Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.02.2015, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 21.02.2015, Qupperneq 6
21. febrúar 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6 SAMGÖNGUR Strætó bs. sendi frá sér yfirlýsingu í gær í kjöl- far fréttaflutnings af erindi Guð- bjargar Kristínar Ludvígsdóttur þar sem hún deildi hart á öryggi fatlaðs fólks í umferðinni. Guð- björg sagði í erindi sínu að öryggi fatlaðra í hjólastól væri langt frá því að vera tryggt í bílum sem sinna slíkri akstursþjónustu. Í yfirlýsingu Strætó kemur fram að ásakanirnar sem þar hafi komið fram eigi ekki við rök að styðj- ast. Þegar farið hafi verið í end- urskoðun á ferðaþjónustu fatlaðra hafi ein helsta forsendan verið sú að auka öryggi og gæði þjónust- unnar. Jóhannes Rúnarsson, fram- kvæmdastjóri Strætó, segir nýja bíla akstursþjónustunnar upp- fylla öll öryggisskilyrði. „Það er smá misskilningur í þessu ferli öllu saman, við erum með samn- inga um tvær gerðir af bílum, svo- kallaður a- og b-hluti. Þar er gerð krafa um það að bílarnir séu með bakstuðningi og öryggisbelti fyrir hjólastóla og festingar. Hins vegar er varaforði í kerfinu sem kallast varabílar, leigubílar. Þar eru bílar sem gætu ekki uppfyllt þessi skil- yrði eins og staðan er í dag, þó að við séum að stefna þangað að það sé krafa, þá er öryggi þeirra farþega ekki eins vel tryggt,“ segir hann. Jóhannes segir að leigubílarnir hafi sinnt þessum akstri undan- farin 25 ár án athugasemda. „En við erum að stefna að því að allir bílar sem eru að keyra undir okkar merkjum uppfylli þessi skilyrði.“ Guðbjörg sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að það væri staðreynd að slys yrðu í bílunum vegna þess en erfitt væri að vita tíðni þeirra. Bergur Þorri Benjamínsson, varaformaður Sjálfsbjargar, seg- ist hafa reynt að fá upplýsingar um tíðni slysa sem tengjast akst- ursþjónustu fyrir fatlaða en ekki haft erindi sem erfiði. „Ég hef leitað eftir upplýsingum um það en það er eins og menn hafi eitt- hvað mikið að fela. Það er farið með þetta eins og mannsmorð. Ég hef beðið landlækni um tölfræð- ina og Landspítalann líka. Þá er bara farið að þvaðra um einhverja persónuvernd. Ég er ekki að biðja um nöfn og kennitölur heldur bara tölur. Ég veit ekki af hverju þetta ætti að vera eitthvert leyndar- mál,“ segir Bergur og tekur fram að ef einhver vafi leiki á örygg- inu þá eigi að gera allt þess að laga það. „Ef einhverjum öðrum þjóðfélagshóp yrði sagt að hann ætti hugsanlega að búa við skert öryggi þegar farið er frá a-b þá myndi enginn sætta sig við það.“ viktoria@frettabladid.is Öryggi farþega mis- jafnlega vel tryggt Framkvæmdastjóri Strætó bs. segir bíla fyrirtækisins sem sinna ferðaþjónustu fatlaðra búna öryggisbúnaði sem uppfylli allar gæðakröfur. Hins vegar sinni leigubílar líka akstrinum en þeir eru ekki í öllum tilvikum búnir þessum búnaði. VÍSINDI Inga Dóra Sigfúsdóttir, prófessor við Háskólann í Reykja- vík, fær tvær milljónir evra, eða um 300 milljónir íslenskra króna, í rannsóknarstyrk frá Evrópu- sambandinu. Inga Dóra er annar Íslendingurinn sem hlýtur svo háan styrk, að því er segir í frétt HR. Rannsóknir Ingu hafa staðið yfir í tvo áratugi og snúast um líðan ungs fólks á Íslandi. Niður- stöðurnar eru notaðar um gjör- valla Evrópu til forvarnarstarfs. Í tilkynningu HR segir að um gríðarlega viðurkenningu sé að ræða fyrir áratuga starf Ingu og íslenskt fræðasamfélag. - ibs Íslenskur prófessor styrktur: 300 milljónir króna frá ESB FERÐAÞJÓNUSTA Fjögur skemmti- ferðaskip með á fjórða þúsund farþega koma til Íslands sér- staklega vegna sólmyrkvans 20. mars og norðurljósanna. „Þetta er skemmtileg nýbreytni varð- andi skemmtiferðasiglingar til Íslands. Það hefur ekki gerst áður að skemmtiferðaskip komi