Skessuhorn - 27.05.2014, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Skilafrestur smáauglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.480 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar
greiða kr. 2.150. Verð í lausasölu er 600 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Þórhallur Ásmundsson, blaðamaður th@skessuhorn.is
Guðný Ruth Þorfinnsdóttir, blaðamaður gudny@skessuhorn.is
Jóhann Skúli Björnsson, blaðamaður jsb@skessuhorn.is
Magnús Þór Hafsteinsson, blaðamaður mth@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Pálína Alfreðsdóttir palina@skessuhorn.is
Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is
Umbrot:
Ómar Örn Sigurðsson omar@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Framundan er viðburðarík helgi. Ekki einvörðungu að landsmenn kjósi til
sveitarstjórna heldur er sjálfur Sjómannadagurinn á sunnudag. Skessuhorn
í dag ber vitni beggja þessara viðburða. Blaðinu fylgir veglegt innblað til-
einkað sjómönnum og störfum þeirra og þá er rætt við frambjóðendur og
kjósendur í sveitarfélögum á Vesturlandi.
Reyndar finnst mér afleitt að kosningar skuli settar inn á þá helgi sem
sjómenn ættu að fá að eiga í friði. Þeir eiga það skilið. Þótt aðrar atvinnu-
greinar nálgist veiðar og vinnslu í verðmætum talið, þá eru störf sjómanna
fyrr og nú það sem gert hefur Ísland að einu efnaðasta landi heims. Fyr-
ir það ber okkur landkröbbunum að þakka og ekki troða öðrum viðburð-
um eins og kosningum inn á helgina. En svona eru lögin og kannski gerist
þetta ekki nema einu sinni á mannsævi. Hvað sem öðru líður þá óska ég sjó-
mönnum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með daginn og vona
að allir njóti hátíðarinnar.
Kosningarnar á laugardaginn eru um margt ólíkar þeim sem ég hef upp-
lifað. Aldrei hafa þær verið lágstemmdari og aldrei hafa framboð látið eins
lítið fyrir sér fara. Baráttuandinn er einhverra hluta vegna laskaður. Engu
að síður hafa nú allir birt stefnuskrár sínar og eiga kjósendur að geta val-
ið út frá þeim, séu þeir ekki bundnir í klafa genatískrar flokkshollustu. Ef
marka má skoðanakannanir sem birtar hafa verið á liðnum vikum virð-
ast miklar sveiflur í gangi. Sumsstaðar er Framsóknarflokkur að deyja út
á sama tíma og t.d. Sjálfstæðisflokkur er að ná sögulegu fylgi og nægir að
nefna Vestmannaeyjar sem dæmi um það. Þar er öflugur bæjarstjóri vafalít-
ið sá sem mestu veldur. Á öðrum stöðum hins vegar er fall sama flokks fá-
dæma mikið. Flestum atkvæðum tapar flokkurinn í Reykjavík. Hefði mað-
ur einhvern tímann spáð því að Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík væri með
um 20% fylgi í aðdraganda kosninga, hefði maður verið talinn illa gáttað-
ur. Illa virðist auk þess ganga í vígjum eins og Reykjanesbæ og þá er ljóst að
Eyþór Arnalds hefur átt mikið persónufylgi á Selfossi.
Hér á Vesturlandi má gera ráð fyrir talsverðri spennu um úrslit kosn-
inganna. Sjálfstæðisflokkur í Snæfellsbæ er til dæmis að kljást við þrjá and-
stæðinga, tveimur fleiri en venjulega, og ómögulegt að spá fyrir um mátt
þeirra. Fram til þessa hefur framboð Sjálfstæðisflokks haft öruggan meiri-
hluta og þar á bæ er mönnum ekki skemmt yfir fjölda mótframboða. Þá
er engum vafa undirorpið að sjálfstæðismenn ætla sér að ná vopnum sín-
um á nýjan leik í Grundarfirði og Stykkishólmi, höfuðvígi flokksins á Snæ-
fellsnesi. Öll þessi sveitarfélög eru hins vegar það fámenn að stóru miðl-
arnir hafa ekki áhuga á að fjárfesta í skoðanakönnunum til að mæla þró-
unina. Æji, það er bara gott. Ég vona bara að sjómanndagsböllin fari vel
fram á þessum stöðum aðfararnótt sunnudagsins hver sem úrslit kosning-
anna verða. Í Borgarbyggð er á sama hátt ómögulegt að spá fyrir um hvað
gerist. Þar er fjórflokkurinn í boði eins og síðast og því held ég að þar, líkt
og víða, fari fylgi flokkanna mest eftir þeim einstaklingum sem skipa for-
ystu- og baráttusæti. Á Akranesi er sú breyting að Björt framtíð bætist við
flóru framboða og nær framboðið vafalítið að kroppa í fylgi frá flestum
ef ekki öllum hinna flokkanna. Sjálfstæðisflokkur er í vígahug á Akranesi,
þrátt fyrir lágstemmda kosningabaráttu. Það sama má reyndar segja um öll
hin framboðin, menn hafa ekki beitt sér af neinni hörku og eru svona hipp
og kúl. Svona hipp og kúl stjórnmál eru nýlunda. Ég óttast að afleiðingar
þess verði að kjósendur verði einmitt bæði hipp og kúl, mæti illa á kjörstað
og að fjöldi auðra seðla verði í sögulegu hámarki í sveitarstjórnarkosning-
unum 2014. Enn og aftur hvet ég þó alla til að mæta á kjörstað og nýta hinn
stjórnarskrárbundna rétt hvers og eins. Hann er dýrmætur.
