Skessuhorn - 27.05.2014, Qupperneq 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014
Dagbjört Inga Grétarsdóttir hlaut
á laugardag viðurkenningu fyrir
hæstu einkunn á stúdentsprófi hjá
Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi. Hún hlaut einnig verðlaun fyr-
ir ágætan árangur í raungreinum,
stærðfræði, íslensku, sögu og þýsku.
Aðspurð um hver galdurinn sé við
að ná svona góðum árangri segir
hún að það skipti mestu máli að vera
duglegur að læra. „Ég læri jafnt og
þétt yfir allan veturinn. Skila öllum
verkefnum og læri vel fyrir hluta-
próf, þó þau gildi bara 5% af loka-
einkunn. Ég lít þannig á að ef ég er
búin að læra vel fyrir þau, þá er auð-
veldara að læra fyrir lokaprófið. Það
verður eins og upprifjun.“ Dagbjört
Inga segir góða kennslu og skóla-
lífið almennt standa upp úr eftir
námsferilinn í FVA. Hún veiktist af
einkirningasótt árið 2012 og hefur
glímt við mikil veikindi síðan sem
hafa haft áhrif á líf hennar og þar
á meðal skólagönguna. „Ég ætlaði
að útskrifast fyrir ári síðan en veikt-
ist 2012. Það gerði síðasta árið dá-
lítið erfitt en ég var sem betur fer
vel sett fyrir veikindin,“ segir hún.
Hún segir kennarana hafa sýnt sér
mikinn skilning og er þeim þakklát
fyrir það. Dagbjört Inga byrjaði að
vinna hjá HB Granda á Akranesi sl.
mánudag. „Ég hef unnið þar und-
anfarin sumur og stefni á að vinna
þar í sumar líka,“ segir Dagbjört
Inga.
Finnst allt skemmtilegt
Aðspurð um áhugamálin seg-
ist hún hafa haft mestan áhuga á
hreyfingu og næringarfræði fyr-
ir veikindin. Í dag geti hún því
miður ekki sinnt þeim áhuga-
málum og hafi því mest gam-
an af því að læra nýja hluti. „Ég
reyni að taka því rólega núna en
ég er ekki þessi týpa sem nenni
að liggja uppi í sófa. Ég hef rosa-
lega gaman af því að ferðast og
skoða náttúruna. Við eigum hús-
bíl og erum að byggja bústað
þannig að við erum alltaf eitt-
hvað á ferðinni,“ segir Dagbjört
Inga. Hún hefur einnig gaman
af námi og flestu námsefni. „Mér
finnst í raun allt skemmtilegt og
leit þannig á í skólanum að fyrst
ég þurfti að læra hlutina á ann-
að borð, var alveg eins gott að
hafa gaman af þeim,“ segir hún.
Dagbjört Inga setur stefnuna á að
fara í áframhaldandi nám í haust.
„Ég fer vonandi í háskólanám í
haust en fer ekki nema heilsan
verði betri. Ég ætlaði alltaf beint
í háskólanám en ég vil ekki gera
það nema geta stundað námið að
fullum krafti. Ég er sterk í raun-
greinum og stærðfræði og lang-
ar að nýta það í meira námi. Ég
hef einnig gaman að þrívíddar-
hönnun og er sterk í henni. Ég er
því að velta því fyrir mér að fara
í heilbrigðisverkfræði hjá HR.
Ég fékk einmitt nýnemastyrk
frá þeim á laugardaginn og ætla
í nám þangað. Ég stefni á áfram-
haldandi nám um leið og heils-
an verður betri. Ég ætla fyrst að
ná heilsu og leggja svo af stað í
næsta áfanga,“ segir dúxinn Dag-
björt Inga að lokum. grþ
Laugardaginn 24. maí fór fram
brautskráning frá Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi. Að venju
fór útskriftarathöfnin fram á sal
skólans að viðstöddum aðstand-
endum nýstúdenta, starfsfólki
skólans og öðrum gestum. Jens B.
