Skessuhorn - 27.05.2014, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014
Full búð af nýjum
og glæsilegum
gjafavörum
Þjóðbraut 1- Akranesi - sími 431 3333 – modelgt@internet.is
„Það er ágætt að gera hjá okkur
og við sjáum núna verkefni mun
lengra fram í tímann en fyrir svona
ári. Við erum með mörg góð verk-
efni í dag og verkefnastaðan er
ágæt,“ segir Steingrímur Jónsson
rekstarstjóri hjá BM-Vallá á Akra-
nesi. Hann segir stærstu verk-
efnin um þessar mundir hús sem
tengjast þeirri uppsveiflu sem er
í ferðaþjónustunni í landinu, sem
og framleiðsla eininga í byggingu
nýrrar bækistöðvar vöruflutninga-
fyrirtækisins ÞÞÞ við Smiðjuvelli á
Akranesi sem er að hefjast um þess-
ar mundir. Þá hefur BM-Vallá m.a.
framleitt loftaeiningar og stigapalla
í 16 hæða hótel sem er að rísa við
Höfðatorg í Reykjavík og er um
60% af því verkefni lokið.
BM-Vallá á Akranesi er sem
kunnugt er framleiðslufyrirtæki á
Smellinn húseiningum en Stein-
grímur segir að það færist í vöxt
að viðskiptavinir óski eftir að fyrir-
tækið afli tilboða í allt efni í bygg-
inguna í gegnum sína birgja. Síð-
asti vetur var viðburðaríkur og er-
ilssamur hjá starfsmönnum BM-
Vallá á Akranesi, sem framleiddi þá
m.a. einingar í 300 fermetra gesta-
stofu við Reynisfjöru, þar sem hvað
flestir ferðamenn koma á ári hverju.
Margar stórar rútur komu þar í
vetur meðan gestastofan reis þótt
veður væru misjöfn. Þar var not-
að perlugrjót úr fjörunni og steypt
í ytri klæðningu veggjanna þann-
ig að húsið fellur vel í umhverf-
ið. Hinum megin við fjallið í Vík
í Mýrdal eru þrjú fyrirtæki í sam-
einingu að bregðast við húsnæðis-
eklu með byggingu tveggja fimm
íbúða raðhúsa ásamt bílgeymslum.
BM-Vallá framleiðir Smellinn ein-
ingar í þau hús sem og í nýtt 12
herbergja hótel sem byrjað var að
reisa á bænum Lýsudal í Staðar-
sveit í aprílbyrjun og tekið verður í
notkun nú í júníbyrjun. Einnig má
nefna fyrirliggjandi verkefni við
stækkun Lækningalindar fyrir Bláa
Lónið, stækkun íþróttamiðstöðv-
ar í Grindavík og einingar í raðhús
og einbýli á Akranesi. Steingrímur
segir að góð verkefnastaða nú hafi
leyft ráðningu þriggja nýrra starfs-
manna og einnig þriggja í sumar-
afleysingar en það hafi ekki gerst í
nokkur ár. Um 25 starfsmenn eru
nú hjá BM-Vallá á Akranesi.
Sem dæmi um mikinn bygging-
arhraða þegar byggt er með Smell-
inn+, eins og þessi útfærsla heit-
ir sem hótelið í Lýsudal var byggt
eftir, þá reis það rúmlega fokhelt á
1400 vinnustundum. Kerfið bygg-
ir á því að allar lagnir eru í ein-
ingunum og steypa lágmörkuð á
byggingastað. Gólfplötur eru heil-
steyptar með einangrun, með til-
búinni gólfhitalögn og niðurföll-
um. Einingar eru rafsoðnar saman
og þansteypa sett í raufar til þétt-
ingar og hljóðeinangrunar. Þá mun
BM-Vallá m.a. framleiða þess-
ar plúseiningar fyrir byggingu 13
herbergja hótel á Þórbergsslóðum
ásamt setustofu austur í Suðursveit
núna í vor. þá
Á aðalfundi Vitans, félags áhuga-
ljósmyndara á Akranesi, sem hald-
inn var 22. maí sl. var Gunnar V.
