Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2014, Qupperneq 90

Skessuhorn - 27.05.2014, Qupperneq 90
90 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014 Sigrún Þorbergsdóttir grunnskóla- kennari og eiginmaður hennar Ást- þór Vilmar Jóhannsson kjötiðnað- armaður eru bæði í barneignarleyfi. Það væri þó ekki frásögum færandi ef ekki væri fyrir þær sakir að þau ættleiddu nýverið systkini, fjögurra ára pilt og tveggja ára stúlku, frá Tékklandi. Fyrir eiga þau ellefu ára dóttur sem ættleidd var frá Kína. Ekki er algengt að systkini séu ætt- leidd hingað til lands og enn sjald- gæfara er að þau komi saman. Hjón- in sögðu blaðamanni Skessuhorns sögu sína og barnanna þriggja. Allt hefur gengið vel Sólríkan maímorgun gengur blaða- maður í hlaðið við notalegt hús á Akranesi. Það heyrist strax að í garðinum eru börn að leik. Þar stendur nýbakaði faðirinn Ástþór og sparkar bolta til barnanna sinna, Jóhanns Mána og Lilju Sólar, við mikla kátínu. Við færum okkur svo inn fyrir þar sem Sigrún býð- ur upp á nýuppáhellt kaffi sem bor- ið er fram í bollum með myndum af Prag, höfuðborg Tékklands. Það má segja að það sé við hæfi þar sem hjónin eru nýkomin heim frá Prag. Þangað fóru þau til að sækja börnin tvö um mánaðamótin mars – apríl. „Það hefur allt gengið vel og geng- ur sífellt betur. Við erum enn að læra á hvert annað. Þetta er bara þriðja vikan hérna heima og börnin eru enn að læra,“ segja þau á meðan við drekkum kaffið og börnin kakó. Fyrir áttu hjónin dótturina Ástrós Elísabetu, 11 ára. „Hún er búin að vera eina barnið á heimilinu í tíu ár. Við ættleiddum Ástrósu Elísa- betu frá Kína og hún var 15 mánaða þegar við eignuðumst hana. Þettsa eru því mikil viðbrigði fyrir hana, að eignast tvö systkini í einu,“ seg- ir Sigrún. Tóku sálfræðipróf Hjónin byrjuðu í seinna ættleið- ingarferlinu í ágúst 2010. Tékk- land hefur verið ættleiðingarland síðan 2007 og er eitt þeirra landa sem býður upp á að hægt sé að taka systkini til ættleiðingar. „Við byrj- uðum á því að fá forsamþykki á Ís- landi sem er veitt af sýslumanni. Eftir það getur umsóknarferlið far- ið í gang. Seinna í ferlinu vorum við alveg skoðuð ofan í kjölinn, þurft- um að fara í tvö stór sálfræðipróf og svo var heimilislífið skoðað. Þó við höfum ættleitt áður, þá þurftum við að fara í gegnum allt aftur. Ann- að af þessum prófum var eitthvað bandarískt próf sem tók þrjá tíma. Tékkar gera líka kröfu um að mað- ur fari í blekklessupróf sem hvergi er notað lengur á vestrænum lönd- um,“ útskýrir Sigrún. „Fyrra prófið jafngildir prófi sem stórbrotamenn eru látnir taka í Bandaríkjunum. Umsögnin um mig var sú að ann- að hvort var maður svona klókur að leika á prófið eða allt í lagi með mann,“ segir Ástþór og hlær. Þau segja að þegar öll gögn hafa borist, svo sem skattaskýrslur og alls kyns vottorð, þá taki biðin eftir börnun- um við. „Í Tékklandi er ekki eigin- legur biðlisti, heldur para þeir sam- an eftir því sem þeim finnst passa. Við sóttum um forsamþykki fyr- ir tveimur börnum og þarna voru systkin.“ Þau bæta því við að það hafi aldrei staðið til að börnin yrðu ættleidd í sitthvoru lagi. „Hann passar upp á systur sína og hef- ur alltaf gert. Hann vildi ekki fara neitt án hennar og lét það vel í ljós. Til dæmis þegar túlkurinn spurði hvernig honum litist á að koma til Íslands „Það er allt í lagi ef Lilja kemur líka,“ svaraði hann þá.