Skessuhorn - 27.05.2014, Side 78
78 SVEITARSTJÓRNAKOSNINGAR X-2014 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014
Nafn framboðs og listabókstaf-
ur: Samfylkingin á Akranesi, X-S
Nafn og aldur: Valgarður Lyng-
dal Jónsson, 41 árs, skipar 2. sæti
listans.
Atvinna: Grunnskólakennari.
Hjúskaparstaða og fjölskylda:
Giftur Írisi Guðrúnu Sigurðar-
dóttur leikskólakennara og eigum
við þrjú börn.
Búseta: Bý á Vallholtinu á Akra-
nesi.
Núverandi og fyrri störf að
sveitarstjórnarmálum: Var
fulltrúi Samfylkingarinnar í menn-
ingarmála- og safnanefnd Akra-
neskaupstaðar, síðar stjórn Akra-
nesstofu, á árunum 2006-2010.
Hef verið í stjórn Samfylkingar-
félagsins á Akranesi í eitt ár.
Aðspurður um helstu stefnu-
mál Samfylkingarinnar fyrir þessar
kosningar segir Valgarð þau mörg.
„Málefni fjölskyldunnar eru allt-
af fremst á forgangslista Samfylk-
ingarinnar. Við teljum mjög brýnt
að brúa bilið milli fæðingarorlofs
og leikskóla og húsnæðisskortur á
Akranesi er aðkallandi úrlausnar-
efni, sérstaklega hvað varðar ungt
fólk sem vill komast í sína fyrstu
íbúð. Einnig viljum við hækka upp-
hæð tómstundaávísunar fyrir börn.
Af öðrum málum má nefna fegr-
un bæjarins og viðhald gatna. Það
verk er þegar hafið með endur-
gerð Akratorgs og því þarf að halda
áfram af krafti og metnaði. Við
viljum búa í fallegum og snyrtileg-
um bæ þar sem hugað er að um-
hverfinu, götur og gönguleið-
ir eru hreinar, heilar og snyrtileg-
ar og þarfir hjólandi, gangandi og
hreyfihamlaðra vegfarenda hafðar
að leiðarljósi. Önnur stór verkefni,
sem bíða næstu bæjarstjórnar, eru
húsnæðismál grunnskólanna og
framtíðarskipulag Sementsreitsins,
en þar þarf að taka skynsamlegar
ákvarðanir og tryggja aðkomu bæj-
arbúa og fagfólks að þeirri ákvarð-
anatöku.“
Hvernig finnst þér til hafa tekist
hjá núverandi sveitarstjórn? „Nú-
verandi bæjarstjórn hefur staðið
sig vel í því að snúa við rekstri bæj-
arsjóðs, en staða hans var vægast
sagt erfið í upphafi kjörtímabils-
ins. Forgangsröðunin var rétt enda
held ég að allir hljóti að vera sam-
mála því, að á meðan maður veit
af börnunum sínum í góðu og fag-
legu skóla- og tómstundastarfi yfir
daginn, þá geti maður látið sig hafa
það að hossast eftir holóttum göt-
um um stundarsakir. Aðalmálið er
að það þurfti að forgangsraða og
núverandi meirihluti hafði kjark
til að gera það. Nú er fjárhagsstað-
an orðin betri og næsta bæjarstjórn
tekur við góðu búi. Þar viljum við
vera áfram í fararbroddi og tryggja
áframhaldandi rétta forgangsröð-
un.“
Ef þú fengir þrjár óskir fyrir þitt
sveitarfélag og töframaður myndi
galdra þær, hverjar yrðu þær? „Í
fyrsta lagi myndi ég óska þess að
allir Skagamenn fengju sanngjörn
laun fyrir sína vinnu, þ.e. að allir
hefðu nóg fyrir sig og sína. Það á
enginn að þurfa að draga fram líf-
ið, hvað þá að sjá fyrir fjölskyldu, á
lágmarkslaunum. Eins á enginn að
vera á hærri launum en hann hef-
ur við að gera, það eiga einfaldlega
allir að hafa nóg til að geta skapað
sér og sínum gott og áhyggjulaust
líf. Í öðru lagi myndi ég óska þess
að allir skólarnir okkar byggju við
heimsins bestu aðstæður í húsnæði
og búnaði og í þriðja lagi myndi ég
óska þess að við ættum fyrsta flokks
æfinga- og keppnisaðstæður fyr-
ir allar þær íþróttagreinar sem hér
eru stundaðar.“
Um íbúaþróun á Akranesi og
framhaldið næstu fjögur ár seg-
ir Valgarður: „Íbúafjöldinn hér
á Skaganum hlýtur alltaf að þró-
ast í samhengi við uppbyggingu
vinnustaða, t.d. á Grundartanga.
