Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2014, Side 42

Skessuhorn - 27.05.2014, Side 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014 Við sitjum í borðsalnum á línuskip- inu Tjaldi SH í Rifi og ræðum við Unnar Leifsson matsvein þar um borð: „Ég fæddist í Ólafsvík en bý hér í Rifi. Ég flutti hingað úteft- ir árið 1960, þá fjögurra ára gam- all og hér hef ég verið síðan. Mín sjómennska hófst á vertíðarbáti sem hét Bjargey SH. Við vorum á þorskanetum og Kristján Jóns- son var skipstjóri. Hann á Matth- ías SH í dag. Þetta var 1974 eða þar um bil. Ég var svo á ýmsum bátum í gegnum árin. Ég var nokkur ár á Skarðsvík SH og Hamra Svani SH. Síðast var ég svo á Kópanesi SH eina vertíð áður en ég byrjaði sem kokkur hér á Tjaldi SH þegar hann kom nýr til landsins árið 1992. Það eru þá orðin 22 ár hér um borð í því starfi. Ætli árin á sjónum séu ekki orðin rúmlega 40.“ Fjögurra daga túrar Stundum er sagt að kokkurinn sé mikilvægasti skipverjinn. Léleg- ur kokkur geti hreinlega eyðilagt móralinn um borð. Góður kokkur sé hins vegar gulls ígildi. Ef karl- arnir fái gott að borða geti þeir sætt sig við næstum hvað sem er og þol- að hverja raun. Tjaldurinn er ný- kominn úr veiðiferð. Þó Unnar sé upptekinn við að raða kostinum fyrir næsta túr í hillurnar í búrinu þá gefur hann sér tíma til að setj- ast niður með kaffibolla í snyrtileg- um matsalnum á þessu fallega skipi. Það er auðséð að það væsir ekkert um þá sem eru á Tjaldi. Hvorki í mat né öðru. „Það er mjög gott að vera hér. Núna er útgerðarmynstrið á Tjaldi þannig að við erum fjóra daga úti. Á fimmta degi löndum við oftast nær 250 til 300 körum af ísuðum afla. Núna fyrri hluta árs og um sum- artímann erum við hér á Breiða- fjarðarsvæðinu. Á haustin förum við norður og austur fyrir land. Þá löndum við á Dalvík eða Seyðis- firði. Þarna erum við fram að jól- um. Svo komum við heim og róum þá og löndum hér á Rifi.“ Ein og hálf áhöfn Unnar man svo sannarlega tímana tvenna í sjómennskunni. Að vera á nútíma fiskiskipi er allt annað líf en þegar hann var að byrja fyrir 40 árum. „Við erum 14 um borð í einu en alls eru 21 maður á skipinu. Það eru ávallt sjö menn í fríi í einu. Þannig má segja að við séum með eina og hálfa áhöfn á skipinu. Hver maður rær í tuttugu daga og fær svo tíu daga frí. Sjö fara í land og sjö koma um borð. Þetta er alveg fast kerfi og mjög reglubundið. Það er afar þægilegt fyrirkomulag.“ Unnar segir að það séu sáralitl- ar breytingar á áhöfninni. Menn halda í plássin á Tjaldinum. „Fyrsta árið eftir að báturinn kom til lands- ins var nokkur hreyfing á mann- skapnum. Þá var aflinn saltaður um borð. Þetta þótti erfitt enda gífur- leg vinna. Svo komst meiri stöðug- leiki á þetta þegar við hættum að salta en hófum að frysta aflann um borð. Í dag frystum við hins vegar ekkert. Allur afli er ísaður.“ Kokkurinn á langa vinnudaga Unnar sér einn um alla matseld um borð. Við ræðum starf kokks- ins. Hann lýsir því stuttlega. „Ég vakna klukkan fimm á morgnana og tek til morgunmat. Síðan ræsi ég vaktina sem er að fara út um daginn klukkan sex. Hin vaktin kemur svo inn í borðsal um klukkan hálf sjö. Um sjöleytið er ég búinn að ganga frá og á þá pásu kannski til klukk- an níu. Þá tek ég til morgunkaffi fyrir strákana sem eru á vakt og fer með það niður á vinnsludekk þar sem þeir eru með litla kaffistofu. Svo leysi ég stýrimanninn af uppi í brú svo hann komist líka í kaffi. Eftir þetta byrja ég að matreiða og gera kláran hádegismatinn. Það eru vaktaskipti aftur á hádegi og ég ræsi næstu vakt. Hver vakt um borð er sex tímar, og þannig gengur það allan sólarhringinn.