Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2000, Síða 56

Læknablaðið - 15.04.2000, Síða 56
FRÆÐIGREINAR / ÞING SKURÐLÆKNA, SVÆFINGA- OG GJÖRGÆSLULÆKNA sem þarf til að ná sveifarflipanum er lítið miðað við frían ásgarnar- flipa sem er ótvíræður kostur. Samkvæmt stóru erlendu uppgjöri eru fistlar og þrengingar algengari hjá sjúklingum með sveifarflipa en með ásgarnarflipa, en hjá okkar sjúklingum voru engir slíkar fylgikvillar. í sama uppgjöri voru sýkingar og drep algengari í ás- garnarflipum, en við fengum drep í einn flipa í kjölfar sýkingar. Við teljum að endursköpun koks með fríum sveifarflipa, sé góð- ur kostur og vel framkvæmanlegur. E 36 Slagæðarof við olnbogaliðhlaup Hjalti Már Björnsson, Sigurgeir Kjartansson Frá skurðlækningadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur Fyrirspurnir: hmb@centrum.is Æðasköddun við olnbogaliðhlaup er sjaldgæfur áverki. Árið 1985 hafði aðeins verið lýst 20 tilfellum í enskum fagbókmenntum. Af þeim hafði æðin verið saumuð hjá þremur með viðunandi árangri. Hnýtt var fyrir enda æða eða beðið án aðgerðar hjá sjö, þar af með viðunandi árangri hjá tveimur en ekki getið um árangur hinna fimm. Bláæðaígræðslu í slagæð var fyrst lýst 1966 og var henni beitt hjá hinum 11 og er nú almennt viðtekin aðgerð vegna slagæðarofs án tillits til eðlis áverka. Lýst er sjúkrasögu 23 ára manns sem fór úr olnbogaliði í fót- bolta. Við komu á slysadeild fundust ekki púlsar í sveifarslagæð (a. radialis) eða upparmsslagæð (brachialis) og því vaknaði grunur um að æð væri klemmd. Olnboga var kippt í liðinn á bráðamóttöku án erfiðleika og röntgenmynd sýndi engin merki um brot. Þar sem handleggur var kólnandi með dofa og fölva á fingrum var tekin æðamynd sem sýndi stíflaða upparmsslagæð neðan við miðjan upp- handlegg, en fylling sást við kvíslun hennar neðan við olnboga. Var æðin könnuð í aðgerð þar sem í ljós kom rof á slagæðinni og var efri hluti æðarinnar kraminn á um 7 cm bili. Tekinn var hæfilegur bútur af innanarmsbláæð (v. basilica) og saumaður viðsnúinn í upparms- slagæð og fékkst þannig gott flæði og púls niður á úlnlið. Á þriðja degi var vaxandi bjúgur með dofa fram í fingur með minnkandi dopplerpúls. Þar sem ljóst var að rýmisheilkenni (com- partment-) var hlaupið í handleggsvöðva var skurðurinn opnaður á ný, græðlingurinn snyrtur og æðin víkkuð neðan við tengingu. Jafn- framt var gerð vöðvafellspretta (fasciotomia) á fram- og upphand- legg, æðagræðlingur þakinn með jarðarmensflipa og vöðvi á aftan- verðum upphandlegg síðar þakinn með húðgræðlingi. Eftirmeðferð var tíðndalaus með daglegri gæslu og háþrýstisúrefnismeðferð og við skoðun þremur mánuðum síðar varð ekki vart taugaskaða, lítið vantaði á hreyfingu í olnbogalið og höndin var vel blóðvædd. E 37 Fyrirburi með fyrirferð (lifur. Sjúkratilfelli Anna Gunnarsdóttir', Guömundur Bjarnason2, Kristrún R. Benediktsdóttir3, Atli Dagbjartsson4 Frá 'handlækningadeild Landspítalans, 2Barnaspítala Hringsins barnaskurödeild, ’Rannsóknastofu HÍ í meinafræði, 4Barnaspítala Hringsins vökudeild. Tuttugu og sex ára fjölbyrja leitaði á fæðingadeild Landspítalans eftir 36 vikna eðlilega meðgöngu vegna tveggja daga sögu um minnkandi fósturhreyfingar. Sónarskoðun leiddi í ljós gríðarstóra fyrirferð í kviðarholi fósturs. Eftir að barnið hafði verið tekið með keisaraskurði staðfesti tölvusneiðmynd af kviðarholi