Skessuhorn - 27.05.2014, Qupperneq 79
ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014 X-2014 SVEITARSTJÓRNAKOSNINGAR 79
Nafn framboðs og listabókstaf-
ur: Sjálfstæðisflokkurinn í Borgar-
byggð, X-D
Nafn og aldur: Björn Bjarki Þor-
steinsson, 45 ára, skipar 1. sæti
listans.
Atvinna: Framkvæmdastjóri Brák-
arhlíðar, hjúkrunar- og dvalar-
heimilis í Borgarnesi.
Hjúskaparstaða og fjölskylda:
Giftur Guðrúnu Ólafsdóttur skrif-
stofumanni og eigum við fjögur
börn, þau Jóhönnu Marín, Ólaf
Axel, Andra Stein og Aron Inga.
Búseta: Bý að Þorsteinsgötu 14 í
Borgarnesi.
Núverandi og fyrri störf að
sveitarstjórnarmálum: Hef und-
anfarin fjögur ár verið formað-
ur byggðarráðs Borgarbyggðar,
formaður fræðslunefndar og ver-
ið fulltrúi Borgarbyggðar í stjórn
Háskólans á Bifröst og í stjórn
Sambands sveitarfélaga á Vestur-
landi auk þess að vera varamaður í
stjórn Sambands íslenskra sveitar-
félaga. Hef starfað í sveitarstjórn-
armálum síðan árið 2002.
„Okkar helstu stefnumál eru
m.a. að haldið verði áfram ábyrg-
um rekstri sveitarsjóðs sem er for-
senda framfara í samfélaginu.
Áfram verði skuldaviðmiði sveita-
sjóðs haldið vel innan þeirra
marka sem náðst hefur, þrátt fyr-
ir töluverðar fjárfestingar í innvið-
um Borgarbyggðar á undanförn-
um árum, t.a.m. með byggingu
hjúkrunarálmu, Hjálmakletts og
fleiri hluta. Við viljum standa vörð
um opinber störf í héraðinu, t.d. í
kringum háskóla, löggæslu og heil-
brigðisstarfssemi og helst stuðla að
auknum fjölbreytileika opinberra
verkefna. Einnig viljum við hlúa
að þeim fyrirtækjum og stofnunum
sem eru með starfssemi í samfé-
laginu. Samfélaginu er nauðsynlegt
að næg atvinna sé í boði og lífvæn-
leg fyrirtæki séu starfandi, ef at-
vinnumálin eru í lagi og kjör starfs-
manna sömuleiðis þá verða aðrir
hlutir einfaldari fyrir samfélag sem
myndar sveitarfélag eins og Borg-
arbyggð er.“
Hvernig finnst þér til hafa tek-
ist hjá núverandi sveitarstjórn?
„Við erum sátt við hvernig mörg
mál hafa þróast á kjörtímabilinu,
rekstrarafkoma þessara fjögurra ára
er jákvæð um 383 milljónir króna
og skuldaviðmið er rétt um 121%
sem sýnir mikinn bata, auðvitað
hefðum við viljað hafa jákvæða af-
komu á árinu 2013 en eitt og ann-
að kom í veg fyrir það, t.d. fleiri
verkefni sem aðkallandi var að fara
í varðandi viðhald eigna sveitar-
félagsins. Við náðum að ljúka ýms-
um langþráðum verkefnum á kjör-
tímabilinu og þar vil ég helst nefna
byggingu hjúkrunarálmu, einnig
hefur samfélagið staðið þétt saman
í kringum umræður um háskólana
okkar, fyrst Bifröst haustið 2010
og nú í kringum sjálfstæði Land-
búnaðarháskóla Íslands á Hvann-
eyri. Andrúmsloftið í samfélaginu
nú finnst mér einkennast meira af
bjartsýni og krafti en oft áður og
vonandi á sveitarfélagið einhvern
þátt í því með stuðningi, beinum
og óbeinum, við mörg verkefni.“
Ef þú fengir þrjár óskir fyrir þitt
sveitarfélag og töframaður myndi
galdra þær, hverjar yrðu þær? „Að