“ Síðdegis er svo aftur kaffi og svo er kvöldmaturinn klukkan sex. Eft- ir það tekur næsta vakt við. „Ég sé líka um að ræsa hana. Það er líka kvöldkaffi alveg eins og morgun- kaffið. Ég er búinn að öllu um hálf tíu á kvöldin og þá get ég lagt mig. Svona gengur dagurinn hjá mér. Síðan veltur það bara á hvað mað- ur er viljugur og í miklu stuði hvað maður gerir. Ég er oft að baka og gera ýmislegt þegar vel liggur á mér,“ segir Unnar og brosir breitt. Hafa prófað ýmislegt Talið berst að bátnum og merkri sögu hans. Unnar þekkir hana alla. Tjaldur hefur alltaf verið happa- skip og brotið blað í útgerðasög- unni með ýmsum frumkvöðlaveið- um. „Við vorum mikið í grálúð- unni hér áður fyrr, meðal annars á netaveiðum eftir henni. Þá ísuð- um við aflann og lönduðum á Ak- ureyri. Svo var það skemmtilegur tími þegar við vorum í Barentshaf- inu 2001 og 2002. Við vorum tvo vetur þar og lönduðum í Tromsö í Noregi. Veiddum þorsk og fryst- um aflann um borð. Þetta var bara ánægja þó það væri alltaf myrk- ur þarna norðurfrá. Annan vetur- inn vorum við mjög heppnir með veður, það var renniblíða allan tím- ann.“ Við gætum eytt deginum í að tala um liðnar veiðferðir og fiskirí. Unnar hefur frá mörgu að segja. Strákarnir úr áhöfninni ganga fram hjá okkur með töskur sínar. Þeir ætla að drífa sig í land. Vorið er komið á Rifi og sólin skín. Menn vilja skiljanlega komast frá borði og njóta þess. Skipið veiðir fyr- ir vinnslu KG-fiskverkunar á Rifi sem einnig gerir það út. Tjaldi SH er ekki haldið lengur við bryggju en nauðsyn krefur. Landlegurnar eru stuttar. Því gildir að nýta tím- ann vel þegar menn eru í landi og eiga að fara aftur í næsta túr. Lætur ekki deigan síga Sjálfur hefur Unnar nóg að sýsla þegar hann er í landi. Fólkinu sem býr undir Jökli fellur sjaldnast verk úr hendi. Kokkurinn á Tjaldi SH og fjölskylda hans eru engin und- antekning á því. „Við fjölskyldan rekum lítið reykhús þar sem við reykjum fisk. Ég vinn aðeins í því ef það er eitthvað að gera. Svo eig- um við trillu líka, Andra SH, og gerum hana út á strandveiðarnar um sumartímann. Halldóra Krist- ín dóttir okkar hjóna rær á henni. Annars starfar Guðrún Gísladótt- ir eiginkona mín á dvalarheimilinu Jaðri í Ólafsvík. Þar er hún eina viku í einu en á svo viku í frí. Hall- dóra Kristín vinnur svo á leikskóla en fær frí til að fara á strandveið- arnar.“ Engan bilbug er svo að finna á Unnari þó hann nálgist nú brátt að hafa átt hálfa öld á sjó. „Ég reikna með því að vera lengi áfram enn á meðan ég stend í lappirnar. Ég kann ákaflega vel við mig hér um borð í Tjaldi.“ mþh Matsveinn með mörg járn í eldinum Strax um leið og skipið leggst að bryggju er hafist handa við löndun. Annað sem ekki er síður mikilvægt er að bætt er við kostinn. Nýr kostur er handlangaður gegnum glugga á eldhúsinu og honum skutlað beint inn í búr þar sem kokkurinn raðar í hillur. Unnar Leifsson matsveinn á Tjaldi SH 270 í matsalnum um borð. Tjaldur SH kemur til löndunar í Rifi. Ker Umbúðamiðlunar eru eingöngu ætluð til leigu undir matvæli.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.