Andrésson fréttaljósmyndari gerð-
ur að heiðursfélaga. „Gunnar hef-
ur starfað sem fréttaljósmynd-
ari í hartnær 50 ár og hefur skráð
sögu þjóðar á eftirtektarverðan
hátt. Gunnar hefur sýnt Vitanum,
félagi áhugaljósmyndara á Akra-
nesi, mikinn velvilja og áhuga og
vilja félagsmenn þakka honum fyr-
ir með útnefningu þessari. Það er
okkur mikill heiður að hafa einn
fremsta fréttaljósmyndara landsins
í okkar röðum,“ segir í tilkynningu
frá stjórn Vitans, félags áhuga-
ljósmyndara á Akranesi. Stjórnar-
mennirnir Jónas, Bjarki, Þorvaldur
og Gunnar, eru hér ásamt Gunnari
V Andréssyni.
mm
„Ég var búin að stefna að þessu
lengi og varð mjög glöð þegar ég
frétti að ég hefði fengið háskóla-
styrkinn. Það verður spennandi að
fara út en jafnframt mun ég sakna
stelpnanna í Snæfelli. Það er þó
gott að fara núna fyrst við náðum
saman takmarkinu síðasta vetur að
verða Íslandsmeistarar,“ segir Hild-
ur Björg Kjartansdóttir körfuknatt-
leikskona í Stykkishólmi sem er á
leið í háskóla í Texas í Bandaríkjun-
um. Þar mun hún nema efnafræði
næstu fjögur árin ásamt því að spila
með liði skólans í sterki háskóla-
deild. Hildur fer út til Texas núna á
næstunni til að kynna sér aðstæður
en flyst síðan út í ágústmánuði rétt
áður en skólinn byrjar.
Hildur hefur þrátt fyrir ungan
aldur verið í lykilhlutverki í Snæ-
fellsliðinu síðustu vetur, en hún
verður tvítug seinna á árinu. Hild-
ur Björg, nafna hennar Sigurðar-
dóttur og Chynna Brown sú banda-
rísku, eru þær sem yfirleitt drógu
vagninn í góðu Snæfellsliði síð-
asta vetur. Hildur Björg hefur spil-
að fjóra leiki með A-landsliðinu og
rúmlega tíu leiki með yngri lands-
liðum. „Félagi minn í landsliðinu,
María Ben Erlingsdóttir frá Kefla-
vík, hefur verið úti í Texas og hún
hefur sagt mér þar frá aðstæðum
og gefið mér góð ráð. Mér skilst
að þarna sé mjög gott að vera og
hlakka ég til. Það verður svo gam-
an að fara í heimsókn þangað núna
á næstunni og kynnast aðstæðum af
eigin raun. Ég veit svo að Snæfells-
liðið mun spjara sig vel án mín en
vissulega mun ég sakna stelpanna,“
segir Hildur Björg. þá
Vortónleikar Tónlistarfélags Borg-
arfjarðar verða í Landnámssetrinu í
Borgarnesi fimmtudagskvöldið 29.
maí. Hljómsveitin Borgfjörð leik-
ur fjölbreytta djass- og dægurlaga-
tónlist. Hljómsveitina skipa söng-
konan Aldís Fjóla Borgfjörð, Birg-
ir Bragason bassi, Birgir Þórisson
hljómborð, Friðrik Jónsson gít-
ar, Halldór Sveinsson fiðla og Ingi
Björn Róbertsson trommur. Sér-
stakur gestur á tónleikunum verð-
ur gítarleikarinn Gunnar Ringsted.
Meðlimir hljómsveitarinnar rekja
flestir ættir sínar í Borgarfjörðinn.
Tónleikarnir verða fimmtu-
dagskvöldið 29. maí og hefjast kl.
21.00. Aðgangseyrir er 1500 krón-
ur, 1000 krónur fyrir eldri borgara
og frítt fyrir meðlimi í Tónlistarfé-
lagi Borgarfjarðar.
-fréttatilkynning
Hildur Björg Kjartansdóttir körfu-
knattleikskonan sterka úr Hólminum
fékk háskólastyrk og er á leið til
Bandaríkjanna.
Hildur Björg á leið
í háskóla í Texas
Gunnar gerður að
heiðursfélaga Vitans
Tónleikar Borgfjörð í
Landnámssetri Íslands
Alfreð Þór Alfreðsson verksmiðjustjóri í BM Vallá á Akranesi, Steingrímur Jónsson
rekstrarstjóri og Bergþór Helgason yfirmaður hönnunardeildar.
Góð verkefnastaða hjá
BM-Vallá Smellinn á Akranesi
Unnið að framleiðslu Smellin eininga.