Fréttablaðið - 21.02.2015, Síða 42
FÓLK|HELGIN
BÖRNIN
„Þau eru mjög ólík-
ir karakterar, Vikt-
or er rosalega ljúf-
ur og blíður, hún
er miklu ákveðn-
ari og algjör töff-
ari. Það kom mér á
óvart hve snemma
karakterinn kemur
í ljós.”
● SÝNING
Í tilefni af konudeginum á
sunnudag verður Arna Vals-
dóttir með listamannaspjall
í Ásmundarsafni á sunnudag
klukkan 15. Hún mun ræða við
gesti um verk sitt á sýningunni
Vatnsberinn: Fjall+Kona sem
nú stendur yfir í Ásmundar-
safni.
Á sýningunni er þess minnst
að á árinu 2015 eru 100 ár liðin
frá því að konur fengu kosn-
ingarétt á Íslandi. Hin kunna
höggmynd Ásmundar Sveins-
sonar, Vatnsberinn (1937),
er þungamiðja og leiðarstef
sýningarinnar. Á sýningunni
verða önnur valin verk Ás-
mundar í samtali við verk
þeirra Örnu Valsdóttur, Daníels
Magnússonar, Kristínar Gunn-
laugsdóttur, Níelsar Hafstein,
Ólafar Nordal, Ragnhildar
Stefánsdóttur
og Sigurðar
Guðmundsson-
ar. Sýningin
stendur til
26. apríl
2015.
Sýningar-
stjóri er
Harpa
Björns-
dóttir.
FJALL+KONA
Sigríður Beinteinsdóttir hefur lengi verið ein af uppáhalds-söngkonum þjóðarinnar. Hún er
reyndur Eurovisionfari og kom fram
á dögunum í undan keppni Söngva-
keppni Sjónvarpsins með öðrum
dívum sem hafa farið í lokakeppnina.
Þar sungu þær lagið Non ho l’età sem
vann keppnina árið 1964 en Ellý Vil-
hjálms söng lagið á íslensku undir
heitinu Heyr mína bæn. „Þetta var æð-
islega skemmtilegt, þær eru allar svo
yndislegar, þessar söngkonur, og ég
held að það hafi skinið í gegn hjá okk-
ur hvað okkur fannst þetta frábært,“
segir Sigga. Aðspurð segir hún þær
hafa fengið fyrirspurnir um að koma
aftur fram saman og hún segir það vel
geta verið, það komi bara í ljós.
MARÍA NÆR LANGT Í EUROVISION
Sigga var búin að segja að lögin
Once Again og Unbroken með þeim
Friðriki Dór og Maríu Ólafsdóttur
yrðu efst í keppninni áður en úrslita-
keppnin í Söngvakeppninni fór fram
um síðustu helgi. „Ég setti þessi lög
á toppinn og var viss um að Unbrok-
en myndi vinna. Hún María sem
syngur Unbroken er alveg frábær, hún
hefur svo mikla útgeislun og fallega
nærveru og ég veit að hún á eftir að
standa sig vel. Ég held að þetta lag
geti gert mikið fyrir okkur úti, það hef-
ur einhvern erlendan blæ yfir sér sem
ég held að eigi eftir að virka vel. Það
lag er aðeins hraðara en Once Again
og ég held að það gefi okkur meira en
ballaða, annars var Friðrik Dór alveg
frábær líka. Það var gaman að sjá
svona mikið af ungu fólki í keppninni
en það var komin þörf á að fá meira
af nýju fólki inn í tónlistarlífið hér á Ís-
landi. Mér fannst lögin í ár mikið betri
en oft áður, það voru mun fleiri lög
góð núna.“
PABBI KEMUR Á ALLA TÓNLEIKA
Sigga er með mörg járn í eldinum
þessa dagana en meðal verkefna eru
tónleikar á Akureyri þann sjöunda
mars næstkomandi. „Við Guðrún
Gunnars og Jógvan Hansen höfum
verið með tónleikana Við eigum sam-
leið – lögin sem allir elska í einhvern
tíma í Salnum. Þetta er mjög skemmti-
legt verkefni þar sem við syngjum
gömlu, góðu íslensku lögin sem við
Guðrún dáðum og dýrkuðum þegar
við vorum litlar. Svo kemur Jógvan
ferskur inn því hann er bara ellefu
ára gamall Íslendingur eins og hann
segir sjálfur þannig að þessi skemmti-
legu gömlu lög eru ný fyrir honum. Á
milli laga segjum við sögur og gerum
grín hvert að öðru og lögunum, þetta
er mjög létt og skemmtilegt og fólki
hefur líkað þetta vel. Nú ætlum við að
