Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2014, Qupperneq 92

Skessuhorn - 27.05.2014, Qupperneq 92
92 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014 Við frambjóðendur Sjálfstæð- isflokksins í Borgarbyggð höfum mætt jákvæðu viðhorfi íbúa í Borg- arbyggð nú í aðdraganda kosninga. Fyrir það erum við þakklát. Við lýsum okkur reiðubúin til þess að vinna áfram á sömu nótum og ver- ið hefur við stjórn sveitarfélagsins, jákvæðni, kraftur og virðing fyr- ir samfélaginu eru dýrmætir lið- ir til eflingar samfélagsins, þar þarf sveitastjórn að vera leiðandi. Margt hefur áunnist í stjórn sveitarfélagsins og í atvinnulíf- inu almennt á allra síðustu árum og ofan á það viljum við byggja. Við viljum standa vörð um opin- ber störf í héraðinu, í kringum há- skóla, löggæslu og heilbrigðisstarf- semi og helst stuðla að auknum fjölbreytileika opinberra verkefna. Einnig viljum við hlúa að þeim fyr- irtækjum og stofnunum sem eru með starfsemi í Borgarbyggð. Sam- félaginu er nauðsynlegt að næg at- vinna sé í boði og lífvænleg fyrir- tæki séu starfandi, ef atvinnumál- in eru í lagi og kjör starfsmanna þeirra sömuleiðis þá verða aðrir hlutir einfaldari. Það eru fjölmörg jákvæð verkefni og atvinnusköpun í gangi í Borgarbyggð. Við getum með stolti bent á mörg verkefni og fyrirtæki sem dugmikið fólk hefur unnið að og komið á legg og stuðl- að þannig að betra og öflugra sam- félagi. Í stefnuskrá okkar koma fram til- lögur að ýmsum verkefnum hvern- ig við viljum styrkja okkar samfé- lag og þjónustu sveitarfélagsins. Sumir þessara liða í stefnuskránni eru beinir útgjaldaliðir fyrir sveit- arfélagið og aðrir snerta samskipti sveitarfélagsins við ríkisvaldið og stofnanir og fyrirtæki þess. Til þess að þau samskipti verði sem mark- vissust þarf einstaklinga með öflugt tengslanet, þar skiptir reynsla og þekking frambjóðenda Sjálfstæðis- flokksins máli. Bjartsýni og jákvæðni ásamt sam- stöðu og samstarfsvilja fleytir okk- ur langt. Borgarbyggð hefur alla möguleika til að styrkjast enn frek- ar og dafna. Undirstöðurnar, svo sem mennta- og menningarstarf, tómstundir og afþreying, er eins og best verður á kosið en alltaf má gera betur. Með samstilltu átaki gerum við gott samfélag enn betra. Vinnum saman, stöndum saman. Áfram XD - Áfram Borgarbyggð! Björn Bjarki Þorsteinsson Höf. skipar 1. sæti á lista Sjálfstæð- isflokksins í Borgarbyggð. Reynir Eyvindsson sá ástæðu til að svara grein minni hér í Skessu- horninu um skipulagsmál. Þar fer hann um víðan völl og sér m.a. ástæðu til að koma vini sínum Davíð Oddssyni inn í umræðuna. Reynir lætur að því liggja að ég kenni núverandi meirihluta um öll mistök í skipulagsmálum undan- farin ár. Því fer víðs fjarri og kem- ur ekki fram í greininni. Reynir fer hins vegar með rangt mál þeg- ar hann segir að báðir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafi skipt um skoðun í málefni Heiðarbrautar 40. Undirritaður sat ekki á fyrra kjörtímabili og var að greiða at- kvæði um málið í fyrsta skiptið. Í grein sinni tekur Reynir sér- staklega fram; „fleiri sem heyktust á því að standa í lappirnar í þess- ari ákvarðanatöku“. Þarna á hann meðal annars við samflokksmann sinn Þröst Þór Ólafsson sem nú skipar fyrsta sæti á lista VG en Reynir gerði atlögu að því að fella Þröst úr fyrsta sæti listans. Megin inntak greinar minnar var að í kjölfar mistaka í skipu- lagsmálum undanfarin mörg ár sá núverandi meirihluti ástæðu til að setja inn í stefnuyfirlýsingu sína í upphafi núverandi kjör- tímabils: „Ákvarðanir í skipulags- málum skulu ávallt vera faglegar og teknar í samvinnu við íbúa.