Skessuhorn - 27.05.2014, Page 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014
I. Kjördeild Akurgerði til og með Grundartún
II. Kjördeild Hagaflöt til og með Reynigrund
III. Kjördeild Sandabraut til og með Þjóðvegur
Kjósendur eru hvattir til að kjósa snemma á kjördag og hafa meðferðis persónuskilríki.
Á kjördag hefur yfirkjörstjórn aðsetur á kjörstað (Brekkubæjarskóla).
Sími yfirkjörstjórnar á kjördag er 433 1315 og 840 4600.
Netfang: yfirkjorstjorn@akranes.is
Yfirkjörstjórn Akraneskaupstaðar
Einar Jón Ólafsson formaður, Hugrún Olga Guðjónsdóttir og Björn Kjartansson.
Bæjarstjórnarkosningar 2014
Kjörfundur vegna bæjarstjórnarkosninga 31. maí 2014 fer fram í Brekkubæjarskóla
og hefst kjörfundur kl. 9.00 og lýkur í síðasta lagi kl. 22.00.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
Snæfellsbær
Ólafsvíkurdeild:
Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum í Ólafsvík. Sími á kjörstað
er 433-9900. Kosning hefst kl. 10.00 og stendur til kl. 22.00
Hellissandsdeild:
Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum á Hellissandi. Sími á
kjörstað er 433-9922. Kosning hefst kl. 10.00 og stendur til kl. 22.00
Staðarsveitar- og Breiðuvíkurkjördeild:
Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum á Lýsuhóli. Sími á kjörstað
er 433-9917. Kosning hefst kl. 11.00 og stendur til kl. 20:00
Yfirkjörstjórn Snæfellsbæjar
Auglýsing um kjörfundi
vegna sveitarstjórnarkosninganna
laugardaginn 31. maí 2014
Sumarstörf á Silfurtúni
Óskað er eftir starfsfólki á Dvalar- og hjúkrunarheimilið Silfurtún
í Búðardal í afleysingarstörf í sumar og fram á haust 2014.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum launanefndar
Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Eyþór J. Gíslason rekstrarstjóri
í síma 898 1251.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
Sólveig Bláfeld tók síðastliðinn
miðvikudag við lyklum að versl-
uninni Virkinu í Rifi úr höndum
þeirra hjóna Sturlu Fjeldsted og
Kristínar Þórðardóttir. ,,Verslun-
in verður rekin með svipuðu sniði
og hefur verið undanfarin ár. Það
verða svo sem engar brjálæðislegar
breytingar,“ segir Sólveig í samtali
við Skessuhorn og bætir við: „Það
er svo sem aldrei að vita hvað mað-
ur gerir með lækkandi sól í haust,“
segir Sólveig brosandi.
Sú breyting verður nú að bygg-
ingavöruversluninni í Virkinu verð-
ur lokað. Sólveig vill koma þeim
skilaboðum til viðskiptavina sinna
að túnfiskssalatið hennar Stínu
verður á sýnum stað. „Það héldu
margir að það hyrfi úr hillunum,
en það salat hefur notið mikilla vin-
sælda,“ segir Sólveig Bláfeld.
af
Þessa dagana standa yfir tökur á
þýskri sjónvarpsmynd á bænum
Vík í Hvalfjarðarsveit. Tökum á
myndinni verður svo haldið áfram
í Stykkishólmi og nágrenni í byrj-
un júní og færir upptökufólk sig svo
víðar um land í sumar, m.a. til Vík-
ur í Mýrdal. Tvö íslenskt fyrirtæki
eru tengiliðir við aðilana sem vinna
að tökunum fyrir þýska sjónvarpið,
það er Eskimó ehf. og True North
ehf. Eskimó hefur auglýst eftir leik-
urum fyrir tökurnar í Stykkishólmi
og nágrenni. Helga Margrét Reyk-
dal hjá True North segir að kvik-
myndin sé í fullri lengd en aðeins til
sýningar í sjónvarpi. Hún fjallar um
þýska konu sem laðast til Íslands
og lendir þar í ýmsum ævintýrum
í kynnum sínum við land og þjóð.
Meðal íslenskra leikara í myndinni
er sú gamalreynda leikkona Krist-
björg Kjeld. Tökurnar núna í Vík í
Hvalfjarðarsveit eru eingöngu inn-
an dyra en í Stykkishólmi og ná-
grenni verður myndað utan dyra
og er stílað upp á gott veður dagana
2. og 3. júní.
þá
Verkefnið „Tökum til hendinni“
fór fram í Borgarnesi fyrr í mán-
uðinum. Þar voru íbúar, félaga-
samtök, stofnanir og fyrirtæki
í Borgarnesi hvött til að taka til
hendinni og fegra sitt nánasta
umhverfi, svo sem að tína rusl,
Sólveg Bláfeld, í miðju, tekur hér formlega við rekstri Virkisins af þeim hjónum
Sturlu Fjelsted og Kristínu Þórðardóttur.
Nýr rekstraraðili að Virkinu í Rifi
Bílar og búnaður þýska kvikmyndatökufólsins við Vík í Hvalfjarðarsveit.
Tökur á þýskri sjónvarpsmynd
á Vesturlandi
Umhverfið fegrað í
kringum menntaskólann
Þóra Árnadóttir mokar í beðin og
Agnes Hansen mundar klippurnar.
planta trjám, mála og dytta að
eigum sínum. Sveitarfélagið kom
fyrir gámum þar sem hægt var að
losa sig við garðaúrgang. Skólarn-
ir í Borgarnesi, Lionsklúbburinn
Agla og Hollvinasamtök Borgar-
ness tóku þátt í verkefninu. Þá
veittu fyrirtæki á svæðinu afslátt
af vörum tengdum vorverkum.
Starfsfólk Menntaskóla Borg-
arfjarðar var meðal þeirra sem
fóru og tóku til hendinni í ná-
grenni skólans. Fengnir voru
steinsteyptir hringir í Loftorku til
að verja birkiplöntur sem aðskilja
bílastæði skólans og Hyrnutorgs.
Þrjár myndarlegar birkiplöntur
frá Sædísi í gróðrarstöðinni
Gleym mér ei voru gróðursett-
ar og beð næst Borgarbrautinni
hreinsað og lagfært. Að auki kom
Agnes Hansen garðyrkjufræð-
ingur og kennari með plöntur
sem settar voru í beðið. „Það er
von okkar í MB að haldið verði
áfram á þessari braut og að fyrir-
tæki og einstaklingar haldi áfram
að fegra umhverfi sitt. Loftorku,
Borgarbyggð, Gleym mér ei og
öðrum sem komu að átakinu við
menntaskólann eru færðar mikl-
ar þakkir,“ segir í frétt á vef skól-
ans.
grþ/ Ljósm. MB.
Veronika Sigurvinsdóttir þjónustu-
fulltrúi, Agnes Hansen dönskukennari
og Þóra Árnadóttir náttúrufræðikenn-
ari höfðu veg og vanda af gróður-
setningunni við MB.
Kjörfundur vegna sveitarstjórnarkosninga í Grundarfirði
verður í samkomuhúsinu laugardaginn 31. maí 2014
Kjörfundur stendur yfir frá kl. 10:00 til kl. 22:00
Kjósendur þurfa að framvísa persónuskilríkjum
Talning atkvæða fer fram fyrir opnum dyrumí samkomuhúsinu
að kjörfundi loknum oggefst kjósendum kostur á að fylgjast
með eftir því sem húsrúm leyfir
Kjörstjórn Grundarfjarðarbæjar S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
Kjörfundur vegna
sveitarstjórnarkosninga 2014