Skessuhorn - 27.05.2014, Page 47
47ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014
fiskverkun óskar
sjómönnum og
fjölskyldum þeirra
til hamingju með
daginn.
nesinu. Það gekk ágætlega en því
var hætt þegar beitningavél var sett
í skipið 2004. Svo var maður oft á
rækju á sumrin svona nokkurn veg-
inn á áratugnum 1980 til 1990.“
Tæmir hugann yfir
gömlum traktor
Það er greinilegt á máli Bjarna
að hann hefur ekki aðeins áhuga
á sjómennskunni. Búskapurinn
og sveitin standa einnig hug hans
nærri. Hefur honum aldrei dott-
ið í hug að söðla um og stunda
landbúnað? „Þetta er dálítið erf-
ið spurning,“ svarar Bjarni og hlær
við. „Nei, ég held ekki. Ég kann
vel við mig á sjónum. Ég er einn af
þessum gömlu sem bara róa og róa.
En það er þó alltaf gott að koma
í sveitina þegar maður er í landi.
Svo dunda ég mér við að gera upp
gamla Deutz-dráttarvél heima í bíl-
skúr. Það er óskaplega notalegt að
koma heim úr erfiðum og kannski
leiðinlegum róðrum, tæma hugann
og slaka á við að vinna í traktorn-
um. Þetta er vél sem upphaflega
kom ný heim í Böðvarsholt haust-
ið 1965. Ég man það vel. Hún olli
straumhvörfum í allri vinnu á bæn-
um. Þótti mjög fullkomin og var
með ámoksturstækjum. Traktorinn
var notaður vel fram yfir aldamót
en orðinn ansi lúinn þegar ég tók
hann til mín og hóf uppgerðina.
Ég er mikill áhugamaður um göm-
ul landbúnaðartæki. Það er gott að
eiga svona tómstundaáhugamál.“
Sáttur við
sjómennskuna
Bjarni segir að það hafi verið mikil
forréttindi að hafa alist upp í sveit.
Hann sé sáttur við það hlutskipti
sitt að hafa orðið sjómaður þó
hann hafi upphaflega dreymt um
að verða bóndi. „Afi minn Bjarni
Nikulásson bjó í Böðvarsholti og
var fæddur 1881. Ég minnist þess
skýrt að hann sat oft með mig,
nokkurra ára gamlan og söng fyr-
ir mig „Hafið bláa hafið, hugann
dregur“ og aðrar vísur og ljóð.
Það var oft eitthvað tengt sjónum,
hann var sjálfur gamall skútukarl á
yngri árum og hafði róið frá Snæ-
fellsnesi. Hann kenndi mér svona
kveðskap tengdan sjónum. Ég
varð svo sá eini af okkur systkin-
unum sem varð sjómaður. Kannski
renndi gamla manninn í grun að
svo yrði.“
mþh
Gamla Deutz-dráttarvélin heiman frá Böðvarsholti í Staðarsveit verður nú brátt
sem ný í höndum Bjarna. Hann slakar á með því að gera gripinn upp þegar hann
er í landi.
Gamli díselmótorinn í Deutzinum
bíður þess að vakna til lífsins á ný.
Tveir vaskir skipverjar á Rifsnesi taka við kössum með frosinni beitu um borð.