Skessuhorn - 27.05.2014, Page 67
67ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014
Fiska vel á strandveiðum í hálfgerðri neyð
Blaðamaður hitti feðgana Krist-
björn Rafnsson og Helga Rafn
Kristbjörnsson þar sem þeir voru
að koma að landi í Grundarfirði eft-
ir góðan dag á strandveiðum. Þeim
hafði gengið mjög vel. Þennan dag
voru þeir annar bátur inn til lönd-
unar, eftir að hafa náð dagsskammt-
inum og jafnvel aðeins betur á ör-
fáum klukkutímum fyrir hádegi.
Aflinn var mjög fallegur þorskur.
Flestir hinna bátanna sem voru að
veiðum þennan dag komu ekki að
landi fyrr en síðdegis. Þeim feðgum
hafði gengið jafn vel daginn áður.
Þá voru þeir komnir inn um svipað
leyti með fullan skammt og löngu á
undan flestum hinna.
Léleg afkoma
á strandveiðunum
Kristbjörn var sjómaður til fjölda
ára en er öryrki í dag. Helgi
sonur hans er með bátinn sem
ber nafnið Helga Guðrún SH.
„Helgi minn verður að sjá um
þetta. Ég er bara að hjálpa hon-
um að komast af stað. Ég eign-
aðist þennan bát fyrir einum 15
árum. Hann hefur verið notaður
á standveiðar undanfarin fjögur
ár.“
Hann segir að það sé ekki mik-
ið að hafa upp úr strandveiðun-
um þó menn fiski vel. „Kostn-
aðurinn er of mikill og aflaverð-
mætið of lítið. Hér við Snæfells-
nes og á okkar strandveiðisvæði
hafa verið svo margir bátar að
aflaheimildirnar sem eru ætlað-
ar í strandveiðarnar hafa veiðst
upp á örfáum dögum í hverjum
mánuði. Þá er allt stopp þar til
í næsta mánuði. Stjórnvöld ættu
að breyta fyrirkomulaginu svo
menn gætu haft í sig og á með
þessum veiðum. Stækka pottana
sem veitt er úr. Það þarf til dæm-
is ekkert að hafa þennan byggða-
kvóta. Hann á bara að renna inn
í strandveiðikerfið. Svo hefur
nú grásleppuveiðin hrunið líka.
Þetta er allt til þess fallið að ergja
menn og rýra afkomu þeirra.“
Var sjómaður
í aldarfjórðung
Kristbjörn er borinn og barn-
fæddur Grundfirðingur. „Ég var á
togaranum Runólfi SH í 25 ár með
Runólfi Guðmundssyni sem skip-
stjóra. Áður hafði ég verið á fleiri
skipum svo sem Siglunesi SH, Þór-
arni Gunnarssyni SH, og Haffara
SH á netum. Ég byrjaði þar, ein-
hvers staðar verða menn að byrja á
sjó. En síðustu 25 árin var ég alfar-
ið á Runólfi.“
Hann segir að óhapp og lækna-
mistök hafi bundið enda á sjó-
mennskuferilinn og svipt hann
heilsunni. „Ég tognaði á öxl við
vinnuna úti á sjó. Læknirinn taldi
að ég hefði slitið vöðva og spraut-
aði sterasprautu ofan í öxlina á mér.
Það var eins og að skvetta olíu á eld.
Ég fékk mikla sýkingu og þurfti að
fara í nokkrar aðgerðir á öxlinni.
Ég fékk svo sýkingu í hjartalok-
urnar sem hefði átt að drepa mig.
Það gerðist þó ekki. Þetta leiddi svo
niður í mjöðm. Loks tókst að kom-
ast fyrir þetta en ég hef verið öryrki
síðan. Þegar þetta gerðist var ég 37
ára gamall.“
Veiðar í atvinnuleysi
Strandveiðarnar hjá þeim feðgum
eru hálfgert neyðarbrauð. Helgi
sonur Kristbjarnar hætti í skóla í
vetur en er atvinnulaus. „Hann er
nú bara skóladrengur en hann fær
ekki atvinnuleysisbætur af því að
hann var í skóla. Það er verið að
refsa þessum krökkum sem eru í
þessari stöðu. Því miður er enga
vinnu að hafa hérna í Grundarfirði
núna. Ég vil nota tímann og kenna
drengnum að vera á sjó. Koma hon-
um út frá því að sitja við tölvuna.“
Helgi skýtur því inn að hann sé
að leita sér að vinnu. „Á meðan ætla
ég að vera á strandveiðunum. Þetta
er mjög skemmtilegt.“ Faðir hans
bætir við: „Við gætum gert miklu
betur bæði fyrir okkur sjálfa og
samfélagið ef við bara fengjum að
gera það og vera fleiri daga á veið-
um.“
mþh
Feðgarnir Kristbjörn Rafnsson og Helgi Rafn Kristbjörnsson stunda strandveiðar á Helgu Guðrúnu SH.
Kristbjörn við eina skakrúlluna.
Gleðilegan
sjómannadag
Framlag sjómanna og íslenskur sjávar-
útvegur skiptir okkur miklu máli. Við
óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra
um land allt til hamingju með daginn.
410 4000Landsbankinn landsbankinn.is