Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2014, Page 31

Skessuhorn - 27.05.2014, Page 31
31ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014 Einnig leigjum við bíl með fjórhjóladrifi fyrir allt að 11 farþega með bílstjóra, tilvalið fyrir gönguhópa Brákarbraut 5 - Borgarnesi - 437 1300 / 692 5525 / 897 6649 Leigjum fólksbíla og jeppa S K E S S U H O R N 2 01 4 Miðvikudaginn 28. maí kl. 20:30 að Stillholtí 16-18 Tónlist, spjall, grín og glens. Hamborgarar á grillinu og kaldur á kantinum. 31. maí kl. 14-18 í Tónbergi 31. maí kl. 20-01 í Garðakaffi Kosningakaffi Kosningavaka Akstur á kjördag, uppl. í síma 431-2004 Allir velkomnir Karlakvöld Samfylkingarinnar Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Flott föt fyrir flottar konur stærðir 38-58 FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ www.frumherji. is Stykkishólmur 2014 Bifreiðaskoðun verður hjá Bílaverkstæðinu Dekk & smur, Nesvegi 5 Fimmtudaginn 5. júní Föstudaginn 6. júní Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00 Tímapantanir í síma 438 – 1385 SKE S S U H O R N 2 0 1 4 Freisting vikunnar Það kemur fyrir að fólk hafi eng- an tíma til stórræða í eldhúsinu. Stundum er það einfaldlega þann- ig að maður nennir ekki að elda. Þá er ótrúlega sniðugt að minnka flækjustigið með því að fá sér góða en jafnframt einfalda samloku. Í þessari viku erum við í einfald- leikanum og birtum „uppskrift“ af samloku sem allir geta gert. Þetta gerist ekki öllu einfaldara, sem getur hentað ágætlega, til dæm- is á góðviðrisdögum þegar best er að halda sig sem mest úti. Sam- lokurnar eru bestar nýgerðar en það má að sjálfsögðu pakka þeim í tösku og nota sem nesti. Hráefni: Steikt beikon, stökkt Brauð (hvítt brauð eða annað samlokubrauð) Tómatar Grænt salat (lambhagasalat eða annað) Majones (Hellman‘s majones hentar til dæmis vel enda bragð- gott) Aðferð: Ristið brauðið á pönnu eða í brauðrist. Smyrjið vænu lagi af góðu majonesi á brauðið, ekki spara það. Setjið svo nóg af sal- ati, nokkrar sneiðar af tómöt- um og nóg af beikoni og lokið samlokunni. Auðvelt er að leika sér með þetta og bæta við öðru grænmeti eða saxaðri steinselju. Það er samt sem áður óþarfi því samlokan er ótrúlega góð akkúr- at svona. Verði ykkur að góðu! BLT samloka Á dögunum kom út fjölskyldubók- in „Verum græn. Ferðalag í átt að sjálfbærni,“ eftir Ásthildi Björgu Jónsdóttur, myndlistarkennara og lektor við listkennsludeild Listahá- skóla Íslands og kollega hennar Ell- en Gunnarsdóttur og Gunndísi Ýr Finnbogadóttur. Bókin er sú fyrsta sinnar tegundar á íslensku. Í kynn- ingu frá Eddu útgáfu segir að í bók- inni sé börnum og fjölskyldum þeirra leiðbeint með skemmtilegum hætti við að tileinka sér sjálfbærni og grænan lífsstíl á nýjan og skemmti- legan hátt. Skessuhorn heyrði í Ást- hildi, einum af höfundi bókarinnar. Ásthildur er Borgfirðingur, uppal- in í Brennu í Lundarreykjadal. Hún segir bókina ganga út á sjálfbærni og grænan lífstíl. „Marmið bókarinnar er að fjalla um málefni sem stuðla að því að þroska hvern einstakling sem virkan borgara sem er meðvitaður um eigin gildi, viðhorf og tilfinning- ar gagnvart þeim þáttum sem lúta að sjálfbærum lífsstíl. Að vekja alla til umhugsunar um að þeir geti lagt sitt af mörkum til að samfélag okkar verði sjálfbærara,“ segir Ásthildur. Hún segir bókina vera fjölskyldubók sem gæti verið sniðug til að heim- ili og skóli vinni saman. „Sjálfbærni er ein af sex stoðum í allri menntun og skólarnir eru að gera margt gott í þeim efnum. En það er gott fyr- ir heimilin að fá líka eitthvað tæki í hendurnar til að vinna með.