bjóða Norðlendingum upp á þetta og
ferðast eitthvað um landið með tón-
leikana en svo verðum við í Salnum
síðasta vetrardag,“ segir Sigga. Hún
segir fólk á mjög breiðu aldursbili
hafa gaman af tónleikunum. „Pabbi
minn kemur til dæmis á alla tónleika
hjá okkur. Hann verður 83 ára á árinu
og hann elskar þetta. Svo erum við að
sjá fólk alveg frá þrítugu, þetta eru lög
sem svo margir þekkja og kunna.“
SÖNGVABORG FIMMTÁN ÁRA
Sigga hefur í gegnum árin átt sér
marga unga aðdáendur en hún og
María Björk gáfu saman út mynd-
diskana um Söngvaborg. „Nú er
Söngvaborg orðin fimmtán ára og
við erum að hugsa um að hafa stóra
afmælisveislu í sumar fyrir alla litlu
stubbana og erum auk þess að undir-
búa nýja Söngvaborg 7. Við höfum
lengi fengið fyrirspurnir um hvort við
ætlum ekki að gefa út nýja Söngva-
borg og ætlum nú að verða við þeim
óskum en okkur finnst þetta alltaf
ofsalega skemmtileg verkefni.“
EKKI MJÖG RÓMANTÍSK
Í kvöld verður Sigga að spila með
Stjórninni á árshátíð en bandið hittist
annað slagið og setur saman dagskrá
þegar óskað er eftir því. „Stjórnin hef-
ur alltaf verið stemningsband og við
leggjum mikið upp úr því að ná upp
stuði og spila það sem fólk vill heyra.
Þetta er annasöm helgi hjá mér og ég
verð að spila lengi fram eftir í kvöld
og fæ því að sofa út á konudaginn á
morgun.“ Hún svarar því hlæjandi að
það sé aldrei að vita hvort hún fái svo
morgunmat í rúmið í tilefni dagsins.
„Ég hef seint verið talin rómantísk
sjálf en ég vona að ég skáni nú eitt-
hvað með aldrinum. Það er mikið að
gera hjá okkur báðum í vinnu og að
hugsa um börnin þannig að lítill tími
gefst fyrir rómantík en maður verður
að reyna,“ segir hún og brosir.
TVÍBURARNIR ÓLÍKIR KARAKTERAR
Sigga og kona hennar, Birna María
Björnsdóttir, eiga saman tvíburana
Viktor Beintein og Alexöndru Líf sem
verða fjögurra ára í apríl. „Lífsstíll
minn hefur breyst mjög mikið eftir að
við eignuðumst þau. Núna nýti ég dag-
inn í að vinna í því sem er á döfinni og
að búa til verkefni. Þegar klukkan er
orðin fjögur þá loka ég tölvunni og er
með þeim, það er bara yndislegt. Þau
eru mjög ólíkir karakterar, Viktor er
rosalega ljúfur og blíður, hún er miklu
ákveðnari og algjör töffari. Það kom
mér á óvart hve snemma karakterinn
kemur í ljós. Ég hélt að við fengjum
einstaklinga í hendurnar sem hægt
væri að móta nánast að eigin vild en
þegar maður kynnist þessu sjálfur
þá sér maður að börn fæðast með
sterkan karakter. Tvíburarnir eru
á svo skemmtilegum aldri núna að
við erum hlæjandi út í eitt. Það er
ofsalega gaman að heyra þau tala
saman og ég segi stundum eina góða
sögu af þeim. Þau voru að leika sér
inni í herbergi og ég heyrði Alexöndru
biðja Viktor um að koma í feluleik, þá
svarar hann: „Nei, ég er hræddur um
að týnast.“ Hún svarar þá bara „ó“
eins og það gæti alveg gerst og þau
hætta við leikinn,“ segir Sigga og hlær
sínum smitandi hlátri.
■ liljabjork@365.is
SPÁÐI RÉTT UM SIGURLAGIÐ
REYNDUR EUROVISIONFARI Sigga Beinteins hefur nóg að gera um helgina við að syngja og hugsa um litlu tvíburana sína.
SIGGA BEINTEINS
ætlar að verja tíma með
fjölskyldunni um helgina
auk þess að syngja með
Stjórninni í kvöld.
MYND/GVA
2
0
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:4
6
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
E
1
-2
2
A
0
1
3
E
1
-2
1
6
4
1
3
E
1
-2
0
2
8
1
3
E
1
-1
E
E
C
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K