Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.07.2000, Qupperneq 12

Læknablaðið - 15.07.2000, Qupperneq 12
r Megrunarlyf við offitu ÁffcXENICAL o r I í s t a t Fyrir þá sem þurfa að léttast Hylki 120mg: 42 stk.; 84 stk. 1 hylki 3svar á dag með mat Flokkun eftir verkun: Lyf við offitu (ATC-fiokkun A08AB01). Lyfjaform og útlit: Hylki, blágrœn með áletrun „ROCHE" og „XENICAL 120”. Virk innihaldsefni: Hvert hylki inniheldur 120 mg orlístat. Lyfhrif: Orlístat er kröftugt, sértœkt og langverkandi lyf sem hamlar virkni lípasa í meltingarveginum. Það verkar í maga og smágirni með því að mynda samgilt tengi við virka serín setið á lípasa í maga og lípasa frá brisi. Óvirka ensímið getur því ekki hýdrólýserað fitu úr fœðunni, á formi þríglýseríða, yfir í fríar fitusýrur og einglýseríð, Ábendingar: Xenical er œtlað ásamt hita- einingaskertu fœði til meðferðar hjá offitu- sjúklingum með þyngdarstuðul (BMI= þyngd(kg)/hœð(m)'hœð(m)) hcerri eða jafn og 30 kg/m2 (BMI) eða yfirþyngdar-sjúklingum (BMI >28 kg/m2) með tengda áhœttuþœtti. Meðferð með orlístati œtti einungis að hefja ef megrunarfœði eingöngu hefur leitt til minnst 2,5 kg þyngdartaps á 4 vikum, Meðferð með orlístati á að hœtta eftir 12 vikur ef sjúklingi hefur ekki tekist að losa sig við a.m.k. 5% af líkamsþyngd sinni reiknað frá upphafi lyfja- meðferðar. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir: Ráðlagður skammtur af orlístati er eitt 120 mg hylki, sem á að taka rétt fyrir, með eða allt að einni klst. eftir máltíð. Sé máltíð sleppt eöa hún án fitu á að sleppa að taka lyfið inn. Sjúklingurinn á að vera á fœði sem inniheldur öll nauðsynleg nœringarefni, en aðeins fœrri hitaeiningar en hans daglega þörf segir til um og œtti um 30% hitaeininganna að vera úr fitu. Mœlt er með ríkulegri neyslu ávaxta og grœnmetis. Daglegri neyslu fitu, kolvetna og próteins skal dreifa á þrjár aðalmáltíðir dagsins. Ekki hefur verið sýnt fram á að orlístat skammtar stœrri en 120 mg þrisvar á dag bœti árangur. Áhrif orlístats leiða til aukningar á fitu í saur, strax 24-48 klukkustundum eftir Inntöku. Þegar meðferð er hœtt verður fituinnlhald hœgða yfirleitt aftur eins og það var fyrir meðferð, innan 48-72 klukkustunda, Upplýsingar um öryggi og verkun eftir 2 ára notkun eru ekki fyrirllggjandi, því cetti meðferð með orlístati ekki að vara lengur en í 2 ár. Sérstakir sjúklingahópar: Áhrif orlístats hjá sjúklingum með lifrar- og/eða nýrnabilun, börnum og öldruðum sjúklingum hafa ekki verið rannsökuð. Börn: Orlístat er ekki œtlað til notkunar handa börnum. Frábendingar: Langvinnt vanfrásogsheilkenni. Galltepþa. Brjóstagjöf. Þekkt ofnœmi fyrir orlístati eða einhverju af innihaldsefnum lyfsins. Orlístat er ekki ráðlagt til notkunar á með- göngu. Sérstök varúð og varúðarreglur varöandi notkun: í klínískum rannsóknum var minnkun iíkamsþyngdar við orlístat meðferð minni hjá sjúklingum með fullorðinssykursýki heldur en hjá sjúklingum sem ekki voru með sykursýki. Þegar orlístat er tekið getur nákvcemt eftirlit með sykursýki lyfjameðferð verið nauðsynlegt. Meðferð með orlístati getur hugsanlega truflað frásog fituleysanlegra vítamína (A, D, E, K). Flestir sjúklinganna, sem fengu meðferð með orlístati í allt að 2 ár í klínískum rannsóknum voru með A-, D-, E- og K-vítamín og betakarótíngildi sem voru innan eðlilegra marka. Til að tryggja fullnœgjandi nœringu á að ráðleggja sjúkl- ingum á megrunarfœði að neyta fœðu sem inniheldur ávexti og grœnmeti og íhuga skal neyslu fjölvítamína. Vítamín á að taka minnst 2 klst. eftir gjöf orlístats eða að kvöldi fyrir svefn. Ráðleggja skal sjúklingum að halda sig við það matarœði sem mœlt er með (sjá kafla um skammta), Hœtfa á meltingartruflunum (sjá kafla um aukaverkanir) getur aukist