“ Leggja áherslu á núvit- und og samkennd Hún segir að lögð sé mikil áhersla á núvitund í bókinni, hvað sé hægt að gera hér og nú til að stuðla að sjálf- bærari lífsstíl. „Þetta snýst líka um að tengja hið góða líf sem við lif- um við takmörk náttúrunnar. Þarna fjöllum við um hluti eins og vistspor, sem eru þau spor sem við skiljum eftir okkur á jörðinni. Við leggjum svo mikla áherslu á að mikil neysla og sóun sé forsenda fyrir „hinu góða lífi“ að við förum algjörlega fram úr því sem jörðin getur veitt okk- ur,“ heldur Ásthildur áfram. „Síðan erum við með alls kyns hugmynd- ir um hvernig má skoða gjafir jarð- arinnar, til dæmis á listrænan hátt. Einnig hvað það er mikilvægt að við vinnum saman að því að taka réttar ákvarðanir. Að við horfum í kring- um okkur og sýnum náungakær- leik sem stuðlar að friði í heimin- um. Leggjum mikla áherslu á sam- kennd og veltum fyrir okkur mun- inum á samkennd og samúð. Við erum líklegri til að breyta rétt ef við finnum til samkenndar en samúðar. Bókin hjálpar okkur í að taka svona lítil skref í átt að sjálfbærara samfé- lagi. Ef maður ætlar að sigra heim- inn á einum degi þá fallast manni hendur.“ Var kennt að endurnýta hluti Í bókinni er m.a fjallað um endur- nýtingu, endurvinnslu og leiðir til að draga úr neyslu. „Hugmynd- ir um endurnýtingu eru ekki nýjar af nálinni. Í uppeldi mínu í Lund- arreykjadal var meðal annars lögð áhersla á að endurnýta hluti. En þessar hugmyndir komu ekki bara út frá umhverfisvitund heldur líka út frá því að langt var í næstu versl- un og oft skortur á efniviði. En ég er foreldrum mínum þakklát fyrir að hafa kennt mér mikilvægi þess að hlúa vel að umhverfinu og auð- lindum heimsins,“ segir Ásthild- ur sem hefur lengi haft hugann við sjálfbærni. Hún er í doktorsnámi þar sem hún er að skoða möguleika menntunar til sjálfbærni og legg- ur sérstaka áherslu á listir, hvern- ig skapandi skólastarf getur stuðl- að að menntun til sjálfbærni. Edda útgáfa leitaði til Ásthildar um að skrifa þessa bók. „Við gáfum fyrst út sambærilega bók í Bandaríkjun- um og Kanada, undir merkjum Dis- ney. Hún fær góðar viðtökur og hef- ur fengið góða umfjöllun á Amazon. Við gerðum svo þessa á íslensku. Við vildum frekar hafa íslenskar teikningar fyrir Ísland og staðfærð- um textann. Það sem á við í Banda- ríkjunum á ekki endilega við hér.“ Bókin fæst í öllum helstu bóka- verslunum, meðal annars í Ey- mundsson á Akranesi og Hagkaup í Borgarnesi. grþ Fjölskyldubók um sjálfbærni komin út Tveir af höfundum bókarinnar, Gunndís Ýr Finnbogadóttir og Ásthildur Björg Jónsdóttir með bókina. Á myndina vantar Ellen Gunnarsdóttur sem stödd er erlendis. Svipmyndir úr bókinni.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.