Fréttablaðið - 21.02.2015, Síða 4
21. febrúar 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
16.02.2015 ➜ 22.02.2015
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Stein-
grímsson hlynur@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402:
Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson
jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Framleiðsla á laxi í sjókvíum í Eyjafirði,
Seyðisfirði og Mjóafirði
Drög að tillögu að matsáætlun
Norðanlax ehf kynnir drög að tillögu að matsáætlunum vegna áforma
um laxeldi í sjókvíum í Eyjafirði, Seyðisfirði og Mjóafirði. Kynning fer
fram samkvæmt reglugerð nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum.
Um er að ræða allt að 8.000 tonna framleiðslu á einu ári í hverjum firði,
þó ekki meira en 12.500 tonn yfir þriggja ára tímabil. Almenningi er
gefinn kostur á að kynna sér drögin á vefsíðunni www.fjardalax.is og
gera athugasemdir við þau til og með 8. mars. 2015.
Athugasemdir sendist á netfangið jon@fjardalax.is
eða í pósti á heimilisfang:
Norðanlax ehf.
Strandgötu 43
460 Tálknafirði
2 MIKLAR
SPRUNGUR
hafa komið í ljós í
ísgöngunum sem
verið er að klára í
Langjökli.
110.000 TONN
af loðnu hafa veiðst af 390.000 tonna kvóta
íslenskra skipa.
4.644 FERÐUM
í kringum jörðina
jafngilda flugferðir
í íslenska flug-
stjórnarsvæðinu í
fyrra.
9 ÁR
geta Kaupþingsmenn
setið lengst í fangelsi
vegna þeirra mála sem
þeir þurfa að svara
fyrir.
158
BORHOLUR
á jarðhitasvæðum á
Íslandi eru nýtanlegar
í dag.
844 TILKYNNINGAR
um ofbeldis-
brot 14 ára og
yngri komu á
borð lögreglu í
fyrra.
2,7 MILLJARÐAR
renna af kredit-
kortum farþega á
skemmtiferðaskipum
við dvöl þeirra hér-
lendis.
124.500
HALLGRÍMSKIRKJUR
þyrfti til að hýsa Nornahraun
sem nálgast 2 rúmkílómetra
að stærð.
Elísabet Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
VERSNAR Í KVÖLD Vaxandi suðaustan- eða austanátt síðdegis við suðurströndina
og þykknar upp með snjókomu syðra seint í kvöld. Veðrið versnar síðan heilmikið í
nótt og á morgun verður víða hvassviðri á landinu með snjókomu sunnan og vestan til.
-8°
6
m/s
-6°
8
m/s
-5°
7
m/s
0°
9
m/s
13-25 m/s.
12-20 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
2°
24°
2°
6°
17°
3°
6°
4°
4°
19°
7°
17°
17°
14°
7°
9°
3°
6°
-5°
4
m/s
-4°
10
m/s
-8°
5
m/s
-5°
7
m/s
-9°
2
m/s
-7°
5
m/s
-15°
3
m/s
-1°
-2°
-4°
-5°
-1°
-1°
-4°
-3°
-5°
-4°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
MÁNUDAGUR
Á MORGUN
EFNAHAGSMÁL Eftir kjarasamn-
inga á almennum markaði á síðasta
ári hækkuðu laun meira en fyrir
samningagerðina var talið geta
samrýmst markmiðum um verð-
bólgustig í landinu. Þórarinn G.
Pétursson, aðal-
hagfræðingur
Seðlabankans,
segir þetta þó
eiga sér sínar
skýringar og
ekki til marks
um að hrópað
hafi verið „úlfur,
úlfur“ í aðdrag-
anda samninga.
Ásdís Kristjánsdóttir, for-
stöðumaður efnahagssviðs Sam-
taka atvinnulífsins, benti nýver-
ið á í viðtali við Bítið á Bylgjunni
að fyrir ári hefði verið samið um
2,8 prósenta hækkun launa sam-
kvæmt mati Seðlabankans um
hvaða svigrúm væri til staðar. Þá
var mat bankans að hækkun launa-
vísitölu umfram fjögur prósent
myndi ógna verðbólgumarkmiði.
Vísitalan hækkaði hins vegar um
sex prósent og verðbólga fór í 0,8
prósent.
Þórarinn segir Seðlabankann
bara benda á að til lengdar gangi
ekki upp að hækka laun umfram
framleiðslugetu í hagkerfinu.
Hækki laun ár eftir ár um sex
prósent meðan framleiðni aukist
um tvö, þannig að launakostnað-
ur fyrirtækja aukist stöðugt, þá
verði verðbólgu ekki haldið í 2,5
prósentum.
„En það breytir því ekki að
einstaka ár getur þetta auðveld-
lega gerst,“ segir Þórarinn. Eftir
samningana í fyrra hafi laun
hækkað umfram markmið og búið
til verðbólguþrýsting, en aðrir
þættir hafi á sama tíma komið á
móti. Til dæmis hafi gengi krón-
unnar hækkað, alþjóðleg verð-
bólga verið ótrúlega lítil, slaki
hafi verið í þjóðarbúinu og svo
hafi olíuverð hríðfallið í lok árs.