“ Að mínu mati hefur svo ekki ver- ið. Einnig gagrýndi ég að meiri- hlutinn væri að fækka græn- um svæðum í bænum með því að skipuleggja byggingar á Ak- urshólnum. En nú vill svo til að minnsta kosti einn flokkur sem nú er í meirihluta hefur á stefnuskrá sinni að fjölga grænum svæðum í bænum. Það er kannski ástæð- an fyrir því að núverandi meiri- hluti er að heykjast á því að ganga frá samningi við þann aðila sem bauðst til að byggja upp á Akurs- hólnum. Einar Brandsson Höf. skipar 3. sæti á lista Sjálf- stæðisflokksins á Akranesi. Það var um kvöldmat- arleytið í febrúar að ég var að vaska upp. Já, ég veit að þetta hljóm- ar ekki spennandi, en það sem á eftir kemur er það. Að minnsta kosti fyr- ir mig og kannski þig, lesandi góður, sem ert þó kominn þetta langt í lestr- inum. Það var nefnilega þá sem ég mundi eftir auglýsingu í Póstinum um stofnfund Bjartrar framtíðar á Akra- nesi. Ég henti frá mér uppþvottaburst- anum, reif af mér svuntuna og korteri síðar var ég mætt á fund. Ég hugsaði með mér; „ég er ekkert að fara í fram- boð, en ég get þó allavega hellt upp á kaffi.“ Tveimur mánuðum síðar var ég komin í framboð. Svona getur þetta gerst. Sérstak- lega þegar fram kemur valkostur fyrir fólk sem finnur sig ekki í þankagangi, nálgun og framgöngu gömlu flokk- anna. Björt framtíð bergmálaði eitt- hvað sem var að brjótast um í huga mér í byrjun árs. Mér leist ekki á það sem við erum öll alin upp við. Pólitík- usar uppstrílaðir úr Kaupfélagi Skag- firðinga talandi í frösum. Sem við öll kunnum utanbókar. Nú hef ég um skeið starfað með Bjartri framtíð á Akranesi. Þessar síð- ustu vikur hafa kveikt í mér pólitískan loga sem ég vissi ekki að væri til stað- ar. Hér er samansafn af fólki sem hef- ur sýnt mér hvernig á að vinna hlut- ina. Alltaf er bjartsýni, gæska og gleði í öllu sem við tökum okkur fyrir hend- ur. Virðing fyrir öllum, sama hverra manna þú ert. Sama hvaðan þú ert, hvað þú getur eða getur ekki, eða hvernig þú ert. Björt framtíð er ekk- ert að velta sér upp úr fortíðinni. Hún er ekki að núa mönnum um nasir hvað þeir sögðu eða hvað þeir gerðu. Og þá er kannski ekki úr vegi að tala að- eins um það fyrirbæri sem framboð- ið er kennt við; nefnilega framtíðina. Björtu framtíðina. Hún er nefnilega þannig í hugum okkar flestra, en föln- ar svo eitthvað með tímanum þegar nútíðin nær tangarhaldi á henni. En, það þarf ekki að vera svo. Ef við bara setjum okkur skýr mark- mið, gerum plön sem ná lengra held- ur en til næstu fjögurra ára, tölum saman, rekum bæinn eins og hag- sýn húsmóðir - já eða húsfaðir. Innst inni vitum við að það er mun gáfu- legra að gera innkaupin einu sinni í viku heldur en að hlaupa út í búð eft- ir hverri máltíð. Innst inni vitum við að bestu prísarnir fyrir sumarfríið t.d. fást með skipulagningu fram í tímann. Það er kallað að skipuleggja til fram- tíðar. Og öll vitum við að það skiptir miklu máli hverju við innrætum börn- um okkar upp á það hver og hvað þau verða þegar þau verða stór. Það heit- ir framtíðin. Þannig að: Hvers vegna skyldum við ekki reka eitt bæjarfélag eins og við rekum okkar eigin heim- ili; samkvæmt brjóstvitinu og þeirri hugmynd að kannski sé gott að hlusta á aðra og læra? Akranes á sér bjarta framtíð, ekki síður en öll önnur bæjar- félög á Íslandi. Og ég er þeirrar trúar að tækifærin á Akranesi séu síst færri en annarra og jafnvel fleiri. Bara ef við viljum sjá þau, grípa þau og nýta þau. Og gera það saman. Kristín Sigurgeirsdóttir. Höf. skipar 4. sæti á lista Bjartrar framtíðar á Akranesi. Allt frá því að öldrunarlækninga- deild Heilbrigðisstofnunar Vestur- lands á Akranesi var lokað hafa bú- setumál aldraðra á Akranesi ver- ið í hálfgerðu uppnámi. Með lok- uninni töpuðust 14 legurými og hátt í 30 manns misstu vinnuna. Á sama tíma hefur þörfin fyrir hjúkr- unarrými aldraðra stöðugt verið að aukast. Undanfarið hefur hjúkrun- arrýmum á Höfða verið fjölgað en um leið hefur dvalarrýmum fækk- að. Þetta hefur talsvert breytt að- stæðum þeirra sem dvelja á Höfða en ekki síður aðstæðum þeirra sem óska eftir því að flytja inn á Höfða og búa þar í hefðbundnum dval- arrýmum. Það er fólk sem er við ágæta heilsu en getur af einhverjum ástæðum ekki búið lengur heima. Við þessari stöðu þarf að bregð- ast sem fyrst. Baráttan á næstu árum felst því meðal annars í því að vinna ötullega að því að fjölga bæði dvalar- og