Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2000, Page 51

Læknablaðið - 15.04.2000, Page 51
FRÆÐIGREINAR / ÞING SKURÐLÆKNA, SVÆFINGA- OG GJÖRGÆSLULÆKNA E 21 Faraldsfræði beinbrota í Reykjavík 1998 Guðmundur Örn Guðmundsson’, Brynjólfur Mogensen2, Gunnar Sigurðsson3 Frá 'hæklunarlækningadcild,:slysa- og bráðasviði, 'lyflækningadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur. Fyrirspurnir: gudmundg@shr.is Inngangur: Tíðni beinbrota í Reykjavík er óþekkt. Tilgangur rann- sóknarinnar var að kanna faraldsfræði beinbrota í Reykjavík árið 1998. Efniviður og aðferðir: Gerð var tölvuúrvinnsla lögskráðra íbúa í Reykjavík sem leitað höfðu á slysa- og bráðamóttöku Sjúkrahúss Reykjavíkur árið 1998 og greindir voru með beinbrot samkvæmt alþjóðasjúkdómaskránni, ICD 10. Upplýsingar um íbúafjölda voru fengnar frá Hagstofu íslands. Niðurstöður: Árið 1998 greindust 2867 brot á slysa- og bráðamót- töku Sjúkrahúss Reykjavíkur (26,6 brot á 1000 íbúa). Hjá körlum greindust 1557 brot en 1310 hjá konum (1,19/1). Brot voru algengari hjá körlum í öllum aldurshópum að 50-54 ára aldri, en brot voru al- gengari hjá konum í öllum aldurshópum, frá 55-59 ára aldri. Mesti munur á milli kynjanna var í aldurshópnum yfir 80 ára þar sem 184 konur brotnuðu á móti 43 körlum (4,3/1). Minnstur munur var í aldurshópnum 55-59 ára, 40 konur á móti 38 körlum (1,05/1). Næst minnsti munur kynja, 194 karlar á móti 181 konu (1,07/1) var í fjöl- mennasta brotahópnum, 10-14 ára. í þriðja algengasta brotahópn- um, 15-19 ára, var hins vegar næst mesti munur kynjanna, 206 karlar á móti 55 konum (3,7/1). Brot voru algengust í þremur aldurshópum undir tvítugu, 10-14 ára, eða 375 brot (13,1%); hjá 5-9 ára, 276 brot (9,6%) og hjá 15-19 ára 261 brot (9,1%). Fæst brot voru í aldurshópnum 55-59 ára, 78 brot (2,7%). Eftir það fjölgaði brotum aftur en komst þó ekki ná- lægt brotafjölda unglingsára. Algengustu brotin reyndust vera: brot á fjærenda geislungs, 421 (14,7%); fingurbrot, 381 (13,3%); rifbrot, 292 (10,2%); ökklabrot, 192 (6,7%) og miðhandarbrot, 186 (6,5%). Samtals voru 10 algeng- ustu brotin um 2/3 brotanna. Langflestir, eða 2263 (78,5%) fóru heim af slysa- og bráðamót- töku en 485 sjúklingar (16,9%) lögðust inn á sjúkrahús. Umræða: Beinbrot eru tiltölulega algeng (26,6/1000). í flestum til- fellum er ekki um mjög alvarlega áverka að ræða. Brot eru mjög al- geng í aldurshópnum frá 5-19 ára. Athygli vekur að brotin eru nán- ast jafn algeng hjá 10-14 ára drengjum og stúlkum, en í næsta aldurs- hóp, 15-19 ára eru brot 3,7 sinnum algengari hjá piltum. Eftir ung- lingsárin lækkar tíðnin jafnt og þétt þar til hún eykst aftur um sex- tugt. Þekking á faraldsfræði brota er mikilvæg til fræðslu og forvarna. E 22 Sprengjuáverkar um áramót Ásgeir Thoroddsen, Brynjólfur Mogensen Frá slysa- og bráðasviði Sjúkrahúss Reykjavíkur Inngangur: Um hver áramót er tíðrætt um slys sem verða vegna sprengigleði landsmanna. Ekki er vitað um algengi eða umfang þessara slysa. Markmið rannsóknarinnar var að kanna fjölda og áverka slasaðra sem komu á slysa- og bráðamóttöku Sjúkrahúss Reykjavíkur yfir áramótin 1999-2000 vegna sprengjuslysa. Efniviður og aðferðir: Skoðaðar voru komur allra sjúklinga á slysa- og bráðamóttöku Sjúkrahúss Reykjavíkur frá kl. 12:00 á gamlárs- dag 1999 til kl. 12:00 á nýársdag 2000 vegna áverka eftir sprengju- slys. Sjúkraskrár voru skoðaðar