Ef ekkert nýtt bætist við á Grund-
artanga næstu árin, þá hef ég trú
á að íbúum á Akranesi fjölgi hægt
og rólega. Nýr, stór vinnustaður á
Grundartanga gæti hins vegar haft
í för með sér mikla fjölgun á stutt-
um tíma á Akranesi. Þess vegna er
mjög mikilvægt að fylgjast vel með
þróun mála þar, svo að bæjaryfir-
völd hér verði tilbúin til að taka við
mikilli íbúafjölgun ef sú staða kem-
ur upp.“
Valgarður segir að stærsta ógn-
unin í samfélaginu á Akranesi sé
skortur á vel launuðum störfum.
„Ég hef áhyggjur af því að allt of
stór hluti bæjarbúa þurfi að sætta
sig við allt of lág laun, sem kem-
ur auðvitað fyrst og fremst niður
á lífsgæðum fólks en hefur einn-
ig áhrif á útsvarstekjur bæjarins og
kemur þannig niður á samfélaginu
öllu. Við verðum að finna leiðir
til að fjölga vel launuðum störfum
fyrir menntað fólk á Akranesi.“
Hver eru stærstu tækifæri Akra-
neskaupstaðar? „Stærsta tæki-
færið sem blasir við bænum okk-
ar núna er Sementsverksmiðju-
svæðið. Þarna hefur bærinn tryggt
sér yfirráð yfir stóru og gríðarlega
verðmætu svæði, með tengslum
við miðbæinn, höfnina, útivistar-
svæðið Langasand og íþróttasvæð-
ið er skammt undan. Tækifærin
og möguleikarnir á útfærslu þessa
svæðis eru óþrjótandi og þetta
verður virkilega spennandi fram-
tíðarverkefni fyrir bæjarbúa.“
Um árangur lista síns í komandi
kosningum segir hann. „Ég er ekki
í vafa um að Samfylkingin á skil-
ið að halda sínum fjórum mönn-
um í bæjarstjórn, okkar fólk hef-
ur einfaldlega staðið sig það vel við
stjórnun bæjarins síðustu fjögur ár.
Ég er hins vegar raunsær maður og
átta mig alveg á því að það er ekki
alveg raunhæft. Við ætlum okkur
að ná inn þremur mönnum og ég
spái því að okkur takist það.“
Hver er að þínu mati fallegasti
staðurinn í þínu sveitarfélagi? „Það
er erfitt að gera upp á milli staða,
því þótt Akranes sé ekki landmikið
sveitarfélag þá eru ótrúlega marg-
ar náttúruperlur hér á litlu svæði.
Langisandur, Breiðin, Kalmansvík
og Elínarhöfði eru allt staðir sem
koma upp í hugann. Það er þó fátt
sem skákar sólarlagi við Krókalón
og ég held ég verði að setja það á
toppinn.“
Eitthvað að lokum? „Í vor verð-
um við öll hress með S!“
Nafn framboðs og listabókstaf-
ur: Vinstrihreyfingin grænt fram-
boð í Borgarbyggð, X-V
Nafn og aldur: Ragnar Frank
Kristjánsson, 51 árs, skipar 1. sæti
listans.
Atvinna: Lektor við Landbúnað-
arháskóla Íslands.
