Skessuhorn - 27.05.2014, Qupperneq 99
99ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014
Hornsteinn í öllu starfi Bjartrar
framtíðar er hugsjónin um að búa
til eitt samfélag fyrir alla, samfélag
þar sem allir skipta máli og njóta
sín í lífi og starfi. Á Akranesi ætti að
vera tiltölulega auðvelt að hrinda
þessari hugsjón í framkvæmd.
Samfélagið hér er lítið, samheldið
og grunnurinn til að byggja á góð-
ur. Með réttum viðhorfum, stað-
festu og lífsgleðina að leiðarljósi
getum við skapað hlýlega og rétt-
láta umgjörð um mannlíf á Akra-
nesi sem gerir ráð fyrir virkri þátt-
töku allra. Á endanum ætti það að
vera markmið okkar að hætta að
skipta fólki í hópa eftir tilfallandi
eiginleikum á borð við aldur, upp-
runa eða fötlun. En á meðan enn
vantar upp á að fjölbreytileikinn
fái að njóta sín til fulls er nauð-
synlegt að vinna með einstakling-
um sem falla í þessa hópa að því að
bæta úr þessu. Þess vegna leggjum
við í Bjartri framtíð áherslu á að
búa til samráðsvettvang fyrir fatl-
að fólk, fólk af erlendum uppruna
og (h)eldri borgara svo tryggt sé
að reynsla, þekking og skilningur
þeirra sem best til þekkja nýtist í
því verkefni sem framundan er og
felst í því að útrýma mismunun af
öllu tagi.
Fötlunarráð
Eitt af þeim verkefnum sem bíð-
ur nýrrar bæjarstjórnar er að vinna
að úrbótum í málefnum fatlaðra. Í
könnun sem Öryrkjabandalagið lét
gera á hag fatlaðs fólks í sveitar-
félögum kom í ljós að mjög stórt
hlutfall sveitarstjórnarmanna á Ís-
landi þekkir ekki til sáttmála Sam-
einuðu Þjóðanna um fatlað fólk
eða framkvæmdáætlunar um fatl-
að fólk, en aðeins 19% aðspurðra
þekkti þessa mikilvægu samn-
inga. Þetta bendir til þess að mál-
efni fatlaðs fólks sé ekki nálgast
sem mannréttindamál sem fjallar
um jafnt aðgengi og rétt til sam-
félagsþáttöku heldur á einhverj-
um öðrum forsendum. Þessu þarf
að breyta og það strax! Grundvall-
aratriði er að raddir fatlaðs fólks,
viðhorf, reynsla og þekking verði
stór hluti af vinnulagi í málefn-
um fatlaðra og aðgengi til þátt-
töku aukið. Þess vegna viljum við í
Bjartri framtíð stofna notendaráð,
skipað fötluðu fólki og aðstand-
endum þess, sem verði stjórnsýsl-
unni ráðgefandi við skipulag þeirra
mála sem varða fatlað fólk.
Innflytjendaráð
Ísland hefur þróast mjög hratt
í átt til aukins fjölbreytileika síð-
ustu ár. Í mars bjuggu á Akranesi
rúmlega 400 innflytjendur frá 27
löndum. Mikill meirihluti kem-
ur frá Póllandi (um 75%). Að búa
til eitt samfélag þar sem svo fjöl-
breyttur íbúahópur nýtur sín í sátt
og samlyndi er áskorun og um leið
ótrúlega spennandi og áhugavert
verkefni. Akranes hefur undanfar-
in ár gegnt forystuhlutverki með-
al smærri sveitarfélaga í málefnum
innflytjenda á Íslandi, en hér hef-
ur byggst upp vinnulag sem byggir
á samvinnu ríkisins og ólíkra aðila
sem fara með málefni innflytjenda
í nærsamfélaginu. Mikilvægt er að
hlúa vel að þessum málaflokki og
spýta í lófana til að glata ekki þeim
ávinningi sem hefur náðst. Rann-
sóknir sýna að fordómar gang-
vart innflytjendum á Íslandi eru
að aukast, slíkt grefur undan sam-
hug og samstöðu og eitrar samfé-
lagið allt. Það er hagur okkar allra
að innflytjendur á Akranesi hafi
tækifæri og svigrúm til að njóta sín
í samfélaginu – þannig líður okk-
ur öllum betur. Við í Bjartri fram-
tíð leggjum því áherslu á að virkja
innflytjendur til þátttöku og áhrifa
í samfélaginu. Þannig má fyrir-
byggja fordóma og óánægju og
stuðla að einingu í margbreyti-
leikanum. Björt framtíð leggur
áherslu á stofnun innflytjendaráðs
(skipað innflytjendum) sem verði
stjórnsýslunni ráðgefandi um mál-
efni fjölbreytileikasamfélagsins og
gegni jafnframt því hlutverki að
vera rödd bæjaryfirvalda inn í inn-
flytjendasamfélagið.