með tilliti til aldurs og kyns, stað- setningar og alvarleika áverka, sjúkdómsgreiningar og hvort inn- lagnar var þörf. Blys, tertur, sprengjur og flugeldar sem ollu áverk- um voru flokkaðir og skoðað hvort öryggisbúnaður var notaður. Niðurstöður: Það komu 147 manns á slysa- og bráðamóttöku á þessum sólarhring. Þar af komu 102 (69%) vegna áverka, 45 (31%) vegna veikinda og 14 komu í fylgd lögreglu vegna gruns um ölvun- arakstur. Af þeim sem komu vegna áverka reyndust 23 (23%) hafa slasast vegna blysa-, tertu-, sprengju- eða flugelda. Flestir með sprengjuáverka komu kl. 00:00-01:00 eða 14 en enginn kom eftir 03:30. Karlmenn voru í meiri hluta (18) og hinir slösuðu voru á aldr- inum 3-47 ára. Flestir voru í aldurshópnum 3-10 ára (9) og 37-47 ára (10). Áverkar í andliti voru algengastir 13 og/eða augum sex eða í samtals 83% tilvika en hendur og fingur í 4% tilvika. Nær alltaf var um einhvern bruna að ræða en 11 hlutu sár eða skurði og fimm beinbrot. Flestir hlutu samkvæmt AIS minni háttar áverka en þrjá slasaða þurfti að leggja inn á sjúkrahús. Af hinum slösuðu voru 10 einstaklingar áhorfendur. Enginn slasaðra hafði notað hlífðargler- augu og aðeins einn hafði notað leður- eða hlífðarhanska. Flugeldar áttu þátt í níu slysum, tertur í fjórum, sprengjur í fimm, blys, hand- blys eða kínverjar í tveimur en hjá tveimur var tegund óljós. Tívolísprengjur orsökuðu alvarleg slys í tveimur tilvikum. Umræða: Ekki er vitað um nákvæmt magn sprengja (blys, tertur, sprengjur, flugeldar) sem notað var á þjónustusvæði Sjúkrahúss Reykjavíkur. Það virðist þó sem hlutfallslega fáir slasist. Hinir slös- uðu skiptust annars vegar í börn undir 10 ára aldri og heimilisfeður uni fertugt. Ekki virtist vera um áberandi klaufaskap að ræða en hinir slösuðu notuðu ekki hefðbundinn öryggisbúnað eins og hlífð- argleraugu og hanska. Langflestir sluppu þó með fremur litla áverka en sprengjurnar orsökuðu alvarlegustu áverkana. Niður- stöðumar gefa til kynna að með því að nota hlífðargleraugu og hanska megi fækka áverkunum enn frekar. E 23 Handarslys Reykvíkinga árið 1998 Andri Kristinn Karlsson, Brynjólfur Mogensen Frá Sjúkrahúsi Reykjavikur Inngangur: Handarslys eru talin algeng. Tíðni handarslysa í Reykja- vík er óþekkt. Tilgangur þessarar rannsóknar er að athuga tíðni handarslysa hjá Reykvíkingum. Efniviður og aðferðir: Gerð var tölvuvinnsla lögskráðra íbúa Reykjavíkur sem leituðu á slysa- og bráðamóttöku Sjúkrahúss Reykjavíkur á tímabilinu 01.01.1998-31.12.1998 vegna handarslysa. Tölur um fjölda Reykvíkinga eru fengnar frá Hagstofu íslands. Niðurstöður: Alls komu 3.854 slasaðir Reykvíkingar á slysa- og bráðamóttökuna með handaráverka árið 1998, sem er um 36 hand- aráverkar á hverja 1.000 íbúa. Karlar voru 2.470 (64,1%) og konur 1.384 (35,9%). Meðalaldur var 29 ár. Algengustu orsakir áverkanna voru sár á hendi 1.655 (43%), tognanir 765 (20%), brot á handar- beinum eða fingrum 636 (17%) og mar 635 (17%). Algengustu or- sakir áverkanna voru skerandi hlutir 1.006 (26%), reka hendi eða fingur í 799 (21%), kramning 579 (15%) og fall 451 (12%). Heim fóru 3.689 sjúklingar en 50 lögðust inn. Aðrir fóru annað eða afdrif þeirra voru ekki skráð. Umræða: Handaráverkar eru algengir meðal Reykvíkinga. Algengi virðist vera svipað og hjá öðrum. Fremur fáir þurftu á innlögn að Læknablaðið 2000/86 275
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.