Baldursson aðstoðarskólameist-
ari flutti annál vorannar 2014 og
Gunnlaug Birta Þorgrímsdóttir ný-
stúdent flutti ávarp fyrir hönd út-
skriftarnema. Alls brautskráðust 53
nemendur að þessu sinni; 18 stúlk-
ur og 35 piltar. Í hópnum eiga 39
lögheimili á Akranesi, tíu nemend-
ur eru frá öðrum stöðum á Vestur-
landi og fjórir eiga lögheimili utan
fjórðungsins.
Heiðmar Eyjólfsson, Hjördís
Tinna Pálmadóttir, Kristinn Bragi
Garðarsson og Sigurlaug Rún
Hjartardóttir, sem öll eru nem-
endur við skólann, sáu um tón-
listarflutning við athöfnina. Reg-
ína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri af-
henti námsstyrk Akraneskaupstað-
ar. Hann skiptist jafnt milli tveggja
umsækjenda, þeirra Ahmad Hus-
am Ahmad Al Hassan og Dagbjart-
ar Ingu Grétarsdóttur.
Margar viðurkenningar
veittar
Á athöfninni voru margir nýstúd-
entar verðlaunaðir fyrir góðan
námsárangur. Veitt var viðurkenn-
ing úr sjóði Guðmundar P. Bjarna-
sonar fyrir framúrskarandi náms-
árangur. Hana hlaut Sólveig Rún
Samúelsdóttir sem útskrifaðist með
stúdentspróf af náttúrufræðibraut
21. desember síðastliðinn. Viður-
kenningu skólans fyrir bestan náms-
árangur á stúdentsprófi á vorönn
2014 hlaut Dagbjört Inga Grétars-
dóttir. Að auki fékk hún verðlaun
fyrir ágætan árangur í raungrein-
um, stærðfræði, íslensku, sögu og
þýsku. Verðlaunin gáfu Háskólinn í
Reykjavík, Íslandsbanki á Akranesi
og Þýska sendiráðið.
Verðlaun Kötlu Hallsdóttur og
Ínu Dóru Ástríðardóttur fyrir best-
Góð kennsla stendur uppúr
Dagbjört Inga Grétarsdóttir ásamt Atla Harðarsyni skólameistara
FVA. Ljósm. Guðni Hannesson.
Útskrift úr Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi
an árangur í verklegum greinum
á burtfararprófi af iðnbraut hlaut
Lárus Stefán Ingibergsson.
Björn Þór Björnsson og Tómas
Alexander Árnason hlutu verðlaun
fyrir góð störf að félags- og menn-
ingarmálum en það var Rótarý-
klúbbur Akraness og Minningar-
sjóður Karls Kristins Kristjánsson-
ar sem gáfu verðlaunin.
Gylfi Sigurðsson fékk viður-
kenningu fyrir ágætan árangur í
sérgreinum á námsbraut í vélvirkj-
un frá Elkem Ísland.
Sigríður Lína Daníelsdóttir fékk
viðurkenningu fyrir ágætan árang-
ur í erlendum tungumálum. Verð-
launin gaf deild erlendra tungu-
mála, bókmennta og málvísinda við
Háskóla Íslands.
Silvía Sif Ólafsdóttir hlaut verð-
laun fyrir ágætan árangur í raun-
greinum, íslensku, ensku, dönsku
og frönsku. Verðlaunin gáfu Gáma-
þjónusta Vesturlands, Landsbank-
inn á Akranesi, Eymundsson á
Akranesi og Norðurál.
Arianna Milighetti hlaut viður-
kenningu fyrir góðan námsárangur
frá Fjölbrautaskóla Vesturlands.
Í lokin ávarpaði Atli Harðar-
son skólameistari útskriftarnem-
endur og óskaði þeim til hamingju.
Hann og sagðist vona að þeir héldu
áfram að læra og þroskast og hefðu
dugnað, hugrekki og vit til að nota
menntun sína þannig að hún yrði
öðru fólki til gagns og gleði. Að
lokinni athöfn þáðu gestir veiting-
ar í boði skólans.
grþ/fva.is / Ljósm. Guðni
Hannesson.
Útskriftarhópurinn ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara.
Fríður hópur fólks útskrifaðist frá skólanum.
Námsstyrkur Akraneskaupstaðar
skiptist jafnt milli tveggja umsækj-
enda, þeirra Ahmad Husam Ahmad
Al Hassan, sem hér er, og Dagbjartar
Ingu Grétarsdóttur.