Fréttablaðið - 01.10.2014, Blaðsíða 60
1. október 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 32
Meistaramánuður hefst í dag en í
honum skora þátttakendur sjálfa
sig á hólm og setja sér persónuleg
markmið. Markmiðin eru af ýmsu
tagi; allt frá því að huga betur
að heilsunni og hreyfa sig meira
yfir í að rækta betur vini og fjöl-
skyldu, fara fyrr á fætur eða lesa
fleiri bækur. Rannsóknir sýna að
það taki 30 daga að koma sér upp
nýjum venjum. Fjölmargir hafa
skráð sig til leiks og Fréttablaðið
fékk nokkra þátttakendur í mán-
uðinum til þess að segja frá sínum
markmiðum.
Fjölbreytt markmið
í Meistaramánuði
Október er mánuður meistaranna. Markmiðin þátttakenda eru af öllum toga.
➜ Stunda jóga eins
og vindurinn
„Ég ætla að fara á fætur klukkan sjö
og eiga alls konar huggulegar morgun-
stundir. Svo ætla ég að prófa vegan-
mataræðið sem verður mesta áskorunin
þar sem Steinþór ætlar að taka paleo
og verður skellandi einhverjum gras-
fóðruðum steikum á pönnuna daginn
út og inn,“ segir hún og vísar í kærasta
sinn, Steinþór Helga Arnsteinsson, sem
einnig tekur þátt. „Svo ætla ég að vera
algjör Jógi björn og halda áfram að
stunda jóga eins og vindurinn.“
BERGLIND PÉTURSDÓTTIR
DANSARI
➜ Drekka meira vatn
og rækta vináttuna
„Ég ætla að drekka meira vatn á
hverjum degi, reyna að ná tveimur
lítrum á dag. Ég ætla líka að fara á
þriggja daga djúskúr og reyna að
djúsa einu sinni í viku í framhaldi af
því,“ Hún ætlar líka að vera dugleg að
rækta samskipti við fjölskyldu og vini.
„Ég ætla að bjóða vinum og fjölskyldu
oftar heim í bröns eða kvöldmat .“
ÁSA OTTESEN,
MARKAÐSFULLTRÚI HJÁ TE OG KAFFI
➜ Sleppa sykri og áfengi
„Ég ætla að rækta vini mína. Síðan
ætla ég að lesa allavega eina bók og
taka tölvuna mína aldrei með upp í
rúm.
Ég ætla líka að sleppa sykri, hreyfa
mig allavega í 30 mínútur á dag og
sleppa öllu áfengi.“
ANÍTA ELDJÁRN LJÓSMYNDARI
➜ Elda nýja rétti
og gefa blóð
„Ég ætla að einbeita mér að því að
borða hollt og á réttum tíma. Svo
hef ég sett mér það takmark að fara
þrisvar sinnum í ræktina í viku. Ég
ætla að reyna að lesa þrjár bækur og
hætta að skoða símann eftir að ég
er komin inn í svefnherbergi. Einnig
ætla ég að taka mig á í eldhúsinu og
elda einn rétt í viku sem ég hef ekki
eldað áður. Svo ætla ég að gefa blóð
og muna að taka nótu fyrir öllu sem
ég kaupi.“
HULDA HALLDÓRA TRYGGVADÓTTIR
STÍLISTI
➜ Fara snemma að sofa
„Ég ætla að reyna að vera meiri svona
„hipster“, meira svona „analog“ í
október. Út með skyndibitann og elda
heima. Ég ætla að halda tölvu/snjall-
símanotkun í lágmarki (kannski lesa
bók!) og fara snemma að sofa. Svo með
áfengið, þá verður það í hæsta lagi einn
og einn hipsterabjór frá Borg.“
JÓN ÞÓR FINNBOGASON TROMMARI
Tískuvikunni
í París lýkur
í dag. Þó að
fötin á pöll-
unum séu
aðalatriðið
er götutísk-
an oft ekkert
síðri.
Köfl óttar fl íkur voru áberandi á tískuvikunni í París um helgina
➜ Ólympískar lyftingar
„Markmiðin fyrir Meistaramánuð í ár
eru þau að ég ætla á námskeið í ólymp-
ískum lyftingum. Takmark mitt síðustu
þrjú ár er að geta troðið í körfu. Ég hef
hins vegar aldrei verið nær takmarki
mínu og trúi að ólympísku lyftingarnar
séu það sem þarf til að skjóta mér upp
í hæðir sem ég ætti ekki að ná sökum
genetískrar ólukku. Ég ætla líka að elda
meira.
ATLI FANNAR BJARKASON,
RITSTJÓRI NÚTÍMANS
FALLEGUR
KÖFLÓTT-
UR KJÓLL
Í ANDA
MCQUEEN
PEYSAN
OG
PILSIÐ
ERU TÖFF
SAMAN
FLOTT Í
KÖFLUM
VIÐ
KÖFLÓTT
VÍNRAUÐ-
UR OG
DÖKK-
BLÁR ERU
ALLTAF
GÓÐ
BLANDA
BER-
LEGGJUÐ
VIÐ
KÖFL-
ÓTTAN
JAKKA
LÍFIÐ