Skessuhorn - 27.05.2014, Síða 100
100 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014
Vörur og þjónusta
PARKETLIST
PARKETSLÍPUN
OG LÖKKUN
Sigurbjörn Grétarsson
GSM 699 7566
parketlist@simnet.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
Nú þegar senn líður að kosning-
um er þörf á að leiða hugann að því
hvaða málefni það eru sem skipta
hvað mestu máli og mikilvægt er að
unnið sé ötullega að á næsta kjör-
tímabili. Það er ljóst að skólamál
bæjarins eru eitt af þeim málum
óháð því hvort um er að ræða leik-
eða grunnskóla. Það skiptir okkur
máli að börnin okkar fái að alast
upp sem sjálfstæðir og skapandi
einstaklingar og þar spila skólarnir
stórt hlutverk ásamt foreldrum.
Innan Bjartrar framtíðar hafa
skólamálefni verið rædd og þ.m.t.
hvernig hægt sé að brúa bilið á
milli fæðingarorlofs og leikskóla.
Í dag komast börn inn í leikskóla
á árinu sem þau verða tveggja ára
og fer inntaka nýrra barna fram
á haustin. Með þetta í huga og
því hvenær dagforeldar aðlaga ný
börn, er ljóst að verðandi foreldr-
ar verða að hugleiða hvenær besti
tími ársins sé til að eignast barn.
Barn sem fæðist á tímabilinu júlí-
september dettur beint inn til dag-
foreldra við eins árs aldurinn og
eins kemur það betur út fyrir þessu
börn varðandi inntöku í leikskóla.
Það er nauðsynlegt að finna á þessu
farsæla lausn!
Við getum öll verið sammála
um það að á Akranesi er unnið frá-
bært faglegt starf í leik- og grunn-
skólum. Í þjónustukönnunum sem
gerðar hafa verið kemur í ljós að
foreldrar á Akranesi eru ánægð-
ir með leikskólastarfið. Við meg-
um vera stolt af því að okkar bær
er með næst hæsta hlutfall fag-
menntaðra starfsmanna í leikskól-
um á eftir Akureyrarbæ. Skóla-
stofnanir bæjarins hafa fengið að
finna fyrir niðurskurðarhnífnum
ásamt öðrum stofnunum og hef-
ur það haft áhrif á skólastarf. Það
sem helst snýr að leikskólum er að
það má ekki gleyma að leikskólinn
er samkvæmt lögum fyrsta skóla-
stigið og hafa leikskólarnir þurft að
aðlaga sitt faglega starf út frá þess-
um niðurskurði. Við í Bjartri fram-
tíð höfum fengið þó nokkrar fyrir-
spurnir varðandi sumarlokun leik-
skólanna, en það að þeir séu lok-
aðir í fimm vikur er einn liður í
þeim niðurskurði sem orðið hefur.
Vissulega hefur verið boðið upp á
sumarskóla, þar sem einn leikskóli
er opinn í tvær vikur fyrir þau börn
sem þurfa. Það eru þó ekki allir
foreldrar tilbúnir til að setja barn
sitt á annan en sinn leikskóla jafn-
vel þótt um stuttan tíma sé að ræða.
Við teljum að það verði að breyta
þessu verklagi og afturkalla sumar-
lokunina. Við gerum okkur grein
fyrir því að það gerist ekki á einni
nóttu og vinna verður ötullega að
því að vænka fjárhag bæjarins svo
unnt verði að auka fjárframlög til
skólanna.
Það sem snýr að grunnskólum
okkar er ljóst að endurbóta er þörf
á skólabyggingum, bæði í Brekku-
bæjarskóla og Grundaskóla, en ljóst
er að í þeim síðarnefnda er húsnæð-
ið löngu sprungið þar sem nemend-
ur og kennarar hafa búið við bráða-
birgðalausnir á síðustu árum. Fyrir
um ári síðan var settur á laggirnar
starfshópur um húsnæðismál skól-
anna, sem var falið að koma með
tillögur að lausnum við þessum
húsnæðisvanda skólanna. Í skýrslu
nefndarinnar kemur fram að hver
nemandi í 1.-6. bekk þurfi um 11
m2 pláss, en staðan í dag er sú að í
Grundaskóla er plássið fyrir hvern
nemenda í þessum aldurshópi ein-
ungis 8,9 m2. Starfsfólk skólans
hefur þurft að vinna við ótrúlegar
aðstæður, en eldhús skólans ann-
ar ekki að elda ofan í allan þennan
fjölda nemenda og hefur auk þess
ekki leyfi til þess frá heilbrigðisyfir-
völdum. Þar af leiðandi hefur ekki
verið hægt að elda mat frá grunni
og því er nær eingöngu boðið upp
á mat sem er keyptur tilbúinn og
upphitaður. Við í Bjartri fram-
tíð teljum það algjöra nauðsyn að
hrinda í framkvæmd þeim áætlun-
um sem starfshópurinn hefur lagt
til og að kosið verði um hver þess-
ara hugmynda hentar best og hefja
framkvæmdir þess efnis hið fyrsta.
