Fréttablaðið - 21.02.2015, Síða 76
KYNNING − AUGLÝSINGHúðflúr LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 20154
Húðflúrstofan Bleksmiðjan var opnuð í Skipholti árið 2010 en flutti á Kirkjuteig
21, eða í gamla Laugarnesapótek,
fyrir nokkru. Þau Sigrún Rós Sig-
urðardóttir og Ingólfur P. Heimis-
son stofnuðu stofuna en fljótlega
bættist Dagur Gunnarsson í hóp-
inn. „Við Ingi höfðum lengi verið
að grúska í myndlist og vorum
bæði á myndlistarbraut í FB.
Hann hefur verið að flúra frá því
um aldamótin og við kynntumst í
raun þannig að hann var að flúra
mig,“ útskýrir Sigrún. „Við kynnt-
umst svo Degi stuttu síðar og lík-
aði það sem hann var að gera.“
Sigrún segir meira en nóg að
gera á stofunni og eru allir starfs-
menn bókaðir fram á haust. „Við
erum hins vegar að fá til okkar tvo
gestaflúrara í næstu viku sem taka
að sér nýja kúnna.”
Spurð að því hvað einkenni
stofuna segir hún þau öll hafa mis-
munandi stíl. „Dagur er svolítið í
Old School og New School, Ingi
í andlits- og raunsæismyndum
og ég í vatnslitamyndum. Ann-
ars gerum við allt milli himins og
jarðar og viðskiptavinir geta valið
um mjög fjölbreytta stíla. Þá leggj-
um við ríka áherslu á notalegt og
þægilegt andrúmsloft og að fólki
líði vel hjá okkur. Við viljum ekki
að það fái menningarsjokk þegar
það labbar hérna inn.“
Sigrún segir húðflúr orðið mun
útbreiddara en var og að það sé
langt frá því bara þeir allra hörð-
ustu sem fái sér tattú. „Við erum
með allt frá húsmæðrum yfir í lög-
fræðinga og fólk á öllum aldri.“
Sigrún segist þó enn verða vör
við talsverða fordóma í garð húð-
flúraðs fólks. „Við viljum leggja
okkar af mörkum til að breyta
hugarfari fólks í þeim efnum en
um leið reynum við líka að leið-
beina viðskiptavinum okkar. Ef
hingað kemur fólk sem er ekki
með neitt tattú en vill fá sér á háls-
inn eða handarbökin reynum við
að tala um fyrir því. Ég spyr fólk
yfirleitt alltaf í hvers konar vinnu
það sé og hvað það ætli sér að gera
í framtíðinni. Eins hvort það sé að
fara að taka bankalán eða annað í
þeim dúr því ég hef sjálf orðið vör
við fordóma hjá starfsfólki slíkra
stofnana. Það er leiðinlegt að fólk
skuli dæma eftir útlitinu en þann-
ig er það engu að síður. Fólk þarf
að leiða hugann að framtíðinni
og þó vinnuveitandinn í dag sé
jákvæður fyrir húðflúri þarf það
ekki að eiga við um aldur og ævi.“
Bleksmiðjan tekur heldur ekki
við fólki undir átján ára þó það
komi með leyfi foreldra. „Ástæð-
an er meðal annars sú að oft hafa
mamma og pabbi gefið leyfi fyrir
einhverju litlu og ákveðnu en það
er kannski ekki nákvæmlega það
sem viðkomandi vill. Þá er betra
að bíða og koma síðar.“
Dagarnir á stofunni eru ólíkir
hver öðrum og segir Sigrún starfs-
fólkið sífellt vera að fást við eitt-
hvað nýtt og skemmtilegt. „Verk-
efnin eru krefjandi fyrir okkur
sem listamenn og við fáum að
nýta sköpunargáfuna til fulls. Við
gerum þó allt í miklu samstarfi
við viðskiptavini okkar og ég segi
fólki alltaf að það verði að vera 100
prósent hreinskilið við mig. Ef það
er ekki ánægt með teikningarnar
verður það að segja mér frá því.
Það mun ekki særa mig. Ég vil bara
að fólk sé ánægt með útkomuna.“
Sigrún segir hreinlæti í fyrir-
rúmi á stofunni og er f lestallur
búnaður einnota. „Áður voru not-
aðar stáltúpur og einnota nálar og
túpurnar þrifnar á milli. Núna er
allt í dauðhreinsuðum umbúðum
og tólunum hent eftir notkun.“ Lit-
irnir eru jafnframt vottaðir af heil-
brigðiseftirlitinu og öll starfsem-
in undir ströngu eftirliti. „Ég held
að flestar stofur hér á landi fari vel
eftir settum reglum.“
Gestaflúrararnir sem eru vænt-
anlegir á stofuna heita Kara Alex-
is og Anthony Firstbrook. „Kara
er frá Ástralíu en hefur ferðast
um allan heim til að flúra. Hún
hefur komið hingað til lands áður
og verður nú í þrjá mánuði. Hún
gerir mikið af raunsæismyndum
og rúmfræðiteikningum svo dæmi
séu nefnd. Anthony er frá Skot-
landi. Hann gerir mikið af svart
hvítu og f lúrar í Old School- og
Neo Traditional-stíl ásamt öðru.
SIGRÚN gerir meðal annars fínleg vatnslitahúðflúr. DAGUR flúrar mikið í Old School og New School-stílunum. Gestaflúrarinn ANTHONY FIRSTBROOK sem er væntanlegur á
stofuna flúrar í Old School- og Neo Traditional-stíl..
INGI gerir meðal annars í andlits- og raunsæismyndir.
Gestaflúrarinn KARA ALEXIS gerir mikið af raunsæis og rúm-
fræðimyndum.
Viljum að fólki líði vel hjá okkur
Hjá húðflúrstofunni Bleksmiðjunni er mikið lagt upp úr notalegu og þægilegu andrúmslofti. Þangað kemur fólk á öllum aldri og úr
öllum þjóðfélagshópum. Eigendurnir segja sífellt fleiri fá sér húðflúr og að fleiri þeki stærri hluta líkamans en áður.
Rúnar Geirmundsson, sem starfar í afgreiðslunni, Dagur, Ingi og Sigrún Rós leggja sig fram um að skapa þægilegt andrúmsloft.
MYND/VALLI
2
0
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:4
6
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
E
1
-0
0
1
0
1
3
E
0
-F
E
D
4
1
3
E
0
-F
D
9
8
1
3
E
0
-F
C
5
C
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K