Fréttablaðið - 21.02.2015, Blaðsíða 8
21. febrúar 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
OPIÐ Í DAG FRÁ KL. 12–16
NÝR NISSAN
X-TRAIL
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
NÝR NISSAN X-TRAIL
ACENTA PLUS DÍSIL
EYÐSLA 5,1 L/100 KM*
5.790.000 KR.
Sjálfskiptur, framhjóladrifinn, 7 sæta.
*Miðað við uppgefnar tölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri.
Afhending 10 megavatta (MW) af
raforku í núverandi flutningskerfi
er aðeins möguleg í tveimur lands-
hlutum – Suðvesturlandi og á hluta
Norðvesturlands. Slitnað hefur upp
úr samningaviðræðum milli Lands-
virkjunar og fyrirtækja sem óska
eftir orkukaupum vegna þessara
takmarkana í flutningskerfinu og
þannig eru stór erlend fjárfestinga-
verkefni í hættu.
Þetta var meðal þess sem kom
fram í máli Óla Grétars Blöndal
Sveinssonar, framkvæmdastjóra
þróunarsviðs Landsvirkjunar, á
aðalfundi Samorku sem haldinn
var í gær. Fundurinn ályktaði að
íslenska raforkukerfið væri í alvar-
legum og vaxandi vanda vegna
hindrana á uppbyggingu og við-
haldi – en þessi vandi hefur verið til
umfjöllunar hér á landi um árabil.
Það hefur kristallast í spurningunni
um hvort tengja eigi saman flutn-
ingskerfi landshluta með háspennu-
línu yfir hálendið, eða með því að
styrkja byggðalínuna sem fyrir er.
Óli sagði einnig í erindi sínu
að virkjaðar auðlindir væru ekki
nýttar til fulls vegna takmarkana
í flutningskerfinu, en að hans sögn
takmarkar flutningskerfið vinnslu-
getu Landsvirkjunar um sem
nemur um 100 gígavattstundum
(GWh) á ári. Loks torveldar þessi
staða þróun nýrra virkjunarkosta,
enda óvissa um flutning orkunnar
frá virkjunum.
Óþolinmóð
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, tók
í sínu erindi undir áhyggjur og
ályktanir fundarins um að staðan á
flutningskerfinu væri grafalvarleg.
Hún lýsti því yfir að þess væri að
vænta að nokkuð myndi liðkast um
skipulagsmálin með tveimur þing-
málum sem hún er vongóð um að
verði leidd til lykta á yfirstandandi
vorþingi; um kerfisáætlun Lands-
nets og þingsályktun um málefni
loftlína og jarðstrengja.
Óþolinmæði ráðherra gagn-
vart 3. áfanga rammaáætlunar
var öllum fundarmönnum ljós og
nefndi hún sérstaklega velþókn-
un sína á mjög umdeildri tillögu
meirihluta atvinnuveganefndar um
að færa fjóra virkjunarkosti í nýt-
ingarflokk úr biðflokki, til viðbót-
ar við Hvammsvirkjun – sem hún
sagði mjög skynsamlega. Tilefnið
var önnur ályktun aðalfundarins
um að Alþingi færi fleiri orkukosti
í nýtingarflokk.
Flutningur orku mikill flöskuháls
Uppbyggingu atvinnulífs á landsbyggðinni er þröngur stakkur skorinn vegna takmarkana í flutningskerfi raforku. Sveitarstjórnarmenn
norðanlands og austan lýsa þungum áhyggjum. Þolinmæði iðnaðar- og viðskiptaráðherra vegna seinagangs við uppbyggingu er á þrotum.
HÁSPENNA
Uppbygging
flutnings-
kerfisins hefur
þvælst á milli
aðila um árabil
og lokaniður-
staðan er fjarri
því í hendi.
FRÉTTABLAÐIÐ/SAJBJARNI TH.
BJARNASON
PÁLL BJÖRGVIN
GUÐMUNDSSON
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Óttast stöðnun
Kannski birtist vandinn sem við
er að etja – og allir eru sammála
um að þurfi að leysa þótt leiðirnar
til þess séu bitbein – þegar sveitar-
stjórnarmenn stigu í pontu og
gerðu grein fyrir þýðingu flutn-
ingsvanda raforku fyrir byggðir
norðan- og austanlands.
Páll Björgvin Guðmundsson,
bæjar stjóri í Fjarðabyggð, minnti
á að uppbygging í orkumálum og
álvers á Reyðarfirði hefði átt að
vera fyrsta skrefið til þróunar
atvinnulífs á Austurlandi en mögu-
lega væri þeirri uppbyggingu sam-
fara uppbyggingu stóriðju stefnt í
uppnám. Einnig væri framþróun í
sjávarútvegi, m.a. með rafvæðingu,
ógnað.
Milljarða fjárfesting í gíslingu
Það var ekki síður þungt yfir
Bjarna Th. Bjarnasyni, sveitar-
stjóra í Dalvíkurbyggð. Í sínu
erindi sagði hann frá því að raf-
orkuþörf Eyjafjarðar væri um 100
megavött í dag og færi vaxandi.
Aðeins eru framleidd átta megavött
á svæðinu og nauðsyn flutnings raf-
orku á svæðið æpandi, sagði Bjarni
sem greindi frá erlendum aðila sem
óskar eftir 10 MW í atvinnuskap-
andi fjárfestingu, sem metin er á
17 milljarða, í Dalvíkurbyggð, sem
skapa myndi um 120 ný störf og
umtalsverðar tekjur fyrir sveitar-
félagið og þjóðfélagið í heild. Sú
erlenda fjárfesting er ekki í hendi
vegna flutningsvandans.
Bjarni sagði „öfgahópa“ ekki
mega stöðva uppbyggingu flutn-
ingskerfis raforku og stjórnmála-
menn, sveitarstjórnarfólk og hags-
munaaðila vera sofandi á verðinum.
2
0
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:4
6
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
E
0
-D
8
9
0
1
3
E
0
-D
7
5
4
1
3
E
0
-D
6
1
8
1
3
E
0
-D
4
D
C
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K