Það er augljóst að ekki getum við
hvorki boðið börnunum okkar né
starfsfólki upp á þessa aðstöðu til
langs tíma. Það segir sig sjálft að
námsumhverfi barna skiptir máli í
vellíðan þeirra. Vinnuaðstaða allra
þarf að vera til staðar bæði fyrir
nemendur og starfsfólk skólans.
Það er einlæg stefna Bjartrar
framtíðar að við hlúum vel að börn-
unum okkar, því vissulega eru þetta
okkar börn og viljum við sameinast
öllum bæjarbúum í því að standa
vörð um þeirra velferð.
Með bjartri kveðju,
Ásthildur Ósk Ragnarsdótt-
ir, Bjargey Halla Sigurðardóttir og
Elísabet Rut Heimisdóttir.
Greinarhöfundar skipa allar sæti á
lista Bjartrar framtíðar á Akranesi.
Þegar ársreikning-
ur Akraneskaupstað-
ar fyrir árið 2013 var
kynntur á dögunum
mátti skilja á fréttatilkynningu meiri-
hlutans að meiriháttar viðsnúning-
ur hefði orðið í rekstri bæjarfélags-
ins. Þá hefur mátt skilja á málflutn-
ingi einstakra bæjarfulltrúa að skuld-
ir bæjarins hafi verið greiddar niður á
kjörtímabilinu. En hvað segja tölurn-
ar þegar betur er að gáð?
Hvar er rekstrarbatinn?
Vissulega skilaði bæjarsjóður 190
milljóna króna hagnaði sem er fagn-
aðarefni þegar horft er til þess að árin
tvö á undan var bæjarsjóður rekinn
með 452 milljóna króna halla. Halla-
rekstur í tvö ár kallaði á athugasemd-
ir frá eftirlitsnefnd sveitarfélaga. En
er þessi batnandi afkoma raunveru-
lega vegna þess að rekstur bæjarsjóðs
hefur verið tekinn fastari tökum eða
eru ástæðurnar hugsanlega utanað-
komandi?
Þegar skoðaður er rekstrarreikn-
ingur A og B hluta sést að tekjur
hafa aukist og sérstaklega framlög
úr jöfnunarsjóði, sem hafa hækkað
um 22,1% milli ára. Þegar skoðuð
eru rekstrargjöld hafa laun hækkað
um 4,7% og annar rekstrarkostnað-
ur 2% en lífeyrisskuldbindingar hafa
lækkað um um 130 milljónir króna
milli ára.
Hvar er
skuldalækkunin?
Þegar líðandi kjörtímabil er skoð-
að hafa nettóskuldir Akraneskaup-
staðar og stofnana hans hækkað um
700 milljónir króna og handbært
fé í árslok lækkað um 382 milljónir
króna. Launagreiðslur sem hlutfall
af tekjum hefur hækkað úr 54,75 %
í 62,28 %. Á kjörtímabilinu tóku
sveitarfélög yfir málefni fatlaðs
fólks og þeirri yfirtöku fylgdi auk-
inn launakostnaður. Þrátt fyrir það
sýna þessar tölur ekki fram á bættan
rekstur bæjarfélagsins.
Enginn kjörinn fulltrúi getur
klappað sér á bak fyrir bættri afkomu
að þessu sinni, þegar útgjöld hafa auk-
ist, skuldir hafa aukist og handbært
fé lækkað þá er tekjuaukning mest
megnis að þakka annars vegar auknu
framlagi úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga
og hins vegar auknum útsvarstekjum,
sem tilkomnar eru vegna hækkandi
launa á svæðinu.
Gerum betur í rekstri
Fjárútlát Akraneskaupstaðar þurfa
að vera vandlega ígrunduð, ekki má
kasta peningum í hvaða gæluverkefni
sem er. Þegar vel er haldið utan um
fjármál skapast svigrúm til aukinna
fjárfestinga, framkvæmda eða niður-
greiðslu skulda. Það er lykilatriði að
fara vel með fjármuni skattgreiðenda,
forgangsraða verkefnum og fyrst og
fremst standa vörð um lögbundna
þjónustu sveitarfélagsins.
Gegnsæ stjórnsýsla er eitt af þeim
málum sem frambjóðendur Sjálfstæð-
isflokksins á Akranesi standa fyrir.
Upplýsingar um fjármál bæjarins, svo
sem ársreikningar og fjárhagsáætlan-
ir, eiga að vera aðgengilegar íbúum
eftir fyrstu umræðu í bæjarstjórn. Til
dæmis ætti fjárhagsáætlun fyrir 2014-
2017 í heild sinni að vera aðgengileg
á heimasíðu Akraneskaupstaðar, sem
hún er ekki. Eitt af okkar markmiðum
er að setja fram ársfjórðungslega fjár-
málalegar upplýsingar sem sýna íbú-
um stöðu bæjarins í máli og myndum.
