Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.2000, Page 51

Læknablaðið - 15.07.2000, Page 51
UMRÆÐA & FRÉTTIR / A F SJÓNARHÓLI STJÓRNAR framfæri við stjórnendur. Nýlega var lögð fyrir stjómarfund mjög umdeild tillaga, sem var að breyt- ast fram á síðustu stundu, þar sem tvær sérgreinar innan lyflækninga, blóðsjúkdómalækningar og lyf- lækningar krabbameina voru færðar frá öðrum grein- um lyflækninga. Það er læknum mikið áhyggjuefni að þessi ráðstöfun var gerð í andstöðu við sviðsstjóra lyflækningasviða bæði við Hringbraut og í Fossvogi, blóðfræðideildina við Hringbraut og blóðsjúkdóma- og krabbameinslækningadeildina í Fossvogi. Auk þess lýstu allir lyflæknar beggja lyflækningadeild- anna, sem til náðist, skriflega andstöðu sinni við þessa aðför. Þá höfðu læknaráðin við Hringbraut og í Fossvogi á fyrri stigum fjallað um tillögur um að kljúfa lyflækningarnar upp með þessum hætti og lýst vilja sínum til þess að það yrði ekki gert, einkum kvað læknaráðið í Fossvogi fast að orði í því efni. Ekki fer sögum af því hvernig umræða þróaðist á stjórnarfundunum en það vafðist lítið fyrir hinum glöggu stjórnarmönnum að átta sig á málinu og tillag- an var samþykkt þótt fundarmenn hafi vart verið búnir að sjá hana í endanlegu formi fyrr en á fundin- um. Þó má ráða af frásögn í Morgunblaðinu 23. júní síðastliðinn að einhver umræða hafi verið um málið þar sem segir að sérstök bókun hafi verið samþykkt: „Að tveimur árum liðnum verði sviðaskipanin endur- skoðuð og sérstaklega lagt mat á kosti og galla skipt- ingar lyflœkningasviðs, staðsetningu barnaskurð- lœkninga og samstjórn skurðstofa. “ Þótt yfirstjórn heilbrigðismála, með dyggum stuðningi löggjafans, hafi smám saman á síðustu ár- um og áratugum verið markvisst að minnka áhrif og ítök lækna í málefnum sjúkrahúsa, þá stendur enn í lögum að læknaráð skuli vera stjórnendum til ráð- gjafar um fagleg málefni. Læknaráð Landspítala-há- skólasjúkrahúss fékk ekki framangreinda tillögu um sviðaskiptingu til umsagnar. Dæmin tvö, sem tekin hafa verið til marks um starfsaðferðir stjórnar Landspítala-háskólasjúkra- húss vekja alvarlegar spurningar. 1. Lítur stjórnin á sig sem stimplara fyrir ákvarðanir, sem teknar eru annars staðar? 2. Getur verið að stjórnina skorti þekkingu og reynslu til að geta stjórnað Landspítala-háskóla- sjúkrahúsi? Ummæli stjórnarformannsins í Morg- unblaðinu 21. júní síðastliðinn bera ekki vott um djúpa þekkingu á starfsemi sjúkrahúsa en þar segir: „í framtíðinni má vonandi búast við að engin starfsemi verði á tveimur stöðum; starfsemin verði annað hvort í Fossvoginum eða á gamla Landspítalanum. “ 3. Er hugsanlegt að stjórnin sé hér að boða nýja stefnu, sem felst í því að sýna læknastéttinni, hvar Davíð keypti ölið? Að lokum A undanfömum áram hafa orðið miklar breytingar í íslenzku þjóðlífi. Losað hefur verið um höft og mið- stýringu á flestum sviðum. Velmegun hefur aukizt og heilsufar þjóðarinnar batnað. Flestir landsmenn eru sammála um að standa vörð um almannatrygginga- kerfið, sem veitir öllum landsmönnum aðgang að há- gæða heilsugæzlu og læknisþjónustu án tillits til efna- hags. Allir eru sammála um að nýta fjármuni al- mannatrygginganna á hagkvæman og réttlátan hátt. Hins vegar er skoðanamunur um rekstrarform, margir eru þeirrar skoðunar að ríkisrekstur sé ekki endilega alltaf bezta leiðin. Hugmyndafræði eins stjómmálaflokks virðist hafa ráðið þróun sjúkrahúsanna í Reykjavík síðustu fimm árin. Ofuráherzla er á miðstýringu og ríkis- rekstur. Starfsemi sjálfstætt starfandi heimilislækna er að deyja út. Nauðsynlegt er að allir sem láta sig þróun sjúkra- húsanna og heilbrigðiskerfisins alls einhverju skipta íhugi, hvort við séum á réttri leið og að átök eins og þau, sem hér er lýst séu réttlætanleg. Læknar verða að halda vöku sinni og vera virkir í umræðu og stefnumótun, þrátt fyrir að stjórnvöld reyni að tak- marka áhrif okkar. Læknablaðið 2000/86 521

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.