Öldungaráð
Á Akranesi eins og annarsstaðar
er að verða breyting á aldurssam-
setningu íbúa þar sem öldruðum
fjölgar umtalsvert. Aldraðir eru
fjölbreyttur hópur fólks og varast
ber að líta svo á að aldraðir almennt
séu einsleitur, óvirkur hópur. Þvert
á móti hafa aldraðir stórt og mik-
ilvægt hlutverk í samfélaginu og
mikilvægt er að virkja þá auðlind
sem í þekkingu, reynslu og vinnu-
framlagi (h)eldri borgara og eftir-
launaþega felst. Eldri borgarar eru
til dæmis stærsti hópurinn í ýmis-
konar sjálfboðastarfi, sem er mik-
ilvæg viðbót við lögbundna félags-
þjónustu sveitarfélagsins. Vinnu-
framlag sjálfboðastarfs er hverju
samfélagi ómetanlegt. Til þess að
tryggja (h)eldri borgurum mögu-
leika til þátttöku, þjónustu og þess
að hafa áhrif á hvernig aðbúnað-
ur aldraðra á Akranesi verður til
framtíðar viljum við í Bjartri fram-
tíð skipa sérstakt öldungaráð sem
verði stjórnsýslunni ráðgefandi.
Þetta er í samræmi við óskir hags-
munasamtaka aldraðra sem hafa
lagt áherslu á stofnun slíkra ráða í
öllum sveitarfélögum í adraganda
sveitarstjórnarkosninganna.
Burtu með fordóma –
eitt samfélag fyrir alla!
Anna Lára Steindal.
Höf. skipar 3. sæti á lista Bjartrar
framtíðar á Akranesi.
Á laugardaginn ganga bæjarbú-
ar til kosninga. Hvernig við fram-
bjóðendur leitumst eftir atkvæðum
kjósenda og hvernig þeir síðan verja
atkvæði sínu er margslungið. Sum-
ir flokkar lofa kjósendum meiru en
aðrir í von um árangur og oft eru
gull og grænir skógar ekki langt
undan. Þessum loforðum fylgja
sjaldnast áætlanir um efndir. Gert
er út á gullfiskaminni kjósenda og
að við meirihlutamyndun megi
loforð gufa upp. Sumir kjósendur
kjósa alltaf sinn flokk, aðrir hoppa
á vagninn hjá nýjum framboðum,
margir hoppa á vagninn hjá þeim
sem lofa mestu og svo eru þeir sem
velja það fólk sem þeir treysta til að
stjórna bænum hverju sinni.
Ég tók sæti í bæjarstjórn fyr-
ir Sjálfstæðisflokkinn á þessu kjör-
tímabili og hef setið í minnihluta.
Ég ákvað að bjóða fram krafta mína
á ný fyrir minn flokk og tel mig vera
einstaklega heppinn. Ásamt mér
völdust mjög hæfir einstaklingar
undir forystu Ólafs Adolfssonar á
lista sjálfstæðismanna. Suma þeirra
þekkti ég nokkuð og aðra kannaðist
ég aðeins við. Þessi hópur, alveg frá
fyrsta og niður í átjánda sæti, hef-
ur í aðdraganda komandi kosninga
náð vel saman. Við höfum boðið
bæjarbúum til funda við okkur um
hin ýmsu mál. Niðurstaðan þeirra
funda kemur fram í stefnuskrá okk-
ar.