Nauðsynlegt er að birta fyrr upplýs-
ingar um ársreikning en gert er nú hjá
Akraneskaupstað.
Af hverju þetta seinlæti?
Síðari umræðu ársreiknings er lokið í
bæjarstjórn og fyrir nokkrum dögum
var ársreikningurinn birtur á heima-
síðu Akraneskaupstaðar. Langflest
sveitarfélög birta reikninginn eftir fyrri
umræðu og það má spyrja sig hvort
tengsl eru á milli þess að reikningur-
inn birtist svo seint og að það sé kosn-
ingaár. Er staðan í fjármálum Akranes-
kaupstaðar kannski ekki eins góð og
núverandi meirihluti vill vera láta ?
Kristjana Helga Ólafsdóttir
Höf. er fjármálastjóri og skipar 9. sæti
á lista Sjálfstæðisflokksins á Akranesi.
Í síðasta tölublaði
Skessuhorns birtust
ágætar greinar um
málefni eldri borg-
ara á Akranesi. Margt
í þeim skrifum var athyglivert og gott.
Langar mig að bæta við þá flóru. Í dag
er áhersla lögð á að eldri borgari sé
sem lengst heima, þ.e á sínu heimili. Jú
flest kannski gott um það að segja. Það
er þrifið fyrir þig ef þú óskar, færð mat
sendan ef þú óskar. Færð bað og hjúkr-
un eftir því hvernig heilsu þinni er
háttað. Þetta er allt gott og gilt nema
það gleymist alltaf eitt. Það er að ein-
staklingar einangrast mjög, eru mjög
mikið einir dögum og vikum saman.
Málefni Höfða eru alltaf ofarlega
á baugi og mönnum tíðrætt um þau,
sérstaklega fyrir kosningar. Undirrit-
uð var stjórnarformaður þar í átta ár
og ekkert hefur breyst síðan þá, þ.e af-
koma og rekstur. En þar er sem fyrr allt
gert vel fyrir íbúa og jafnvel oft meira
af vilja en mætti þ.e. frábært starfsfólk
hefur alla tíð fylgt Höfða og gert allt
til að gera það að því heimili sem rek-
ið er þar í dag. Gott viðmót og góð-
ur andi fylgir því. En meira um Höfða.
Enn þann dag í dag, 12 árum síðar,
er heimilið rekið með daggjöldum og
hjúkrunardaggjöldum og ekkert hef-
ur breyst. Nema alltaf verður byrðin af
rekstri meiri á sveitarfélaginu.
Enn að Höfða. Dvalarheimil-
ið Höfði var upphaflega hugsað sem
heimili fyrir þá öldruðu sem voru til-
búnir að breyta og fundu sig tilbúna til
að eyða ævikvöldinu þar og njóta þess
að vera þar með fólki og jafnvel vinum
á svipuðu róli. Í dag er biðlisti eins og
alltaf og í dag kemst þú ekki á heimil-
ið öðruvísi en að vera mjög eða frek-
ar ósjálfbjarga eða lasinn. Gleðin yfir
að njóta verunnar á því fallega heimili
Höfða er því farin út í veður og vind.
Hvert stefnir þetta allt í dag? Hvar eru
öll gömlu fyrirheitin? Og hvar er valið
um að eyða ævikvöldinu?
Þá kem ég að því að lokum sem ég
hef aldrei fyrirgefið, þ.e. lokun end-
urhæfingardeildarinnar á HVE. Fal-
leg deild með frábæru starfsfólki, 30
konum í vinnu og yndislegri umönnun
skjólstæðinga sinna. Ný uppgerð utan
sem innan. Allt í einu lokað, öllum eða
flestum konum sagt upp og stendur
deildin auð í dag. Þetta á við um fleiri
staði í dag, alltof marga. Hvað er að?
Algjört stefnuleysi. Það vantar algjör-
lega stefnu í þessum málaflokki. Það
er kannski ekki alltaf hægt að fela sig
á bakvið peningaleysi. Einu sinni sagði
einn heilbrigðisráðherra að á Íslandi
væri besta heilbrigðiskerfi í heimi. Má
vera en gleymdum við gamla fólkinu?
Er það best að gamalt fólk, sbr. aldr-
aður faðir minn sem greindist með
krabbamein, hafi þurft að fara níu sinn-
um á milli spítala áður en hann dó?
Ég skora á þá sem eru að bjóða sig
fram núna að vinna í því að opna aft-
ur E – deildina okkar. Gerum hana að
hjúkrunardeild fyrir eldri borgara og
leyfum Höfða að verða eins og hann
var upphaflega hugsaður. Ég ætla að
kjósa þann sem beitir sér fyrir því í bar-
áttunni að opna E – deildina aftur.
Sigríður Gróa Kristjánsdóttir
Höf. er sjúkraliði og fyrrverandi bæj-
arfulltrúi.
Pennagrein
Hvert stefnum við?
Pennagrein
Af meintri skuldalækkun og rekstrarbata
Pennagrein
Auðlindir
framtíðarinnar