“ Heita Sól og Máni Jóhann Máni og Lilja Sól eru 12. og 13. barnið sem ættleidd eru til Ís- lands frá Tékklandi og fyrstu systk- inin sem koma saman. Ástþór segir Tékkana vera ánægða með Íslend- ingana, enda sé vel staðið að ætt- leiðingum hérlendis. Rúmt ár leið frá því að þau skiluðu öllum papp- írum af sér þar til símtalið örlaga- ríka barst. „25. febrúar fengum við hringingu frá Íslenskri ættleiðingu. Við vorum bæði í vinnunni og þeir hringdu í okkur bæði í einu til að segja okkur fréttirnar. Fjórum vik- um síðar, vorum við farin út að sækja börnin,“ segir Sigrún. Ætt- leiðingarskrifstofan í Tékklandi er staðsett í borg sem heitir Brno og þurftu hjónin fyrst að fara þangað. Eftir það fóru þau til Prag, þar sem börnin bjuggu á stóru barnaheim- ili. „Þetta er stórt svæði með fimm húsum. Þarna búa alls um 100 börn en það voru 20 í þeirra húsi. Svo er þarna aðalhús þar sem eru skrif- stofur og aðstaða fyrir ungabörn ásamt úrræði fyrir mæður. Þau höfðu verið saman á þessu barna- heimili frá því að hún fæddist.“ Hjónin völdu börnunum sínum ís- lensk nöfn. Stúlkan hét áður Li- liana og heitir nú Lilja Sól. Dreng- urinn fékk gjörbreytt nafn, hét Mi- roslav en heitir í dag Jóhann Máni, í höfuðið á afa sínum. Setti allt dótið sitt ofan í tösku Þann 1. apríl fengu Ástþór og Sig- rún að hitta börnin sín í fyrsta sinn ásamt túlki sem talar reiprenn- andi íslensku. „Hún sagði við þau að þetta væru mamma og pabbi og við gáfum þeim svo sitthvora gjöf- ina. Þau voru mjög feimin, sérstak- lega Lilja. Við vorum svo með þeim í nokkra tíma á dag fyrstu dagana, bæði fyrir og eftir hádegið,“ segja þau. Hjónin þurftu að læra nokk- ur tékknesk orð til að geta átt sam- skipti við börnin fyrstu vikurn- ar. „Við þurftum að læra að segja nokkur einföld orð, svo sem pissa, drekka og svo framvegis. Það var samt passað upp á að alltaf væri að minnast kosti einn enskumælandi starfsmaður á svæðinu.“ Á fjórða degi gistu börnin hjá nýju fjölskyldunni sinni. „Það gekk ótrúlega vel. Þau voru samt sem áður dálítið óörugg. Jóhann setti til dæmis allt dótið sitt ofan í tösku sem hann var með og ætlaði að fara. Hann ætlaði ekki að fara að gista þarna með þessu hálf ókunn- uga fólki,“ rifja þau upp og brosa. Fyrsta næturgistingin gekk vonum framar, þrátt fyrir breytinguna fyr- ir börnin. Eru af Roma þjóðflokki Eftir fyrstu vikuna í Prag var hald- inn fundur. Þar var sálfræðingur sem hafði aðeins haft umsjón með börnunum, sálfræðingur frá ætt- leiðingarstofnuninni í Brno ásamt yfirmanneskjunni á barnaheim- ilinu. „Á fundinum var einnig að- ili frá barnaverndaryfirvöldum sem höfðu haft eftirlit með blóðforeldr- um þeirra sem ekki gátu haft börn- in. Þau eru af Roma þjóðflokki, öðru nafni sígaunar. Flest börn sem gef- in eru til ættleiðingar í Tékklandi eru Rómabörn. Það eru fordóm- ar gegn þessum þjóðflokki í Tékk- landi og Tékkarnir vilja sjálfir ekki ættleiða þessi börn. Við sem erum frá Íslandi skiljum það ekki, hvern- ig hægt er að vera með fordóma fyrir litlum börnum,“ segir Sigrún. Hjónin þurftu að vera í Tékklandi í fjórar vikur. Þau eru fyrstu Íslend- ingarnir sem fóru í gegnum ný ætt- leiðingarlög í Tékklandi sem segja að foreldrar sem sækja börn til ætt- leiðingar þurfa að vera í landinu í 4 – 6 vikur og fara svo í dómsal. „Við vissum að við ferðin tæki 4 -6 vik- ur og því pöntuðum við bara miða aðra leið. Okkur var svo dæmdur umráðaréttur yfir börnunum eftir 4 vikur en eiginleg ættleiðing fer ekki fram fyrr en eftir 6-8 mánuði. Við þurfum fyrst að skila inn skýrslum um þroska og líðan barnanna hér á Íslandi.