Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2000, Blaðsíða 31

Læknablaðið - 15.07.2000, Blaðsíða 31
FRÆÐIGREINAR / KVENLÆKNINGAR ferð, en hjá hinum (4,3 (SD=3,2) stig) sem voru í meðferð hjá heimilislækni (t=2,3; df=357; p=0,02). Þunglyndiseinkenni voru einnig meiri hjá konum sem voru á hormónameðferð hjá fæðinga- og kven- sjúkdómalæknum (4,1 (SD=3,0) stig), en hjá hinum (3,4 (SD=2,7) stig) sem voru í meðferð hjá heimilis- læknum, (t=2,3; df=357; p=0,02). Konur sem höfðu farið í legnám voru bæði þung- lyndari (4,4 (SD=3,0) á móti 3,4 (SD=2,7; df=602; p=0,0003) og kvíðnari (5,6 (SD=3,5) á móti 4,4 (SD=3,4; t=2,8; df=602; p=0,005) en þær sem ekki höfðu farið í slíka aðgerð. Upphaflega hafði hormónameðferðinni oftast verið ávísað af kvensjúkdómalækni (67%) en í 29% tilfella af heimilislækni og hjá 4% af öðrum læknum. Kvensjúkdómalæknar höfðu oftar (77%) hafið með- ferð ef leg og eggjastokkar höfðu verið fjarlægð (kí- kvaðrat =5,63; p<0,05). Algengast var að heimilislæknar endurnýjuðu hormónameðferð (56%) svo kvensjúkdómalæknar (40%) og þá aðrir læknar (4%). Hvað varðar fræðslu til kvenna var ekki munur á milli eftir því hvort heimilislæknar eða kvensjúk- dómalæknar hefðu hafið meðferðina. Af 482 konum sögðust 123 (25,5%) ekki hafa fengið fræðslu um áhrif hormóna á tíðahvarfaeinkenni, 121 (25,1%) kvaðst ekki hafa fengið fræðslu um áhrif hormóna á beinþynningu, 183 (40,8%) höfðu ekki fengið fræðslu um áhrif hormónameðferðar á algengi hjarta- og æðasjúkdóma og 172 (38,5%) höfðu ekki fengið fræðslu um áhrif hormóna á krabbamein (tafla IV). Umræða A Stór-Reykavíkursvæðinu bjuggu 956 fimmtugar konur á þeim tíma sem rannsóknin var framkvæmd en 690 (72,2%) tóku þátt í rannsókninni, sem má telja viðunandi þátttökuhlutfall. Þegar þær konur sem svöruðu spurningalistanum voru bornar saman við hinar sem ekki svöruðu kom í ljós að hópamir voru sambærilegir, nema hvað meðal þeirra sem ekki svöruðu voru fleiri ógiftar konur. Meginniðurstöður rannsóknarinnar eru hins vegar ekki háðar hjúskap- arstétt. Meðal slembiúrtaks 30 kvenna sem ekki svör- uðu voru í reynd langflestar tilbúnar til að svara. Við teljum að niðurstöður okkar endurspegli viðhorf og aðstæður fimmtugra kvenna á höfuðborgarsvæðinu að þessu leyti. Tíðahvörf verða að jafnaði við 51 árs aldur hjá konum í iðnvæddum ríkjum Vesturlanda. í þessari rannsókn reyndist rúmlega helmingur fimmtugra kvenna vera með reglulegar blæðingar, en hafa ber í huga að tæplega helmingur kvennanna var á horm- ónalyfjameðferð sem viðheldur blæðingum og af þeim 180 konum sem komnar voru með tíðahvörf hafði leg verið fjarlægt hjá 122. Þau einkenni sem talin eru tengjast breytinga- skeiði og könnuð voru í þessari rannsókn voru hita- Tafla III. Tengsl hormónameðferöar við svefn (%). "" Batnaöi Versnaói Óbreytt Að sofna á kvöldin (20) (3) (77) Uppvaknanir að nóttu (34) (9) (57) Dagsyfja (17) (6) (77) Tafla IV. Hefur þú fengið fræðslu um áhrif hormóna- meðferðar á eftirfarandi atriði? (%). Nei Já Tíðahvarfaeinkenni (17,1) (82,9) Beinþynning (18,8) (81,4) Algengi krabbameins (32,6) (67,4) Hjarta- og æðasjúkdómar (34,6) (65,4) kóf, hjartsláttarköst, svefntruflanir, þreyta, syfja, kvíði og þunglyndi. Tengsl hitakófa og hjartsláttar- kasta við breytingaskeið eru almennt best þekkt (1). Önnur einkennin sem upp eru talin geta gert vart við sig á öðrum aldursskeiðum, en tengsl þeirra við breytingaskeið eru engu að síður vel kunn og mun al- gengari í þessari rannsókn, en hitakóf og hjartsláttar- köst. Hitakóf gera vart við sig hjá þremur fjórðu hluta kvenna á breytingaskeiði (1). Sumar konur fá hitakóf oft á dag meðan aðrar fá þau sjaldnar en einu sinni í mánuði. Hvers vegna fjórðungur kvenna sleppur við þessi einkenni er óþekkt. Nýlegar rannsóknir hafa þó bent á hugsanleg áhrif mataræðis á einkenni breyt- ingaskeiðs (8,24). í þessari rannsókn reyndust þær konur sem fengu oftast hitakóf og hjartslátt síður vera á hormónalyfjameðferð, voru þyngri, höfðu frekar háþrýsting, voru líklegri til að hafa gengist undir brottnám eggjastokka og sváfu mun verr, sem er í samræmi við fyrri rannsóknir (5,15,25). Sýnt hefur verið fram á að tíðahvörf komi fyrr (7) hjá reykingakonum og að þær fái frekar hitakóf (6) á breytingaskeiði, sem ekki reyndist vera í þessari rannsókn. Þessi munur á niðurstöðum gæti skýrst af því að reykingakonur, einkum stórreykingakonur, í þessari rannsókn voru mun líklegri til að vera á hormónalyfjameðferð. Ekki hafa fyrri rannsóknir verið einhlítar varðandi tengsl félagslegra þátta og tíðni hitakófa (11,12,25), en ekki var sýnt fram á tengsl hitakófa og hjúkskaparstéttar, vinnu utan heimilis eða áfengisnotkunar í þessari rannsókn. Svefntruflanir hafa ekki almennt verið taldar sjálf- stætt einkenni breytingaskeiðs. Vitað er að svefngæði versna eftir því sem líður á ævina (26) og að svefntrufl- anir eru algengar hjá miðaldra konum og tengjast iðu- lega breytingaskeiði (4,5). í nýlegri finnskri rannsókn kom í ljós að bættur svefn í kjölfar hormónagjafar tengdist einkum fækkun annarra einkenna breytinga- skeiðs, en þó mætti bæta svefn kvenna með östrógeni, sem ekki höfðu önnur einkenni breytingaskeiðs (15). Einnig hefur verið sýnt fram á að svefntruflanir á breytingaskeiði megi að hluta til rekja til áhrifa östró- gens á stjómun svefns og dægursveiflu (27). Læknablaðið 2000/86 505
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.