hjúkrunarrýmum á Höfða. Einnig þarf að efla mjög heimaþjónustu og gera öldruðum sem það kjósa kleift að dvelja leng- ur í húsum sínum. Þá þarf Akranes- kaupstaður sem fyrst að móta stefnu um uppbyggingu þjónustu- og ör- yggisíbúða fyrir aldraða í tengslum við Höfða. Öryggisíbúðir eru mun ódýrari í rekstri en hjúkrunarrými. Þar gefst öldruðu fólki tækifæri á því að búa lengur heima hjá sér í auknu öryggi og geta um leið notið bæði þjónustu frá Höfða og heima- hjúkrunar. Frambjóðendur Sjálfstæðis- flokksins líta á það sem eitt af for- gangsverkefnum bæjarfélagsins að berjast fyrir og bæta búsetukosti aldraðra. Sigríður Indriðadóttir. Höf. skipar 2. sætið á lista Sjálf- stæðisflokksins á Akranesi. Hefði einhver sagt mér fyrir nokkr- um árum síðan að ég ætti eftir að vera oddviti framboðslista í sveit- arstjórnarkosningum hefði ég talið þann sama í besta falli kolruglaðan. Ég sem hafði engan áhuga á póli- tík, eiginlega þoldi ég ekki pólitík. En tímarnir breytast og mennirn- ir með. Björt framtíð hefur skap- að vettvang fyrir fólk sem vill taka þátt í stjórnmálum á uppbyggilegan hátt en hefur af einhverjum ástæð- um ekki fundið samhljóm með gömlu flokkunum. Ég er einmitt ein af þeim. Í vetur var Björt fram- tíð á Akranesi stofnuð og framboð til sveitarstjórnarkosninga undirbú- ið. Áður en ég vissi af var ég komin þetta ofarlega á listann. Og ég sem þoli ekki pólitík... og þó. Hvað vill Björt framtíð? Okkar markmið og áherslur snú- ast um að marka framtíðarsýn fyr- ir bæinn okkar á öllum sviðum. Við viljum að mannréttindi og jöfn tækifæri verði ávallt höfð að leið- arljósi í stjórnsýslunni og að hald- ið verði áfram að efla íbúalýðræði á Akranesi. Við viljum leggja okk- ar af mörkum til að stuðla að fjöl- breyttu atvinnulífi þar sem frum- kvöðla- og sprotastarfsemi fær að njóta sín. Sementsreiturinn gæti spilað stórt hlutverk á næstu árum í því samhengi.Við viljum ljúka end- urskoðun á umhverfisstefnu Akra- nesskaupstaðar og tryggja að henni verði framfylgt. Við viljum styðja við og efla enn frekar það frábæra starf sem unnið er í leik- og grunn- skólum bæjarins og finna farsæla lausn á húsnæðisvanda og framtíð- arskipan grunnskólanna. Og síðast en ekki síst viljum við meiri gleði og minna vesen. Já, en hver er stefnan? Þær raddir hafa heyrst að Björt framtíð sé stefnulaus flokkur. Þessu erum við ósammála. Við gefum ekki út loforð enda felst stefna ekki í loforðum. Stefna Bjartrar fram- tíðar felst í því að marka sýn sem sem lögð er til grundvallar starfi okkar og áætlunum. Með framboði okkar erum við ekki að sækjast eft- ir völdum eða starfa fyrir einhverja sérhagsmunaaðila. Við erum ein- faldlega að sækja um vinnu hjá bæj- arbúum. Og þeir sem eru að sækja um vinnu setjast ekki niður með til- vonandi vinnuveitanda og lofa öllu fögru, heldur gera grein fyrir sinni sýn og hugmyndum varðandi starf- ið sem sóst er eftir. Ég hvet kjósendur á Akranesi, sem og alla aðra áhugasama, að kynna sér þar það sem við höfum fram að færa á heimasíðunni okkar bjortframtidakranes.net. X-Æ í maí, ókey bæ! Ég er stolt af því að leiða lista Bjartrar framtíðar á Akranesi og ég er stolt af þeim frábæra hópi fólks sem kemur að framboðinu. Ég er stolt af því að búa á Akranesi og vil leggja mitt af mörkum til að taka þátt í því að gera bæinn minn enn betri fyrir alls konar fólk. Og að lokum má bæta því við að ég er líka stolt af því að hafa komist í gegnum fleiri vikna framboðsferli án þess að setja á mig varalit oftar en mér er tamt eða hætta að ganga í striga- skónum mínum. Frambjóðendur geta nefnilega líka verið alls konar. Vilborg Þórunn Guðbjartsdóttir. Höf. skipar 1. sæti á lista Bjartrar framtíðar á Akranesi. Pennagrein Fjölgum búsetukostum aldraðra Pennagrein Aftur til framtíðar Pennagrein Reynir og skipulagsmál Pennagrein Áfram Borgarbyggð, með jákvæðnina að vopni Pennagrein Meiri gleði og minna vesen www.skessuhorn.is Fylgist þú með? S: 433 5500
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.