Skessuhorn - 27.11.2013, Blaðsíða 81
81ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2013
Ungnautakjöt – Kílóverð 1.850 kr.
sími 8687204 / www.myranaut.is / myranaut@simnet.is
Lágmarkspöntun ¼ af skrokk. Inniheldur steikur, hakk og gúllas.
Gott í vetur
Handverk og Hangikjöt!
Jól í Álfhól
Bjarteyjarsandi
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Árlegur jólamarkaður verður í Álfhól á
Bjarteyjarsandi dagana 30. nóvember
og 1. desember. Fjölbreytt úrval handverks og
listmuna auk ljúffengra afurða Beint frá býli.
Laugardagur 30. nóv: Opið milli klukkan 13 og 18.
Sérstakir gestir:
Ragnhildur Sigurðardóttir, lektor við Lbhí heimsækir
Álfhól og kynnir hið nýútkomna rit: Sauðfjárrækt á
Íslandi.
Jólatónleikar söngdeildar Tónlistarskóla Akraness
verða í Álfhól og hefjast kl. 16.30. Ókeypis
aðgangur.
Sunnudagur 1. des. Opið 13-17.
Sérstakir gestir:
Svavar Halldórsson, bókaútgefandi, fjölmiðlamaður
og matgæðingur. Svavar kynnir Hamborgarabókina
og heimspeki hennar. Bókin verður til sölu auk
einstakrar hamborgarapressu.
Jóhanna B. Þorvaldsdóttir, geitabóndi á Háafelli
í Hvítársíðu. Jóhanna kemur með geitaafurðir og
ýmsan fróðleik um geitfjárrækt og geitastofninn á
Íslandi.
Heitt á könnunni – Hlökkum til að sjá ykkur
www.bjarteyjarsandur.is
Einstakar
jólagjafapakkningar
frá label.m
Jólaklippinguna færðu hjá okkur
Helena og Marín
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
www.skessuhorn.is
Fylgist þú með? S: 433 5500
Bókaverslunum hér á landi hef-
ur fækkað mjög á undanförnum
árum. Nú er svo komið að fáar eru
enn starfandi ef borið er saman við
hvernig málum var háttað áður
fyrr. Stærstur hluti bóksölunnar fer
fram í gegnum stórmarkaði og mat-
vöruverslanir rétt fyrir jól þar sem
boðnir eru miklir afslættir. Strax að
loknum hátíðum eru bækurnar síð-
an fjarlægðar úr þessum verslun-
um og sjást þar vart eða ekki fyrr
en aftur um næstu jól. Bókabúðun-
um hefur reynst erfitt að keppa við
þessa viðskiptahætti. Fyrstar til að
heltast úr lestinni hafa verið litlu
búðirnar sem oftast voru reknar af
einstaklingum eða fjölskyldum.
Bókaverzlun Breiðafjarðar í
Stykkishólmi er gleðileg undan-
tekning sem sannar að svona bóka-
búðir geta þó enn þrifist. Hún
er í fallegu gömlu húsi niður við
hlið Ráðhússins við Hafnargötu
skammt ofan við höfnina í bæn-
um. Reyndar er verslunin þríþætt.
Þarna eru bækur og ritföng, leik-
föng og hannyrðir. Gamalt versl-
unarhúsið gefur henni skemmtileg-
an svip bæði að utan og innan og
minnir á búðirnar eins og þær voru
í gamla daga. Þetta er næstum eins
og að stíga inn í gamla bíómynd.
Ekki spillir svo staðsetningin fyrir.
Mikið af fallegum og nýuppgerðum
gömlum húsum eru allt í kring.
Rebekka Sóley Guðjónsdóttir
Hjaltalín er þar við afgreiðslustörf
þegar blaðamaður Skessuhorns leit
inn til að skoða jólabækurnar í ár
og festa kaup á einni þeirra. „Búðin
er búin að vera í mörg ár. Hún var
hér í götunni á móti þar til foreldr-
ar mínir keyptu hana fyrir réttu ári
síðan. Frænka mín rak hana áður.
Verslunin flutti svo hingað yfir 1.
desember í fyrra. Það gengur mjög
vel, þetta er afar skemmtilegt,“ seg-
ir hún um verslunarreksturinn.
Nú er hin hefðbundna jólaver-
tíð að hefjast. Þó að Skessuhorn
sé á ferli í miðri viku er stöðug-
ur straumur viðskiptavina inn og
út úr búðinni þennan vetrardag í
Stykkishólmi. „Nú koma inn bæk-
ur á hverjum degi. Mér finnst fólk
vera fyrr á ferðinni að versla nú í
ár en í fyrra. Við sjáum samt ekki
enn neina ákveðna titla taka forystu
í sölu,“ segir Rebekka Sóley. Hún
er sjálf fædd og uppalin í Stykkis-
hólmi, móðir með tveggja ára dótt-
ur. „Ég stunda núna fulla vinnu hér
í búðinni. Áður var ég á félagsfræði-
braut í Fjölbrautaskóla Snæfellinga
í Grundarfirði. Ég stefni á að halda
áfram og ljúka því en ég kann vel
við verslunarstörfin.“ mþh
Bókabúðin sem heldur
velli við Breiðafjörð
Rebekka Sóley við afgreiðslu í Bókaverzlun Breiðafjarðar.
Bókaverzlun Breiðafjarðar er í þessu gula húsi.