“ Beið eftir systkinum í mörg ár Eldri dóttirin Ástrós Elísabet hefur beðið eftir systkinum sínum í mörg ár. „En þetta er aðeins öðruvísi en hún átti von á, enda eignaðist hún ekki pínulítil systkini þar sem ekki um ungabörn er að ræða. Þetta er erfitt fyrir hana en gengur vel. Hún var með í ferlinu alveg frá upphafi. Eflaust hefur hún hugsað sitt þeg- ar við vorum komin á barnaheim- ilið enda var hún sjálf á barnaheim- ili í Kína fyrsta árið í lífinu sínu,“ segja hjónin. Þann tíma sem fjöl- skyldan var í Prag bjuggu þau í lít- illi íbúð á lokuðu svæði sem tilheyr- ir barnaheimilinu. Þau segja ferlið hafa verið ólíkt því sem þau gengu í gegnum þegar þau ættleiddu Ást- rósu Elísabetu. „Þetta voru alveg gjörólíkar ættleiðingar. Öfugt við ættleiðingar frá Kína, þá vitum við alla fjölskyldusögu barnanna. Þegar þau hafa þroska til, þá fá þau að vita sína sögu. Í Ástrósar tilfelli var eng- in aðlögun úti. Við fengum aldrei að fara á barnaheimilið hennar og hitta hana þar. Það var bara komið með börnin með rútu og svo feng- um við þau í fangið við litla athöfn á bæjarskrifstofunni.“ Þau segja að þegar Íslendingar ættleiði frá Kína sé oftast farið út í hópum að sækja börnin. Þau tengdust þeim hópi sem þau fóru með mjög vel. „Við eignuðumst aðra fjölskyldu í því fólki. Ástrós kallar hinar stúlkurnar Kínasystur sínar,“ útskýra þau. Finna mikinn stuðning Eftir að heim var komið þurftu börnin að fara í ítarlega læknis- skoðun hjá Gesti Pálssyni barna- lækni í Reykjavík, líkt og öll önn- ur börn sem ættleidd eru til lands- ins. Svo hófst aðlögun og tengsla- myndun. „Við fórum bæði strax í barneignarleyfi þegar við fórum út. Við vorum búin að gera klárt fyr- ir börnin áður en við fórum. Við fengum mikinn stuðning frá vinnu- veitendum og öllum hérna á Skag- anum. Vinir Ástþórs komu tveimur vikum áður en við fórum og mál- uðu barnaherbergin,“ segir Sig- rún. „Þeir bara hringdu á undan sér og mættu til að mála. Ég er í þess- um frábæra ´71 árgangi á Skagan- um sem hefur stutt okkur æðis- lega vel,“ bætir Ástþór við. Þau fara mikið með börnin í sund. „Allir eru ótrúlega almennilegir við okkur og við finnum mikinn stuðning alls staðar.“ Börnin aðlagast vel og eru far- in að geta tjáð sig aðeins á íslensku. Blaðamaður heyrir þau bæði segja alls konar orð og heyrir Jóhann syngja íslenskt barnalag. „Þau eru alltaf að læra ný orð, læra eitt- hvað með hverjum deginum. Jó- hann er farinn að þekkja umhverf- ið aðeins og þegar við beygjum inn í götuna, þá segir hann „heim.“ Ættleiddu lítil systkin frá Tékklandi Rætt við hjónin Sigrúnu Þorbergsdóttur og Ástþór Vilmar Jóhannsson Systkinin Lilja Sól og Jóhann Máni sæl og ánægð í vorsólinni. Hjónin Sigrún og Ástþór ásamt börnum sínum þremur; Lilju Sól, Ástrósu Elísabetu og Jóhanni Mána.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.