Skessuhorn - 27.05.2014, Blaðsíða 87
ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014 X-2014 SVEITARSTJÓRNAKOSNINGAR 87
Framkvæmdastjóri Samtaka
sveitarfélaga á Vesturlandi
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) auglýsa eftir
framkvæmdastjóra. SSV eru samtök sveitarfélaga á
Vesturlandi og sjá um nokkra sameiginlega málaflokka og
hagsmunamál sveitarfélaga á starfssvæðinu sem nær frá
Hvalfjarðarbotni til Gilsfjarðarbotns. Verkefni SSV eru
fjölbreytt, snúa að hagsmunum svæðisins og bættum
búsetuskilyrðum. Leitað er að einstaklingi sem unnið getur
sjálfstætt og hefur frumkvæði í störfum. Æskilegt að um-
sækjandi hafi þekkingu á sveitarstjórnarmálum og
rekstri og sé með háskólamenntun.
Áhugasamir einstaklingar skulu senda inn umsókn
fyrir 31. maí til:
Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi
Bjarnarbraut 8
310 Borgarnesi
Merkt: Framkvæmdastjóri
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnar Sigurðsson
formaður SSV í síma 893 5563.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
Eva Ósk Ólafsdóttir
Aðspurð hvað séu mikilvægustu
úrlausnarefni sveitarfélagsins
næstu fjögur árin segir Eva að at-
vinnu- og heilbrigðismál ættu að
vera forgangsatriði á næsta kjör-
tímabili. „Við þurfum að fá fjöl-
breyttari atvinnumöguleika ásamt
því að tryggja góða grunnþjón-
ustu eins og heilsu- og löggæslu
í sveitarfélaginu.“ Um framboðs-
lista í sveitarfélaginu segir Eva að
henni lítist vel á fólkið á listun-
um. „Ég held að þetta sé allt sam-
an gott fólk sem ætlar sér að gera
góða hluti.“ Eva segir að hún geti
ekki spáð fyrir um úrslit kosning-
anna. „Þetta getur farið hvernig
sem er.“
Emanúel Ragnarsson
Emanúel telur að það séu engin
sérstök mál sem þarfnist úrlausnar
í Snæfellsbæ að svo stöddu. „Þetta
er allt frábært og ekkert sem þarf
sérstaklega að laga að mínu mati.
Þetta er allt saman gott fólk sem
er í þessu hérna og allir eru að
standa sig mjög vel.“
Aðspurður um þá lista sem í
boði eru í Snæfellsbæ fyrir kom-
andi kosningar segist Emanú-
el vera ánægður með það fólk
sem er á listunum. „Það er mik-
ið af ungu fólki á þessum listum
og ég er ánægður með það traust
sem þetta unga og lærða fólk er
að fá.“ Emanúel segist ekki geta
spáð fyrir um úrslit kosninganna
en hann vonar að hlutirnir hald-
ist óbreyttir.
Jóhanna Gunnarsdóttir
Það sem er mikilvægast að mati
Jóhönnu fyrir næstu fjögur árin
í Snæfellsbæ er að bæta atvinnu-
málin, þá sérstaklega að dregið
verði úr óvissu sem tengist kvót-
anum. „Það verður að gera eitt-
hvað í þeim málum svo að allt
eigi ekki að fara á versta veg fyrir
byggðirnar. Það þýðir ekki leng-
ur að fólk hafi ekki örugga vinnu.“
Jóhönnu líst vel á það fólk sem
er á framboðslistum í sveitarfé-
laginu og er sérstaklega ánægð
með hversu mikið af ungu fólki
sé í framboði. „Það er komið fjör
í þetta núna með öllu þessu unga
fólki og er það gott mál.“ Jóhanna
segir ómögulegt að spá fyrir um
hver endanleg niðurstaða kosn-
inganna verði.
Svandís Lóa Ágústsdóttir
Aðspurð um hver séu mikilvæg-
ustu úrlausnarefnin í sveitar-
félaginu fyrir næsta kjörtíma-
bil segist Svandís vilja meiri fjöl-
breytni í atvinnumálin. „Mér
finnst að stjórnendur ættu að ein-
beita sér að því að bæta ferðaþjón-
ustu og reyna að skapa meiri fjöl-
breytni í atvinnu með þeim hætti.
Mér líst þokkalega á listana og
það fólk sem er í framboði fyrir
þá hér í Snæfellsbæ núna,“ seg-
ir hún. Svandís sagðist ekki geta
spáð fyrir um hver úrslit kosning-
anna verði. „Nei, ég get ómögu-
lega spáð fyrir um hvernig þetta
fer. En ég verð sátt ef það verða
einhverjar breytingar.“
jsb
Hvað segja kjósendur
í Snæfellsbæ?
Fánar og veifur í úrfali
Er með mesta úrval fána á landinu,
ef hann er ekki til ! búum við hann til.
Eldsmíðahátíð
2014
29. maí – 1. júní
Safnasvæði Akraness
Námskeið
Sýning
Sýnikennsla
Keppni
Nánar á eldsmidir.net
K T www.k
M 0-17 s 0-17.00.
ODORITE
ÖRVERUHREI R
MILDEX-Q
MYGLUEYÐIR
WIPE OUT
G GRILLHRE R
NOV D N
KLÓRT LUR
- Í POTTINN
T-O- ID
ÖRVERUR YRIR ROTÞRÆR
HÁÞRÝ LUR
ERTU Á LEIÐ Í BÚSTAÐINN
ÚRV VÖRUR YRIR VIÐ LDIÐ OG VERKIN T ÐNUM.
KÍKTU Í KEMI BÚÐIN K U ÚRV LIÐ!