stóra fyrirferð í lifur, 8 cm í mesta þvermál. Æxlið var fjarlægt á fyrsta sólarhring með skurðaðgerð. Skurðbrúnir á æxli voru ekki fríar. í síðasta eftir- liti 10 mánuðum eftir aðgerð var barnið almennt hraust og á tölvu- sneiðmynd sáust ekki merki um æxlisvöxt. Lifraræxli eru afar sjaldgæf hjá börnum og eru um 2/3 þeirra ill- kynja. Erfitt reyndist að vefjagreina æxlið en þó virtist vera um að ræða góðkynja mesenchymal hamartoma. Er það í fyrsta skipti sem slíkt greinist hérlendis. Sjúkratilfellið verður kynnt og fjallað um mismunagreiningar. E 38 Áunnin fiskihúð. Sjúkratilfelli Theodór Ásgeirsson’, Páll Helgi Möller’, Hjörtur Gíslason', Steingrímur Davíðsson2 Frá 'handlækninga- og :húð- og kynsjúkdómadeild Landspítalans Fyrirspurnir: pallm@rsp.is Paraneoplastísk heilkenni geta komið fram í ýmsum líffærakerfum svo sem innkirtlakerfi, taugakerfi, blóð og húð. Áunnin fiskihúð (ichthyosis) er eitt af mörgum paraneoplastískum heilkennum í húð sem getur sést í tengslum við illkynja sjúkdóma. Fimmtán prósent þeirra sem greinast með áunna fiskihúð hafa illkynja sjúkdóm, en algengastir þeirra eru Hodgkins sjúkdómur, önnur eitilfrumu- krabbamein og kirtilfrumukrabbamein. Hér er fjallað um 78 ára gamlan karlmann sem lagðist inn til að- gerðar vegna kirtilfrumukrabbameins í maga en hann hafði nokk- urra mánuða sögu um megrun og slappleika. Síðar kom einnig í ljós að á sama tíma hafði sjúklingur tekið eftir vaxandi þurrki í húð. Eftir aðgerð var fengið álit húðsjúkdómalæknis og reyndist hér vera um dæmigerða fiskihúð að ræða en hún var mest áberandi á fótleggjum. Meðferð beinist að einkennum sjúklings (húðþurrki) sem annars hverfa eftir því sem lengra líður frá brottnámi krabbameinsins. Okkar sjúklingur var meðhöndlaður með rakakremi en þurrkurinn hvarf á nokkrum vikum eftir aðgerð. Mikilvægt er að vera vakandi fyrir paraneoplastískum heilkenn- um, því þau geta gefið grun um illkynja sjúkdóm. Hægt er að nota heilkenni til að fylgjast með klínískum gangi sjúkdóms. E 39 Húðþyrmandi brottnám brjósts vegna krabbameins og tafarlaus endursköpun Sigurður E. Þorvaldsson', Þorvaldur Jónsson2 Frá 'lýtalækningadeild Landspítalans, !skurðdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur Fyrirspurnir: sthorval@rsp.is Skurðaðgerðir við brjóstakrabbameini hafa þróast í átt til minna ágengra aðgerða. Þannig er hlutabrottnám (fleygskurður) með geislameðferð á eftirstæðan brjóstvef nú viðtekin meðferð, einkum við meðferð á litlum æxlum sem ekki eru miðlæg í brjósti. Miðlæg æxli, þó lítil séu, eða útbreitt setkrabbamein (carcinoma-in-situ) krefjast oftast fullkomins brjóstabrottnáms (mastectomy) ef öryggi á ekki að vera fórnað. Síðustu ár hefur húðþyrmandi brottnám (skin-sparing mastec- tomy) verið viðurkenndur aðgerðarkostur hjá sjúklingum í þessum hópum sem óskað hafa eftir endursköpun bijósts um leið og brott- nám er gert. Húðþyrmandi brottnám innifelur að fjarlægður er vörtubaugur með geirvörtu og um það bil 5 mm af húð umhverfis vörtubaug auk alls brjóstkirtilvefs. Meginhluti brjóstahúðar er þannig skilinn eftir til að nota við endursköpunina. Valkostir þar eru þeir sömu og við síðbúna endursköpun, það er sílíkoninnlegg, latissimus dorsi flipi eða TRAM flipi. Líkega er enginn þáttur í endursköpun brjósts þýðingarmeiri en 280 Læknablaðið 2000/86
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.