Frambjóðendur sjálfstæðismanna
tóku þá ákvörðun að setja ekki fram
dýr loforð heldur því að vinna að
framgangi mála á þann hátt að
heildarhagsmunir bæjarfélagsins
yrðu í fyrirrúmi. Eitt af forgangs-
málum næsta kjörtímabils er að ná
tökum á fjármálum bæjarins m.a.
að auka tekjur. Náist það fram gef-
ur það okkur svigrúm til m.a. að
viðhalda eignum bæjarins og huga
að nauðsynlegri uppbyggingu t.d. í
skólamálum.
Ein af þeim spurningum sem ég
hef fengið á liðnum vikum er hvern
við sjálfstæðismenn viljum sjá í
stöðu bæjarstjóra. Verður Regína
áfram bæjarstjóri? Allir hinir flokk-
arnir ætla að hafa hana sem bæjar-
stjóra segir fólk. Mitt svar er að ég
tók þátt í því að ráða Regínu, hún
hefur staðið sig vel sem bæjarstjóri
og ef við sjálfstæðismenn komumst
í þá aðstöðu að vera í meirihluta þá
munum við að sjálfsögðu fá svar við
þeirri spurningu sem enginn hef-
ur spurt. Hefur Regína áhuga á að
vinna með okkur?
Á laugardaginn er komið að upp-
gjöri kjósenda. Ef kjósendur hafa
að leiðarljósi að greiða þeim at-
kvæði sem þeir treysta best til þess
að stýra bæjarfélaginu næstu fjögur
árin kvíði ég ekki þeim dómi.
Einar Brandsson.
Höf. skipar 3. sæti á lista Sjálfstæð-
isflokksins á Akranesi.
Nú fara í hönd sveit-
arstjórnarkosning-
ar eftir nokkra daga. Víðsvegar um
landið eru framboðslistar að kynna
sín kosningamál og áherslur fyrir
næstu fjögur ár. Í því samhengi er
nauðsynlegt að huga að því að meta
fyrir hvað þessi framboð standa,
hver eru þeirra gildi og sýn á sam-
félagið sitt. Á hverju byggja stefnu-
skrár framboðanna sem liggja til
grundvallar þeirra framtíðarsýn á
sitt samfélag.
Ég hvet fólk til að kynna sér
framboðin í sínum sveitarfélögum
og velta því fyrir sér hverjum það
treystir til að fara með stjórn mála
í sínu nærumhverfi. Þar skiptir ekki
máli hvort um sé að ræða ákveð-
inn flokk eða framboð sem byggir
á krafti íbúanna sjálfra og vilja láta
rödd sína heyrast heldur þau gildi
sem þau standa fyrir.
Félagshyggja stendur fyrir raun-
verulegum gildum eins og náunga-
kærleik, umhyggju og velferð allra.
Jöfn tækifæri og jafn réttur fólks
innan samfélagsins er einn af horn-
steinum þess þjóðfélags sem við lif-
um öll saman í. Öflugt lýðræði og
opin stjórnsýsla þar sem íbúar hafa
aðkomu að málefnum síns samfé-
lags skiptir okkur öll máli.
Í komandi sveitarstjórnarkosn-
ingum fær hvert og eitt okkar tæki-
færi til að hafa áhrif á okkar nær-
umhverfi næstu fjögur ár. Það
skiptir máli að í sveitarstjórnum sé
fólk sem aðhyllist jafnaðarstefnu og
félagshyggju. Fólk sem þekkir sín
gildi um frelsi, jafnrétti og bræðra-
lag og vill vinna með samborgurum
sínum til að vinna að þessum gild-
um í samfélaginu.
Ég bið þig því að skoða stefnu-
skrár framboðanna í þínu sveitarfé-
lagi og fyrir hvaða gildi þau standa.
Framboð í anda jafnaðarstefnu og
félagshyggju standa þér til boða
til að vinna að málum í þína þágu
næstu fjögur ár.
Það skiptir máli hverjir stjórna.
Nýttu atkvæðisrétt þinn á kjördag.
Ólafur Ingi Guðmundsson.