„Þannig að í þessu eru í sjálfu sér
engar mótsagnir og mér finnst
ekki að verið sé að hrópa úlfur,
úlfur.“
Þórarinn bendir á að nýjasta
spá Seðlabankans geri ráð fyrir
launahækkunum upp á fimm pró-
sent á sama tíma og framleiðni
aukist bara um eitt. „Þannig að
spáin gerir ráð fyrir meiri hækk-
unum en samrýmast verðbólgu-
markmiði til lengdar, en samt fari
verðbólga bara upp í markmið.“
Þetta sé vegna þess að verðbólga
sé þegar mjög lítil og þegar áhrif
af olíuverði, gengi og öðrum þátt-
um fjari út þá taki launin við og
togi verðbólguna upp í markmið.
Þá segir Þórarinn ekki mega
gleymast að ein birtingarmynd við-
varandi launaþrýstings sé hærra
vaxtastig. „Hægt er vera með mikl-
ar launahækkanir án þess að verð-
bólga hreyfist, en þá af því að þetta
slær út í vaxtastiginu. Birtingar-
mynd launahækkana verður þá
ekki endilega í verðbólgu, heldur
sést hún í vöxtunum í samanburði
við önnur lönd.“
olikr@frettabladid.is
Útlend þróun kom á
móti hækkun launa
Í fyrra hækkuðu laun meira en fyrir samninga var talið samrýmast verðbólgumark-
miði. Samt dró úr verðbólgu. Ekki til marks um að kallað sé „úlfur, úlfur“ fyrir
kjarasamninga, segir aðalhagfræðingur Seðlabankans.
LÆTUR DÆLUNA GANGA Sögulegt hrun olíuverðs á erlendum mörkuðum er einn
þeirra þátta sem stuðlað hafa að lægri verðbólgu hér á landi, þrátt fyrir að laun hafi
í fyrra hækkað meira en Seðlabankinn taldi æskilegt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÞÓRARINN G.
PÉTURSSON
ORKUMÁL Orkustofnun lagði í gær
inn 33 virkjunarkosti til verk-
efnastjórnar 3. áfanga ramma-
áætlunar. Eru því samtals gögn
vegna 81 virkjunarkosts á borði
verkefnastjórnarinnar. Þar af eru
47 virkjunarkostir í vatnsafli og
33 í jarðvarma.
Stærsta vafaatriðið varðar
vindorku. Í bréfi Orkustofnunar
til umhverfis- og auðlindaráðu-
neytisins segir að lög nái ekki
með ótvíræðum hætti til vind-
orku almennt eða sjávarfalla-
orku. Því voru vindorku kostir
sem Orkustofnun hafði sjálf
byrjað undirbúning á ekki sendir
verkefnastjórninni nú. - shá
Tillögur frá Orkustofnun:
Áttatíu kostir
til umfjöllunar
VIÐ BÚRFELL Landsvirkjun hefur gert
ráð fyrir mati vindorkukosta.
AUSTURLAND Hreindýramessa
verður haldin í Sláturhúsinu,
menningarmiðstöð á Egilsstöð-
um um helgina. Messunni er
ætlað að vekja athygli á hrein-
dýraiðnaði Austurlands.
Fjölmargir viðburðir eru
á dagskrá, þar á meðal kvik-
myndasýningar og kynningar á
vörum sem tengjast hreindýra-
veiðum.
Um tvöleytið í dag verður
síðan dráttur um hreindýra-
veiðileyfi sýndur á breiðtjaldi í
Frystiklefanum. Heimilt er að
veiða 1.412 dýr í ár. Aldrei hefur
meiri kvóti verið leyfður. - ie
Draga út hreindýraveiðileyfi:
Skotveiðilottó
í Sláturhúsinu
HREINDÝRAMESSA Viðburðurinn er
haldinn í fyrsta sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HEILBRIGÐISMÁL Í fréttum Stöðv-
ar 2 í gærkvöldi var rætt við
móður sem kýs að bólusetja ekki
börn sín. Þórólfur Guðnason,
yfir læknir hjá sóttvarnasviði
Landlæknis, segir það sorglega
niðurstöðu.
„Mér finnst það í raun og veru
sorglegt að fólk skuli komast
að þessari niðurstöðu. Það er
margsannað að afleiðingarnar
af sjúkdómunum sem er verið að
bólusetja gegn eru miklu, miklu
alvarlegri heldur en nokkurn tím-
ann af bólusetningunni,“ segir
Þórólfur Guðnason. - kbg
Sorgleg niðurstaða:
Móðir kýs að
bólusetja ekki
KVIKMYNDIR Sigurjón Sighvats-
son kvikmyndaframleiðandi hefur
keypt kvikmyndaréttinn að bók-
inni Útkall í Atlantshafi á jólanótt.
Þar er greint frá hinum hrikalegu
örlögum flutningaskipsins Suður-
land og áhöfn þess þar sem sex
menn fórust.
Myndin mun byggja á bók Óttars
Sveinssonar sem út kom árið 1999.
Fimm skipbrotsmenn af Suður-
landi lýsa þar hrikalegri baráttu í
gúmmíbát í meira en hálfan sólar-
hring eftir að skip þeirra sökk á
milli Íslands og Noregs á jólanótt
árið 1986. - kbg
Suðurlandið á hvíta tjaldið:
Hrikalega örlög
í nýja stórmynd
2
0
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:4
6
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
E
0
-B
1
1
0
1
3
E
0
-A
F
D
4
1
3
E
0
-A
E
9
8
1
3
E
0
-A
D
5
C
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K