Fréttablaðið - 21.02.2015, Page 40
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja
Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Edduverðlaunin verða afhent í kvöld þar sem mikið verður um dýrðir. Meðal
þeirra sem eru tilnefndir er Helgi
Björnsson. Hann hlaut tilnefn-
inguna besti leikari í aukahlut-
verki fyrir hlutverk sitt í kvik-
myndinni París norðursins. „Það
verður nóg að gera um helgina,“
svaraði Helgi þegar við slógum
á þráðinn til hans. Hann ætlar
þó að vera í fríi frá söng og leik.
Í gærkvöldi var hann viðstaddur
afhendingu Íslensku tónlistar-
verðlaunanna en þar koma allir
helstu tónlistarmenn landsins
saman. Síðan er það Eddan í
kvöld þar sem kvikmynda- og
sjónvarpsfólk hittist. Hann
segist ekki vera búinn að semja
ræðuna, ef hann skyldi vinna.
„Maður spinnur bara eitthvað á
staðnum ef til þess kemur.“
Á Eddunni hittist bransinn og
allir í sínu fínasta pússi. „Það er
virkilega skemmtilegt að gleðjast
með þessu fólki. Hátíðin er ekki
síst mikilvæg fyrir það fólk sem
vinnur á bak við myndavélina.
Það er stór hópur, frábærir
fagmenn sem starfa bæði við
íslenskar kvikmyndir og á al-
þjóðlegum markaði. Kvikmynda-
gerðin er orðin stór atvinnugrein
sem skiptir verulegu máli. Ekki
er langt síðan þetta fagfólk var
í annarri vinnu meðfram þar
sem verkefnin voru ekki nægi-
lega mörg. Nú hefur þetta breyst
og margir sem starfa við kvik-
myndagerð eru í fullu starfi. Það
er ánægjuleg þróun,“ segir Helgi.
PABBAR SEM GRÁTA
Helgi fagnaði þrjátíu ára starfs-
ferli síðasta haust. Í tilefni af því
fór hann í vel heppnaða tónleika-
ferð um landið. Hann á farsælan
feril að baki en mörg laga hans
hafa orðið feikilega vinsæl og
þjóðin syngur gjarnan þegar hún
er í góðu skapi. Má þar nefna lög
eins og Mér finnst rigningin góð
og Þúsund sinnum segðu já með
Grafík og síðan lög eins og Geta
pabbar ekki grátið sem Helgi
söng með Sssól. Undanfarin ár
hefur Helgi gert vinsælar plötur
með Reiðmönnum vindanna en
mörg þeirra laga hljóma reglu-
lega á öldum ljósvakans. Í haust
kom síðan út lagið Ég fer á Land
Rover frá Mývatni til Kópaskers
sem náði miklum vinsældum.
Hann segist nú reyndar ekki
bruna um landið á Land Rover
heldur á Dodge. „Þetta lag varð
einmitt til á ferðalagi um landið.
Þetta var ótrúlega skemmtileg
ferð og alls staðar mikil stemn-
ing.“
Þegar Helgi er spurður hver
sé galdurinn á bak við þessar
vinsældir segist hann ekki átta
sig á því. „Ég veit ekki hvernig
ég á að svara því. Ég hef alltaf
haft mjög gaman af fallegum
og grípandi melódíum. Áhersla
mín er kannski á slík lög auk
þess sem ég vil vera einlægur og
sannur gagnvart hlustendum.
Ég hef undanfarið sungið mikið
lög eftir aðra, gömul og góð lög,
en nú langar mig að leggja meiri
áherslu á frumsamda tónlist. Ég
er að vinna að slíkri plötu og lag-
ið Ég fer á Land Rover er fyrsta
lagið sem kemur út af henni.
Síðan verða fleiri lög í þessum
anda. Ég hef samið töluvert af
lögum og þau hafa safnast upp,
mörg eru ekki enn fullunnin.
Áður setti maður ófullgerð lög
inn á segulband en nú dælist
þetta inn á tölvuna. Sum verða
að „barni“ en önnur ekki. Ég býst
við að koma einu lagi út í vor eða
sumar en platan kemur síðan út
með haustinu.“
ÁSTRÍÐAN Í LÍFINU
Helgi hefur haft mikið að gera
undanfarið. Fyrir utan tónleika
kemur hann fram á alls kyns
mannfögnuðum, á árshátíðum,
í brúðkaupum, afmælum og því
um líku. „Það er yndislegt að fá
tækifæri til að vinna við það sem
manni þykir skemmtilegt. Vinnan
er í raun mín ástríða. Ég get því
ekki kvartað,“ segir hann.
Það hefur farið minna fyrir
vinnu í leikhúsum og Helgi segist
sakna þess. Hann hefur meira
verið á hvíta tjaldinu, síðast í
París norðursins og Hross í oss.
„Ég tók síðast þátt í leiksýningu
með Vesturporti 2012. Ég væri
alveg til í að kíkja aftur á leik-
sviðið, ég myndi að minnsta
kosti ekki hafna tilboði. Leik-
húsið bindur mann á staðnum
en þar sem ég hef dvalið mikið
í Berlín undanfarin ár hefur það
ekki hentað mér. Svo eru alltaf
einhverjar kvikmyndir á teikni-
borðinu sem bíða fjármagns
og maður veit aldrei hvenær af
þeim verður.“
ÓVÆNT RÓMANTÍK
Það er konudagur á morgun.
Þar sem Helgi er rómantískur
sjarmör er sjálfsagt að spyrja
hvað hann ætli að gera fyrir
frúna, Vilborgu Halldórsdóttur.
„Jú, ég er rómantískur. Það er
nauðsynlegt til að halda í lit-
brigði lífsins. Ég gæti hugsað
mér að vakna snemma í fyrra-
málið, fara í blómabúð og kaupa
eitt tonn af rósum sem ég dreifi
um svefnherbergið og fram á
bað. Læt renna í baðið og sæki
EINLÆGUR OG
RÓMANTÍSKUR
SJARMÖR
POPPARINN Helgi Björnsson, söngvari og leikari, höfðar vel til þjóðarinnar
með lögum sínum. Hver smellurinn á fætur öðrum flýgur upp vinsældalistann.
Um þessa helgi verður Helgi þó hvorki á Mývatni né Kópaskeri.
30 ÁRA FERILL Helgi segist vera rómantískur og finnst gaman að koma eiginkonunni á óvart. Ekkert frekar á konudegi en öðrum
dögum ársins. „Ég er ekki rómantískur á ákveðnum dögum heldur þegar mér dettur það í hug. Þá verður það óvænt og skemmtilegt.“
MYND/STEFÁN
Kynning
í Heilsuhúsinu, Kringlunni
í dag, laugardag, frá kl. 14-17
20% afsláttur
á Dr. Organic á meðan
kynningunni stendur.
Fæst í öllum apótekum – Hagkaup – Fjarðarkaup
– Heimkaup – Heilsuver – Heilsulausn.is
Vinsamlegast láttu vita í gjaldfrjálst númer
800 1177 eða á dreifing@postdreifing.is
Hjálpaðu okkur að bæta þjónustuna.
Blaðið á að berast þér fyrir kl. 7:15 virka morgna
og 8:15 á laugardögum
FÉKKSTU EKKI BLAÐIÐ Í MORGUN?
KOM ÞAÐ OF SEINT?
2
0
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:4
6
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
E
1
-2
7
9
0
1
3
E
1
-2
6
5
4
1
3
E
1
-2
5
1
8
1
3
E
1
-2
3
D
C
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K