Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2014, Side 18

Skessuhorn - 27.05.2014, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014 I. Kjördeild Akurgerði til og með Grundartún II. Kjördeild Hagaflöt til og með Reynigrund III. Kjördeild Sandabraut til og með Þjóðvegur Kjósendur eru hvattir til að kjósa snemma á kjördag og hafa meðferðis persónuskilríki. Á kjördag hefur yfirkjörstjórn aðsetur á kjörstað (Brekkubæjarskóla). Sími yfirkjörstjórnar á kjördag er 433 1315 og 840 4600. Netfang: yfirkjorstjorn@akranes.is Yfirkjörstjórn Akraneskaupstaðar Einar Jón Ólafsson formaður, Hugrún Olga Guðjónsdóttir og Björn Kjartansson. Bæjarstjórnarkosningar 2014 Kjörfundur vegna bæjarstjórnarkosninga 31. maí 2014 fer fram í Brekkubæjarskóla og hefst kjörfundur kl. 9.00 og lýkur í síðasta lagi kl. 22.00. S K E S S U H O R N 2 01 4 Snæfellsbær Ólafsvíkurdeild: Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum í Ólafsvík. Sími á kjörstað er 433-9900. Kosning hefst kl. 10.00 og stendur til kl. 22.00 Hellissandsdeild: Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum á Hellissandi. Sími á kjörstað er 433-9922. Kosning hefst kl. 10.00 og stendur til kl. 22.00 Staðarsveitar- og Breiðuvíkurkjördeild: Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum á Lýsuhóli. Sími á kjörstað er 433-9917. Kosning hefst kl. 11.00 og stendur til kl. 20:00 Yfirkjörstjórn Snæfellsbæjar Auglýsing um kjörfundi vegna sveitarstjórnarkosninganna laugardaginn 31. maí 2014 Sumarstörf á Silfurtúni Óskað er eftir starfsfólki á Dvalar- og hjúkrunarheimilið Silfurtún í Búðardal í afleysingarstörf í sumar og fram á haust 2014. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum launanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veitir Eyþór J. Gíslason rekstrarstjóri í síma 898 1251. S K E S S U H O R N 2 01 4 Sólveig Bláfeld tók síðastliðinn miðvikudag við lyklum að versl- uninni Virkinu í Rifi úr höndum þeirra hjóna Sturlu Fjeldsted og Kristínar Þórðardóttir. ,,Verslun- in verður rekin með svipuðu sniði og hefur verið undanfarin ár. Það verða svo sem engar brjálæðislegar breytingar,“ segir Sólveig í samtali við Skessuhorn og bætir við: „Það er svo sem aldrei að vita hvað mað- ur gerir með lækkandi sól í haust,“ segir Sólveig brosandi. Sú breyting verður nú að bygg- ingavöruversluninni í Virkinu verð- ur lokað. Sólveig vill koma þeim skilaboðum til viðskiptavina sinna að túnfiskssalatið hennar Stínu verður á sýnum stað. „Það héldu margir að það hyrfi úr hillunum, en það salat hefur notið mikilla vin- sælda,“ segir Sólveig Bláfeld. af Þessa dagana standa yfir tökur á þýskri sjónvarpsmynd á bænum Vík í Hvalfjarðarsveit. Tökum á myndinni verður svo haldið áfram í Stykkishólmi og nágrenni í byrj- un júní og færir upptökufólk sig svo víðar um land í sumar, m.a. til Vík- ur í Mýrdal. Tvö íslenskt fyrirtæki eru tengiliðir við aðilana sem vinna að tökunum fyrir þýska sjónvarpið, það er Eskimó ehf. og True North ehf. Eskimó hefur auglýst eftir leik- urum fyrir tökurnar í Stykkishólmi og nágrenni. Helga Margrét Reyk- dal hjá True North segir að kvik- myndin sé í fullri lengd en aðeins til sýningar í sjónvarpi. Hún fjallar um þýska konu sem laðast til Íslands og lendir þar í ýmsum ævintýrum í kynnum sínum við land og þjóð. Meðal íslenskra leikara í myndinni er sú gamalreynda leikkona Krist- björg Kjeld. Tökurnar núna í Vík í Hvalfjarðarsveit eru eingöngu inn- an dyra en í Stykkishólmi og ná- grenni verður myndað utan dyra og er stílað upp á gott veður dagana 2. og 3. júní. þá Verkefnið „Tökum til hendinni“ fór fram í Borgarnesi fyrr í mán- uðinum. Þar voru íbúar, félaga- samtök, stofnanir og fyrirtæki í Borgarnesi hvött til að taka til hendinni og fegra sitt nánasta umhverfi, svo sem að tína rusl, Sólveg Bláfeld, í miðju, tekur hér formlega við rekstri Virkisins af þeim hjónum Sturlu Fjelsted og Kristínu Þórðardóttur. Nýr rekstraraðili að Virkinu í Rifi Bílar og búnaður þýska kvikmyndatökufólsins við Vík í Hvalfjarðarsveit. Tökur á þýskri sjónvarpsmynd á Vesturlandi Umhverfið fegrað í kringum menntaskólann Þóra Árnadóttir mokar í beðin og Agnes Hansen mundar klippurnar. planta trjám, mála og dytta að eigum sínum. Sveitarfélagið kom fyrir gámum þar sem hægt var að losa sig við garðaúrgang. Skólarn- ir í Borgarnesi, Lionsklúbburinn Agla og Hollvinasamtök Borgar- ness tóku þátt í verkefninu. Þá veittu fyrirtæki á svæðinu afslátt af vörum tengdum vorverkum. Starfsfólk Menntaskóla Borg- arfjarðar var meðal þeirra sem fóru og tóku til hendinni í ná- grenni skólans. Fengnir voru steinsteyptir hringir í Loftorku til að verja birkiplöntur sem aðskilja bílastæði skólans og Hyrnutorgs. Þrjár myndarlegar birkiplöntur frá Sædísi í gróðrarstöðinni Gleym mér ei voru gróðursett- ar og beð næst Borgarbrautinni hreinsað og lagfært. Að auki kom Agnes Hansen garðyrkjufræð- ingur og kennari með plöntur sem settar voru í beðið. „Það er von okkar í MB að haldið verði áfram á þessari braut og að fyrir- tæki og einstaklingar haldi áfram að fegra umhverfi sitt. Loftorku, Borgarbyggð, Gleym mér ei og öðrum sem komu að átakinu við menntaskólann eru færðar mikl- ar þakkir,“ segir í frétt á vef skól- ans. grþ/ Ljósm. MB. Veronika Sigurvinsdóttir þjónustu- fulltrúi, Agnes Hansen dönskukennari og Þóra Árnadóttir náttúrufræðikenn- ari höfðu veg og vanda af gróður- setningunni við MB. Kjörfundur vegna sveitarstjórnarkosninga í Grundarfirði verður í samkomuhúsinu laugardaginn 31. maí 2014 Kjörfundur stendur yfir frá kl. 10:00 til kl. 22:00 Kjósendur þurfa að framvísa persónuskilríkjum Talning atkvæða fer fram fyrir opnum dyrumí samkomuhúsinu að kjörfundi loknum oggefst kjósendum kostur á að fylgjast með eftir því sem húsrúm leyfir Kjörstjórn Grundarfjarðarbæjar S K E S S U H O R N 2 01 4 Kjörfundur vegna sveitarstjórnarkosninga 2014
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.