Fréttablaðið - 01.10.2014, Page 66
1. október 2014 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 38
1
1
3
3
6
9
4
4
8
7
2
2
10
5
LEIKMAÐUR MÖRK LIÐ KORT
Viðar Örn Kjartansson 24 Valerenga 1
Björn Daníel Sverrisson 6 Viking 2
Jón Daði Böðvarsson 5 Viking 2
Steinþór Freyr Þorsteinsson 4 Viking 2
Pálmi Rafn Pálmason 4 Lilleström 3
Matthías Vilhjálmsson 4 Start 4
Guðmundur Þórarinsson 3 Sarpsborg 5
Indriði Sigurðsson 2 Viking 2
Björn Bergmann Sigurðarson 2 Molde 6
Sverrir Ingi Ingason 2 Viking 2
Hjörtur Logi Valgarðsson 1 Sogndal 7
Guðmundur Kristjánsson 1 Start 4
Birkir Már Sævarsson 1 Brann 8
Hólmar Örn Eyjólfsson 1 Rosenborg 9
Eiður Aron Sigurbjörnsson 1 Sandnes Ulf 10
LEIKMAÐUR MÖRK LIÐ KORT
Alfreð Finnbogason 29 Heerenveen 1
Aron Jóhannsson 17 AZ Alkmaar 2
Kolbeinn Sigþórsson 10 Ajax 3
Jóhann Berg Guðmundsson 3 AZ Alkmaar 2
Guðlaugur Victor Pálsson 2 NEC Nijmegen 4
MÖRK LAND ÁR
62 Noregur 2014
61 Holland 2013-14
42 Noregur 1998
41 Noregur 2002
41 Noregur 2008
38 Holland 2012-13
37 Noregur 2007
36 Noregur 2000
34 Noregur 2001
34 Noregur 2013
33 Svíþjóð 2012
32 Noregur 2011
31 Danmörk 2012-13
30 Belgía 2002-03
FLEST ÍSLENSK MÖRK Á EINU
TÍMABILI Í ERLENDRI DEILD
24 MÖRK
Viðar Örn
Kjartansson
Valerenga
61 MARK
ÍSLENSKA
MARKAMETIÐ
ER FALLIÐ
Íslenskir knattspyrnumenn eru búnir að skora
62 mörk í norsku úrvalsdeildinni í ár
EIN AF ÍSLENSKU HETJUNUM
Jón Daði Böðvarsson er búinn
að skora 5 mörk fyrir Viking.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Fyrsta mark Hólmars
Arnar Eyjólfssonar fyrir Rosen-
borg um síðustu helgi var ekki
aðeins tímamótamark fyrir hann
sjálfan heldur bætti hann með því
íslenska markametið í erlendri deild.
Íslensku mörkin eru nú orðin 62
talsins í Tippeligaen 2014 en Hólmar
Örn varð fimmtándi íslenski knatt-
spyrnumaðurinn sem skoraði í
norsku deildinni á þessu tímabili.
Gamla metið var varla orðið kalt
því íslenskir leikmenn skoruðu 61
mark í hollensku úrvalsdeildinni á
síðustu leiktíð. Þetta met hefur því
fallið tvisvar sinnum á sjö mánuðum
en hafði áður lifað í tæp sextán ár.
Afrek íslenskra leikmanna í Nor-
egi eru afar áberandi á topplistanum
eins og sjá má að 8 af 10 marka-
hæstu tímabilum íslenskra leik-
manna í erlendri deild voru tímabil
í norsku úrvalsdeildinni. Íslending-
ar hafa verið í algjörum sérflokki
af erlendum leikmönnum í norsku
deildinni í ár en Ísland er með tvö-
falt fleiri mörk en Danmörk sem
er í 2. sæti í markakeppni erlendra
leikmanna.
Alfreð Finnbogason fór
fyrir íslenska metárinu í
fyrravetur en hann skoraði
þá 29 mörk fyrir Heeren-
veen. Það er það mesta
sem íslenskur leikmaður
hefur skorað á tímabili en
Viðar Örn Kjartansson
fær fimm leiki til viðbótar
til að verða sá fyrsti í 30
mörkin.
Íslenska markametið
féll tvisvar á árinu 2014
en eftir nokkur íslensk
mörk til viðbótar í
norsku deildinni er
ekki ólíklegt að það
met haldist óhaggað
í mörg ár. Uppgang-
ur íslenskra fótboltamanna er hins
vegar það kraftmikill að hver veit
nema metið verði aftur í hættu á
næstu árum. ooj@frettabladid.is
29 MÖRK
Alfreð
Finnbogason
Heerenveen
62 MÖRK NOREGUR 2014
HOLLAND
2013-14
FYRIR HEIMILIN Í LANDINU
Vegna niðurfellingar vörugjalds
hafa öll helstu heimilistækin lækkað
í verði um 17% og sjónvörp,
hljómtæki og annað um 20%.
Við höfum náð samningum við okkar helstu birgja, sem gerir
okkur mögulegt að afnema þessi gjöld nú þegar.
Viðskiptavinir okkar þurfa því ekki að bíða eftir nýju ári til að
gera hagstæð innkaup fyrir heimilið, heldur geta þeir nú komið í
verslanir ORMSSON um allt land og fengið umtalsvert meira
fyrir peninginn en áður.
EKKI EFTIR NEINU AÐ BÍÐA
LÁGMÚLA 8 · SÍMI 530 2800
ORMSSON.IS
SÍÐUMÚLA 9 · SÍMI 530 2900
SAMSUNGSETRID.IS
Nú er lag að njóta lífsins!