allir vegir í sveitarfélaginu yrðu
lagðir bundnu slitlagi, netsam-
band og fyrirkomulagi á raforku-
dreyfingu yrði eins á öllum svæð-
um Borgarbyggðar og að allar göt-
ur og gangstéttir yrðu rennisléttar
einn morguninn sem maður kæmi
út úr húsi... og örugglega dettur
mér fleira í hug þegar ég leggst á
koddann í kvöld.“
Varðandi íbúaþróun undanfar-
inna ára og næstu fjögur árin seg-
ir hann: „Við höfum aðeins rétt úr
Sjálfstæðisflokkurinn í Borgarbyggð
kútnum en við viljum setja okkur
það markmið að hér fjölgi um 200
manns á næstu 4 árum hið minnsta,
allir innviðir okkar bera auðveld-
lega þá fjölgun.“
Björn Bjarki segir að brestir í
atvinnulífi séu ógnanir við sveit-
arfélagið eins og sýndi sig í efna-
hagshruninu sem varð. „Fá sam-
félög fengu annan eins skell og
Borgarbyggð, kannski er ein or-
sök þess viss einhæfni í atvinnulíf-
inu. Opinber störf eru tiltölulega
mörg hér í byggðarlaginu, brestur
á forsendum á þeim vígstöðvum
eru einnig viss ógnun fyrir okkur
í Borgarbyggð.“ Hann segir tæki-
færin í Borgarbyggð vera mörg.
„Við eigum mörg tækifæri og ýmis
þeirra eru að verða að veruleika
virðist manni, t.d. í ferðatengdri
starfsemi. Eins eru mörg tæki-
færi í okkar samfélagi sem tengj-
ast Grundartangasvæðinu en því
svæði þurfum við að tengjast bet-
ur, t.d. að kynna okkur sem góð-
an búsetuvalkost fyrir fólki sem
þar starfar. Einnig vill maður sjá
fleiri verkefni verða að veruleika
sem tengst gætu starfssemi á veg-
um háskólanna beggja.“
„Við erum með þrjá fulltrúa
í sveitarstjórn Borarbyggðar og
höfum verið með flest atkvæði
undanfarnar tvennar kosningar,
það er okkar markmið að halda
þremur mönnum en til þess þurf-
um við öflugan stuðning og meg-
um hvergi slaka á til þess að svo
megi verða.“
Hver er að þínu mati falleg-
asti staðurinn í þínu sveitarfélagi?
„Þeir eru nú ansi margir en ef ég
ætti að nefna einn þá er Paradís-
arlaut einstakur staður á fallegum
degi.“
Eitthvað að lokum? „Ég vona
svo sannarlega að kosningarbar-
áttan verði drengileg og að fram-
bjóðendur horfi fram á veginn
samfélaginu til heilla. Pólitískt
karp hefur alls ekki verið allsráð-
andi í sveitarstjórn Borgarbyggð-
ar, sveitarstjórn hefur staðið sam-
an í stærri málum sem snerta t.d.
samskipti við ríkisvaldið og ég
vona að svo verði áfram. Það er
ljóst að nú verða sveitarstjóra-
skipti en Páll Brynjarsson hefur
afráðið að láta af störfum eftir 12
ára gott starf, við frambjóðendur
Sjálfstæðisflokksins munum eftir
kosningar, ef við fáum til þess um-
boð, leita að og auglýsa eftir hæf-
um eintaklingi til þess að taka við
þessu mikilvæga starfi.“
Borgarnes Transportation Museum
Samgöngusafnið Borgarnesi
Open / opið:
Jun.-Aug:
Every day / Alla daga
13.00 – 17.00
1. Sep. - 31. May:
Sat./lau. 13.00 – 17.00
Beautiful vintage cars,
models, photographs,
stories and more
Fornbílar, módel, ljós-
myndir, sögur og fleira
Brákarey
Borgarnes
TEL: 862 6223
fornbilafjelag