Skessuhorn - 27.05.2014, Síða 83
ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014 X-2014 SVEITARSTJÓRNAKOSNINGAR 83
Arnar Freyr Þorbjarnarson:
Það þarf að byggja
hérna talsvert
„Ég hugsa að það séu húsnæðismál-
in sem eru brýnustu málin hérna.
Það er mikil vöntun á húsnæði hérna
og það þarf
að leysa úr
þeim mál-
um. Það
þarf að fara
að byggja
hérna en
það eru
kannski fáir
sem hafa
efni á því,“
segir Arnar
Freyr Þor-
bjarnarson frá Harrastöðum í Dala-
byggð. Hann hefur unnið við smíð-
ar í nokkur ár og er að fullnuma sig í
þeirri iðngrein. Við síðustu sveitar-
stjórnarkosningar í Dalabyggð var
óhlutbundin kosning í stað lista-
kosninganna sem voru þar áður.
Arnar Freyr er þeirrar skoðunar að
það hafi verið rétt skref. „Ég held
að þetta sé fínt, það sé betra að hafa
þetta ópólitískt. Hinsvegar er ég
ekki farinn að skoða þetta ennþá.
Ég hugsa að það sé frekar erfitt að
velja fólk í sveitarstjórnina. Það eru
margir sem koma til greina,“ segir
Arnar Freyr.
Fjóla Mikaelsdóttir:
Húsnæðismálin eru
klárlega aðalmálin
„Ég held það verði svolítið erfitt að
velja fólk í sveitarstjórnina og ég hef
bara ekki ennþá kynnt mér hverjir
eru í framboði,“ segir Fjóla Mika-
elsdóttir sem starfar í leikskólanum
í Búðardal. Spurð hver verði helstu
úrlausn-
a r e f n i n
í Dala-
b y g g ð
n æ s t u
f j ö g u r
árin, þá
s t e n d -
ur ekki á
svari hjá
F j ó l u .
„ H ú s -
næðismálin alveg klárlega. Hér er
nóg atvinna til að taka á móti fólki
en það vantar húsnæðið,“ segir
Fjóla. Spurð hvort að hún telji til
bóta að persónubundnar kosning-
ar voru teknar upp í Dalabyggð við
síðustu kosningar segist Fjóla ekki
í aðstöðu til að meta það. „Ég hef
ekki skoðun á því þar sem ég hef
bara búið hérna í tvö ár. Þess vegna
hef ég ekki samanburðinn,“ segir
Fjóla.
Arnar Eysteinsson:
Skólamálin og sam-
göngumálin mikil-
vægust
„Það er ekki spurning um að mikil-
vægast er að skólamálin verði áfram
í góðu horfi og
svo er mikilla
úrbóta þörf
í samgöngu-
málum. Ann-
ars er þetta
rosalega mikið
niðurnjörvað,
það er sjálf-
sagt ekki mikl-
ir peningar af-
gangs til að láta í önnur verkefni,“
segir Arnar Eysteinsson bóndi í
Stórholti II í Saurbæ þegar hann
Brýn mál og persónukjör í Dalabyggð
er spurður um brýnustu úrlausn-
arefnin í Dalabyggð næstu fjögur
árin. Spurður hvort honum finn-
ist það hafa verið til bóta að farið
var út í persónubundnar kosningar
vorið 2010, þá telur hann það vera.
„Það má segja að það hafi skapast
meiri friður í kringum störf sveit-
arstjórnarinnar, sumir segja of mik-
ill friður,“ segir Arnar og hlær, en
þess má geta að kona hans Ingveld-
ur Guðmundsdóttir situr í sveit-
arstjórn. Arnar bætir svo við: „En
fólk kemst nú kannski að því þegar
það er komið í sveitarstjórnina að
það er auðveldara um að tala en í að
komast.“ Arnar á ekki von á því að
erfitt verði að finna fólk til að kjósa
í sveitarstjórnina. „Ég á von á því að
það verði gefinn út einhver nafna-
listi sem hægt er að velja úr og síð-
an veit ég ekki um nema einn sveit-
arstjórnarmann sem ætlar ekki að
gefa kost á sér áfram,“ segir Arnar
í Stórholti.
Carolin A Baare Schmidt:
Einstaklingarnir
framfylgja sínum
málum
„Það þarf að gera Búðardal bet-
ur aðgengilegan fyrir ferðamann,
en mikil
aukning er í
ferðamönn-
um á svæð-
inu. Þar eru
samgöngu-
málin mjög
mikilvæg og
svo þarf líka
að auka af-
þreyinguna
fyrir ferðafólk svo sem með því að
hafa sundlaugina opna fyrir þá og
bæta þar aðstöðuna,“ segir Carolin
A Baare Schmidt matráður í Sam-
kaup í Búðardal. Spurð hvort það
gæti reynst erfitt að kjósa í sveit-
arstjórnina núna segir Carolin svo
vera. „Fólk er ekki ennþá farið að
gefa kost á sér. Það var til dæm-
is íbúafundur núna um daginn og
þar var ekkert um það að fólk væri
að lýsa yfir framboði.“ Carolin tel-
ur reynsluna góða af því að kos-
ið hafi verið persónubundið síð-
ast, það er vorið 2010. „Þótt fólk sé
ekki að stilla sig saman, þá meina
ég í einhverjar fylkingar eða flokka,
þá held ég að einstaklingurinn sé
betri í því að koma ákveðnum mál-
um áleiðis. Það held ég að sé mesti
kosturinn við þetta fyrirkomulag,“
segir Carolin.
þá
Hlökkum til að sjá þig
Í HÁSKÓLABÆNUM AKUREYRI
Háskóli er ekki aðeins hús, ekki aðeins
upplýsingar og fræðsla. Háskóli er samfélag.
Skemmtilegur félagsskapur. Alvöru nám.
Hjúkrunarfræði**
Iðjuþjálfunarfræði*
Framhaldsnám í heilbrigðisvísindum
- MS í heilbrigðisvísindum
- Diplómanám í heilbrigðisvísindum (45 ECTS ein.)
Heilbrigðisvísindasvið Hug- og félagsvísindasvið
Viðskipta- og raunvísindasvið
unak.is
Líftækni*
Sjávarútvegsfræði*
Diplómanám í náttúru- og auðlindafræðum*
Viðskiptafræði*
MS í auðlindafræði
MS í viðskiptafræði
Félagsvísindi*
Fjölmiðlafræði*
Kennarafræði* (leik- og grunnskólastig)
Diplómanám í leikskólafræðum*
Lögfræði
Nútímafræði*
Sálfræði*
Félagsvísindi MA
Menntunarfræði MEd
Menntavísindi MA
Umsóknarfrestur til 5. júní
*Einnig í boði í fjarnámi
**Í boði í Hafnarfirði, á Ísafirði og
Norðurlandi vestra haustið 2014*