldeyrishafta hlýtur að teljast nokkuð
eftirsóknarverð.
Kannski hefði eðlilegri fyrirsögn verið
eitthvað á þessa leið:
„Vantar MP banka reiðufé?“
Vondir útlendingar
@stjornarmadurinn Sigldur
innherji með puttann á púlsinum.
Stjórnarmaðurinn liggur ekki á skoðunum
sínum um menn og viðskiptatengd málefni.
F
A
S
TU
S
_H
_3
7.
09
.1
4
frábær leið til þrekþjálfunar heima
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
Hammer Cardio þrekhjól
Veit á vandaða lausn
Þrekhjól Cardio XTR • verð kr. 95.000,- m.vsk.
Þrekhjól Cardio XTR Þrekhjól Cardio X1
Þrekhjól Cardio X1 • verð kr. 75.000,- m.vsk.
• Stærð 86x48x135 cm
• Þyngd 22 kg
• Hámarksþyngd notanda 120 kg
• Beltadrifið með 5 kg kasthjóli
• 11 þjálfunarprógröm, þar af 4 hjartaþjálfunarprógröm
• Skjár sýnir: vegalengd, tíma, hraða, snúninga/mín,
hitaeiningar og púls
• Stærð 95x55x129 cm
• Þyngd 32 kg
• Hámarksþyngd notanda 130 kg
• Beltadrifið með 8 kg kasthjóli
• Þjálfunarálag 35-260 Wött
• Hentar vel til hjartaþjálfunar og hægt að stilla inn efri
mörk hjartsláttar
• Er með púlsmæli í handföngum
• Skjár sýnir: vegalengd, tíma, hraða, snúninga/mín,
hitaeiningar og púls
Nýttu tímann þinn vel og stundaðu þrekþjálfun heima þegar tækifæri gefst með þrekhjólunum
frá Hammer. Margar góðar stillingar gera þér kleift að laga æfinguna að þínum þörfum.
Frábær leið til að koma sér í betra form með lítilli fyrirhöfn - og veðrið úti skiptir ekki máli.
Hjólin eru auðveld í uppsetningu, fyrirferðarlítil og með notendavænar stillingar.
33.400 TONNA AFLI
Aflaaukning hjá HB Granda
Síldar- og makrílafli skipa HB Granda nú í
sumar nam alls 33.400 tonnum. Það mun vera
lítilsháttar aukning milli ára því í fyrrasumar var
sambærilegur afli um 32.400 tonn. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá sjávarútvegsfyrirtækinu.
Skip og togarar HB Granda veiddu samtals
10.389 tonn af síld í sumar samanborið við
13.616 tonn árið 2013. Makrílveiðar skiluðu
22.918 tonnum í sumar en 18.619 tonnum á
sama tímabili í fyrra.
29.9.2014 „Á dögunum kom fram nýtt þing-
mál um að framlengja auðlegðarskatt til að
fjármagna nýjan Landspítala. Flutningsmenn
eru Steingrímur J. Sigfússon, Steinunn Þóra
Árnadóttir og ég sjálf. Gert er ráð fyrir
að byggingin taki fimm ár með þessari
fjármögnun. Peningarnir eru til og það
er sanngjarnt að sækja þá til að borga
spítalann. Það má ekki bíða lengur.“
Svandís Svavarsdóttir alþingismaður
FTSE 100
6,622.72
- 23.88
(0.36%)
Vöruskiptin hagstæð í ágúst
Í ágústmánuði voru fluttar út vörur fyrir 47,2 milljarða króna og inn
fyrir 42,8 milljarða. Vöruskiptin í ágúst, reiknuð á fob-verðmæti, voru
því hagstæð um tæpa 4,5 milljarða króna. Frá þessu er greint í frétt á
vef Hagstofu Íslands. Þar segir að vöruskiptin hafi verið hagstæð um
6,3 milljarða í ágúst 2013 á gengi hvors árs. „Fyrstu átta mánuði ársins
2014 voru fluttar út vörur fyrir 363,7 milljarða króna en inn fyrir 375,4
milljarða króna fob. Vöruskiptin við útlönd voru því óhagstæð um 11,7
milljarða króna, reiknað á fob-verðmæti, en á sama tíma árið áður
voru þau hagstæð um 23,5 milljarða á gengi hvors árs,“ segir í frétt
Hagstofunnar.
11,7 MILLJARÐA HALLI