Nú styttist í kosningar. Næst-
komandi laugardag munu Ís-
lendingar ákveða hverjir skuli
standa við stjórnvölinn í sveit-
arfélögum landsins næstu fjög-
ur árin. Íbúum á Akranesi býðst
að velja á milli fimm framboðs-
lista í kosningunum. Allir þess-
ir listar eiga það sameiginlegt að
þeir eru skipaðir góðu og fram-
bærilegu fólki og allir frambjóð-
endur eiga það sammerkt að þeir
bjóða sig fram með einlægan vilja
og ásetning um að gera sitt besta,
bænum sínum og bæjarbúum til
heilla.
Jákvæð umræða
Það verður að segjast að aðdrag-
andi kosninganna hefur verið afar
rólegur hér á Skaganum, svo ró-
legur að hugtakið kosningabar-
átta er engan veginn viðeigandi
lýsing. Allir framboðslistar hafa
einbeitt sér að því að kynna sína
frambjóðendur og sín stefnumál
á jákvæðan hátt, að mestu leyti
án þess að þurfa um leið að gagn-
rýna eða hnýta í önnur framboð.
Þegar frambjóðendur eru spurðir
um helstu ágreiningsefni flokk-
anna á Akranesi, þá hreinlega
dettur þeim ekkert í hug! Þetta
er fagnaðarefni, því af þessu má
draga þá ályktun að í stjórnun
Akraneskaupstaðar ríki nú and-
rúmsloft sáttar og samvinnu allra
sem að henni koma.
Undanfarin fjögur ár hef-
ur Samfylkingin verið leiðandi
afl í meirihlutasamstarfi þriggja
flokka í bæjarstjórn, með fjóra
af sjö bæjarfulltrúum meirihlut-
ans. Á þessum tíma hafa fulltrú-
ar Samfylkingarinnar lagt áherslu
á stjórnunarhætti sem einkennast
af samræðu og samstarfi með að-
komu allra, hvort sem þeir til-
heyra meirihluta eða minnihluta
í bæjarstjórn. Haldnir hafa verið
íbúafundir um mikilvæg málefni
og farið hefur verið í stefnumót-
unarvinnu þar sem höfuðáhersla
hefur verið lögð á fagleg vinnu-
brögð með aðkomu áhugasamra
íbúa og fagmanna með mikilvæga
hæfni og reynslu á viðkomandi
sviðum. Þannig hafa verið stig-
in stór skref í átt að nútímalegri,
skapandi og opinni stjórnsýslu.
Þessi skref hafa ekki öll verið
auðveld, þau hafa ekki öll heppn-
ast fullkomlega og stundum hef-
ur okkar fólk þurft að stíga eitt
skref aftur á bak og hugsa mál-
in upp á nýtt, til að geta tekið tvö
skref áfram.
Samráð og íbúalýðræði
Samfylkingin er flokkur sem
leggur áherslu á opna stjórnsýslu
og íbúalýðræði. Við gerum okk-
ur grein fyrir því að stjórnmála-
menn hafa ekki sjálfir svörin við
öllum spurningum, heldur er
það hlutverk stjórnmálamanna
að kalla fólk með áhuga og sér-
þekkingu til samráðs og samtals
áður en pólitískar ákvarðanir eru
teknar. Þess vegna er það engin
tilviljun að nú, að loknu fjögurra
ára kjörtímabili með Samfylk-
inguna í leiðandi hlutverki, skuli
ríkja svo mikil sátt og samhugur í
bæjarmálunum á Akranesi.
Fjögur ár eru ekki langur tími
til að breyta viðtekinni hugsun og
vinnubrögðum. Við erum engu
að síður komin vel á veg og nú
viljum við taka æ fleiri og stærri
skref til að opna stjórnsýsluna og
auka íbúalýðræði á Akranesi. Til
þess að svo megi verða þarf Sam-
fylkingin á stuðningi þínum að
halda í kosningunum 31. maí.
Valgarður Lyngdal Jónsson.
Höf. skipar 2. sæti á framboðs-
lista Samfylkingarinnar á
Akranesi.
Pennagrein
Burt með fordóma! Eitt samfélag fyrir alla!
Pennagrein
Forysta sáttar
og samvinnu
Pennagrein
Látum heildarhagsmuni ráð för
Pennagrein
Það skiptir máli hverjir stjórna