Magnús Magnússon
Viðburðahelgi
Opið virka daga 13-18
SVEFNSÓFAR nýjar gerðir
Verð frá: 109.900
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
Þessi mynd var tekin af þriðju hæð
Landsbankahússins á Akranesi sl.
föstudagskvöld af Akratorgi eins og
það leit út þá. Unnið var stíft við
framkvæmdir á torginu enda styttist
nú óðum í að verktaki eigi að skila
því af sér fullbúnu. Samkvæmt verk-
samningi á torgið að vera klárt 10.
júní og stefnt að vígslu á þjóðhátíð-
ardaginn. Verktaki er SE garðyrkja
en hönnuður er Landmótun arki-
tektastofa. Eftir þessa miklu breyt-
ingu er m.a. búið að lækka stallinn
undir styttunni af sjómanninum og
er torgið nú um 1.800 fermetrar að
flatarmáli. Það verður hellulagt að
hluta og hugsað til að þar geti fjöl-
mennar samkomur farið fram. Að
sjálfsögðu er svo hugsun bæjaryfir-
valda að íbúar og gestir njóti torgs-
ins þegar hentar hvort sem er á
skipulögðum mannamótum eða við
önnur tilefni.
mm
Mikið hefur verið að gerast í ferj-
umálum hjá Sæferðum í Stykk-
ishólmi síðustu dagana. Pétur
Ágústsson framkvæmdastjóri Sæ-
ferða segir að í þarsíðustu viku hafi
forsvarsmenn fyrirtækisins talið
sig hafa gengið frá kaupum á hol-
lenskri ferju með um 50% meiri
flutningsgetu en núverandi Bald-
ur. Þegar til kom fengu hollensku
aðilarnir ekki að selja ferjuna þann-
ig að kaupin gengu til baka. Pétur
og hans fólk hjá Sæferðum höfðu
þá skjótar hendur. Þar sem vitn-
eskja var um ferju til sölu í Noregi
var gert kauptilboð í hana. Fólk frá
Sæferðum var fyrir helgina í Nor-
egi að skoða ferjuna en tilboðið var
gert í hana óséða. Nokkrir dag-
ar voru þá til stefnu í að staðfesta
tilboðið og ganga frá kaupum fyrir
forsvarsmenn Sæferða. „Þessi ferja
er mun stærri en Baldur og okkur
er farið að liggja á með að kaupa
nýja ferju þar sem við erum þegar
komnir með kaupanda að Baldri,“
sagði Pétur Ágústsson í samtali við
Skessuhorn síðstliðinn föstudag.
Pétur segir nauðsynlegt að kaupa
stærri ferju, þar sem Baldur anni
ekki lengur flutningunum yfir há-
sumarið. Þá hafi þungaflutning-
ar aukist ekki síst frá suðurfjörðum
Vestfjarða og útlit fyrir aukningu
á þeim sem og bílum og fólki við
aukna komu erlendra ferðamanna
til landsins. „Þetta sumar fer vel af
stað hjá okkur og þegar orðin mik-
il umferð. Það er eiginlega brjál-
að að gera hjá okkur og við erum
full bjartsýni fyrir komandi ferða-
mannasumar,“ segir Pétur hjá Sæ-
ferðum. þá
Frá komu núverandi Baldurs sem er orðinn alltof lítill í dag.
Sæferðir gera tilboð í norska ferju
Nokkur handtök eftir fyrir
vígslu nýs Akratorgs