Hjúskaparstaða og fjölskylda:
Giftur Úllu R. Pedersen og eig-
um við þrjár dætur á aldrinum
15-22 ára.
Búseta: Arnarflöt 11, Hvanneyri.
Núverandi og fyrri störf að
sveitarstjórnarmálum: Er for-
seti sveitarstjórnar Borgarbyggð-
ar, sit í byggðaráði og var for-
maður Umhverfis- og skipulags-
nefndar 2010-2013. Er fulltrúi
Borgarbyggðar í stjórn Orkuveitu
Reykjavíkur og Landbúnaðarsafns
Íslands. Sat í stjórn Menningar-
ráðs Vesturlands 2010-2013.
„Okkar helstu stefnumál eru
að halda áfram að lækka skuld-
ir sveitarsjóðs og gæta hagræð-
ingar í rekstri. Stækka og lagfæra
grunnskólann í Borgarnesi og
byggja nýjan leikskóla á Klepp-
járnsreykjum. Stuðla að betri lýð-
heilsu meðal íbúa t.d. með gerð
góðra göngu- og reiðhjólastíga í
þéttbýliskjörnum og í dreifbýli.
Núverandi sveitarstjórn hefur tek-
ist sín ætlunarverk, en það var að
lækka skuldir og koma fjármálum
sveitarsjóðs í viðunandi horf. Á
kjörtímabilinu hefur skuldaviðmið
lækkað úr 175% í 121% sem er
mjög góður árangur. Sveitarstjór-
nin hefur staðið vörð um grunn-
skólana í uppsveitum Borgarfjarð-
ar, háskólana á Bifröst og Hvann-
eyri. Haldið uppi góðri þjónustu
fyrir fjölskyldur í Borgarbyggð og
tryggt iðnaðarmönnum aukin at-
vinnutækifæri.“
Ef þú fengir þrjár óskir fyr-
ir þitt sveitarfélag og töframað-
ur myndi galdra þær, hverjar yrðu
þær? 1. Að allar skuldir sveitar-
sjóðs myndu hverfa. 2. Að allir
malarvegir í sveitarfélaginu yrðu
með bundnu slitlagi/ malbiki. 3.
Að búið væri að leggja ljósleiðara
inn í öll heimili, fyrirtæki og sum-
arbústaði í sveitarfélaginu.
Um íbúaþróun segir Ragnar
Frank: „Íbúar Borgarbyggðar eru
um 3.500 og þeim fjölgaði um 50
manns á síðasta ári, ég sé fyrir mér
að okkur fjölgi um 100 manns á
kjörtímabilinu.“
Hann segir að stærstu ógnir við
sveitarfélagið séu ríkið ákveði að
hætta stuðningi við háskólana á
Hvanneyri og á Bifröst og að rík-
ið breytti forsendum jöfnunar-
sjóðs, þannig að landstór sveitar-
félög eins og Borgarbyggð með
marga byggðakjarna fái minna
fjármagn til reksturs. Ef verðbólga
hækki sé það líka mikil ógn. Ragn-
ar sér tækifærin víða. „Þau felast
m.a. í eflingu ferðaþjónustu í hér-
aði. Að byggingarfyrirtæki í Borg-
arbyggð og einnig sprotafyrirtæki
t.d. í matvælaframleiðslu eflist.“
„Ég spái því að Vinstrihreyf-
ingin grænt framboð haldi sín-
um tveimur mönnum í sveitar-
stjórn Borgarbyggðar.“ Svarið við
spurningu um fegursta stað Borg-
arbyggðar er einfalt hjá Ragnari.
„Borgarbyggð er náttúruperla.“
Eitthvað að lokum? „Á lista VG
er góður hópur fólks sem þekk-
ir samfélagið. Við leitum nú eft-
ir stuðningi kjósenda svo Borgar-
byggð nái að þróast og dafna und-
ir forystu Vinstri grænna. Vona að
sumarið verði farsælt öllum íbúum
Vesturlands.“
V-listi Vinstri grænna í Borgarbyggð
Samfylkingin á Akranesi