hingað um vetur,“ segir Jóhann Bogason, verkefnisstjóri hjá TVG-Zimsen, í fréttatilkynningu frá fyrirtæk- inu. Um er að ræða ellefu daga sigl- ingu á norðurslóðir og munu öll skipin koma til hafnar í Reykja- vík. Uppselt er í siglingarnar. - ibs Vetrarsiglingar til Íslands: Skemmtiferða- skip í mars HEILBRIGÐISMÁL Opið hús verður hjá Hjartaheillum að Síðumúla 6 á morgun, sunnudag, frá kl. 11 til 16 í tilefni GoRed-átaksins. Átak- inu er ætlað að fræða konur og karla um hjarta- og æðasjúkdóma sem eru algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi. Konum verða boðnar mælingar á blóðþrýstingi, kólesteróli, blóð- sykri og súrefnismettun og verð- ur fagdeild hjartahjúkrunarfræð- inga á staðnum. Flutt verða fræðsluerindi og úthlutað úr rannsóknarsjóði GoRed á Íslandi. - ibs Opið hús hjá Hjartaheillum: Mælingar á blóðþrýstingi INGA DÓRA SIGFÚSDÓTTIR Rannsakar líðan ungmenna. SKEMMTIFERÐASKIP Á fjórða þúsund farþegar koma með fjórum skemmti- ferðaskipum í mars. Leikskólinn á Þórshöfn er sprunginn 1 ÞÓRSHÖFN Íbúar Þórshafnar á Langanesi kalla eftir nýjum leikskóla í bæjarfélagið. Nú eru 37 börn í skólanum og nokkur börn á biðlista og komast þar af leiðandi ekki strax inn í skólann. Öflugt atvinnulíf er í sveitarfélaginu þar sem Ísfélag Vestmannaeyja er með öfluga vinnslu. Foreldrar í bæjar- félaginu kalla því eftir nýju og stærra leikskólahúsnæði til þess að öll börn komist inn í leikskóla. Þjóðvegi eitt lokað í sex vikur 2 ÁRBORG Vegagerðin hefur auglýst lokun á þjóðvegi eitt í gegnum Selfoss. Lokunin varir frá 25. febrúar næstkomandi í allt að sex vikur. Framkvæmdir við gatnamót Austurvegar og Tryggvagötu á Selfossi er ástæða lokunarinnar. Vegfarendum sem leið eiga í gegnum bæinn er beint á hjáleið í gegnum íbúða- hverfi en þungaflutningar þurfa að fara örlítið lengri hjáleið. Að meðaltali fara um sjö þúsund bílar á sólarhring um veginn. Eygló þjappar sveitarstjórn saman 3 SKAFTÁRHREPPUR Eygló Kristjánsdóttir, frá- farandi sveitarstjóri Skaftár- hrepps, stappaði stálinu í sveitarstjórn hreppsins þegar slit á ráðningarsamn- ingi hennar var til umfjöll- unar í sveitarstjórn. Óskaði hún í bókun að allir gætu enn unnið saman að góðum málum fyrir hreppinn. Enginn eiginlegur meirihluti var í sveitarfélaginu og unnu allir listar saman. Ó-listi telur nú það samkomulag fokið út í veður og vind við starfslok Eyglóar. LANDIÐ 1 2 3 SEGIR BÍLANA ÖRUGGA Framkvæmdastjóri Strætó segir öryggisbúnað í nýjum bílum akstursþjónustunnar uppfylla öll skilyrði. Hins vegar sjái leigubílar um hluta akstursins og þar sé öryggi farþega ekki jafn vel tryggt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ég hef beðið land- lækni um tölfræðina og Landspítal- ann líka. Þá er bara farið að þvaðra um einhverja persónuvernd. Bergur Þorri Benjamínsson, varaformaður Sjálfsbjargar. FJÖLMIÐLAR Fréttablaðið og Stöð 2 hlutu fjórar tilnefningar til Blaðamannaverðlauna ársins 2014. Viktoría Hermannsdóttir er tilnefnd fyrir umfjöllun um inn- flytjendur. Ólöf Skaftadóttir er tilnefnd fyrir viðtal við tvíburana Kára og Halldór Auðar- og Svans- syni. Fyrir rannsóknarblaða- mennsku ársins eru tilnefndir Garðar Örn Úlfarsson og Þor- björn Þórðarson fyrir umfjöll- un um flugslysið við Akureyri. Í þeim flokki er einnig tilnefnd Hrund Þórsdóttir á Stöð 2 fyrir umfjöllun um lyfjamistök. Allar tilnefningar má sjá á Vísi. - kbg Blaðamannaverðlaun 2014: Fimm tilnefndir á fréttastofu 365 2 0 -0 2 -2 0 1 5 2 1 :4 6 F B 1 2 0 s _ P 1 1 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 1 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 3 E 0 -C 4 D 0 1 3 E 0 -C 3 9 4 1 3 E 0 -C 2 5 8 1 3 E 0 -C 1 1 C 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 1 2 0 s C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.