þegar orlístat er tekið með fituríkri fceðu (t.d. fœða með 2000 hitaeiningum á dag, þar sem > 30% hitaeininga úr fltu jafngildir > 67 g af fitu). Daglegri fituneyslu œtti að dreifa á þrjár aðalmáltíðir dagsins. Ef orlístat er tekið með einstakri fituríkri máltíð, geta líkur á meltingartrufiunum aukist. Milliverkanir: Samtímis gjöf orlístats og fibrata, akarbósa, biguaníða eða lyfja sem valda lystarleysi er ekki ráðlögð ef rannsóknir á milli- verkunum eru ekki fyrirliggjandi. Þegar warfarín eða önnur segavarnarlyf eru gefin ásamt orlístati (stórir skammtar og lang- tíma meðferð) á að fylgjast með blóð- storkugiidum. Engar miliíverkanir við dígoxín, fenýtóín, getnaðarvarnartöflur, nífediþín, nífedipín forðalyf, eða alkóhól hafa komið fram. Pravastatín: Ef orlístat er gefið sjúklingum sem taka pravastatín aukast (skammtaháö) aukaverkanir pravastatíns, þ.á.m. rákvöðvasundrun, vegna aukinnar blóðþéttni pravastatíns. Það getur þurft að breyta skammti pravastatíns. Vítamín og betakarótín: Taka þarf tillit til minnkunar á frásogi D- og E-vítamíns og betakarótíns (sjá kafla um sérstök varúð og varnaðarorð varðand! notkun). Meðganga og brjóstagjöf: Notkun orlístats á meðgöngu er ekki ráðlögð. Enn sem komiö er eru ekki fullnœgjandi uþplýsingar fyrirliggjandi um töku orlístats hjá þunguðum konum til þess að meta hugsanleg áhrif orlfstats á því að valda afbrigðileika í fóstri eða eituráhrifum. Þar sem ekki er vitað hvort orlístat berst í brjóstamjólk á ekki að nota orlístat við brjóstagjöf. Áhrif á akstur og stjórnun vélknúinna tœkja: Ekkert hefur komið fram sem bent gœti til að lyfið hafi áhrif á hoefni til aksturs eða stjórnunar vélknúinna tœkja. Aukaverkanir: Aukaverkanir af völdum orlístats eru aðallega frá meltingarvegi, Á fyrsta með- ferðarári voru algengustu aukaverkanirnar fltublettir frá endaþarmi (27% sjúklinga), hœgðavottur með vindgangi (24% sjúklinga), bráð þörf fyrir hœgðalosun (22% sjúklinga), fltugar/seigfljótandi hœgðir (20% sjúklinga), þunnfljótandi hcegðir (12% sjúklinga), aukin hœgðalosun (11% sjúklinga) og vangeta við stjórn á hœgðum (8% sjúklinga). Tfðni aukaverkana minnkaði með langtíma- notkun orlístats. Aðrar meðferöartengdar aukaverkanir sem komu fram við tíðni > 2% og með tíðni>l% yfir lyfleysu voru: Meltingarfæri: Kviðverkir/ -óþœgindi, vindgangur, þunnfljótandi hœgðir, linar hœgðir, verkir/óþœgindi í endaþarmi, tannkvillar og tannholdskvillar. Öndunarfœri: Sýkingar í efri öndunarfœrum, sýkingar í neðri öndunarfœrum, Miðtaugakerfi: Höfuðverkur. Kynfœri: Tíðatruflanir. Geð: Kvíði. Almennar: Þreyta. Þvagfœri: Sýkingar í þvagrás. Ofskömmtun: Ekki hefur verið greint frá ofskömmtun orlístats. Einstakir 800 mg skammt- ar og endurteknir skammtar allt að 400 mg þrisvar á dag í 15 daga hafa verið prófaðir bœði hjá fólki sem er innan eðlilegra þyngdarmarka og hjá offitusjúklingum, án marktœkra aukaverkana. Auk þess hafa 240 mg skammtar þrisvar á dag verið gefnir offitu- sjúklingum í sex mánuði. Eigi umtalsverð ofskömmtun orlístats sér stað, er mœlt með því að fylgst sé með sjúklingnum í sólarhring. Rannsóknir á dýrum og mönnum hafa bent til þess að öll áhrif á líkam- ann af völdum hömlunar á líþasa gangi hratf til baka. Pakkningar og hamarksverð i smasölu fra 1.4. 2000: Hylki 120 mg: 42 stk. (þynnuþakkað): 5.064 kr.; 84 stk. (þynnupakkað): 8.984 kr. Greiöslufyrirkomulag: Tryggingastofnun rikisins tekur ekki þátt í greiösu lyfsins nema sjúklingur hafi lyfjaskírteini. Elli- og örorkulífeyrisþegar með lyfjaskírteini greiða aö hámarki 1,100 krónur fyrir lyfið, en aðrir að hámarki 3.800 krónur. Afgreiðslutilhögun: Lyflð er lyfseðilsskylt. Heimilt er aö ávísa lyfinu til 100 daga notkunar í senn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.