Læknablaðið - 15.07.2004, Side 7
RITSTJÓRNARGREINAR
Tölfræði er nauðsynleg lífvísindunum
Mikilvægi stærðfræði, sérstaklega tölfræði, í lífvfs-
indum fer vaxandi (1). Umfang vísindarannsókna
lækna og líffræðinga hafa aukist verulega á síðustu
áratugum og hefur þessi aukning haldist í hendur við
vaxandi fjölda lífvísindamanna hér á landi og bætta
aðstöðu til vísindastarfa. Gagnsemi þessara rann-
sókna snerta mörg svið, allt frá því að bæta meðferð
sjúklinga til þess að skjóta stoðum undir arðvænleg
fyrirtæki og árangur rannsóknarstarfs hefur fengið
mikla umfjöllun í fjölmiðlum síðustu árin.
Tölfræði er fræðigrein sem fyrir löngu er orðin
óaðskiljanlegur þáttur vísindarannsókna og tölfræði-
ráðgjöf fyrir vísindamenn og nema er veitt við alla
læknaskóla og meiriháttar rannsóknarstofnanir á
Vesturlöndum.
Mikil og vaxandi áhersla hefur verið á vandaða töl-
fræðiráðgjöf, en hér á landi höfum við hins vegar lengi
verið fáliðuð á þessum vettvangi þó að við höfum átt
nokkra brautryðjendur í tölfræðiráðgjöf fyrir líf-
vísindamenn. Síðustu 10 árin hefur stærðfræðingur
unnið við tölfræðiráðgjöf á Landspítala. Auk þessa
hefur hann sinnt kennslu læknanema og aðstoð við
úrvinnslu námstengdra rannsóknarverkefna. Öllum
sem að þessu hafa komið er ljóst mikilvægi þess að
skjóta frekari stoðum undir greinina, en samt gerðist
það í sparnaðarhrinu sem gekk yfir Landspítala fyrr
á þessu ári að ákveðið var að leggja þessa einu stöðu
tölfræðiráðgjafa niður. Ákvörðunin er lítt skiljanleg
og getur orðið afdrifarík fyrir vísindarannsóknir og
kennslu við læknadeild og Landspítala.
Vaxandi áhersla er á fullnægjandi og rétta notkun
tölfræði í vísindarannsóknum og helstu vísindatíma-
rit hafa gert þá kröfu að rannsóknarniðurstöður og
tölfræðiútreikningar séu yfirfarnir af kunnáttumanni
áður en til birtingar greina kemur. Þrátt fyrir þetta
hafa birtar greinar verið talsvert gagnrýndar fyrir
ófullnægjandi úrvinnslu og á síðustu mánuðum kom
fram í rannsókn þar sem litið var gagnrýnið á tölur
og tölfræði í greinum birtum í tveimur heimskunnum
breskum vísindatímaritum, Nature og British Medical
Journal, að hvoru tveggja væri verulega áfátt í báðum
tímaritunum (2). Þessi rannsókn hefur vakið mikla
athygli og fékk meðal annars umfjöllun í breskum
fjölmiðlum. Engin slík athugun hefur farið fram hér
á landi en hætt er við að athugun á birtum grein-
um í íslenskum vísindatímaritum og það jafnvel í
Læknablaðinu myndi sýna svipaðar niðurstöður eða
að minnsta kosti sambærileg vandkvæði.
í dag er nær algilt að töluleg vinnsla rannsókna
kalli á einhverja tölfræðilega úrvinnslu. I þessu sam-
bandi minnast menn stundum uppgötvunar penicill-
ínsins árið 1941 og notkunar þess við Iungnabólgu.
Þá var árangurinn svo augljós að ekki þurfti á neinni
tölfræði að halda. Því miður er sjaldgæft að sjá jafn
afgerandi niðurstöður í daga og þarf að leita annað
til þess. I árskýrslu Landspítala fyrir síðasta ár kemur
fram að meðalfjöldi starfsmanna í mánuði með við-
skipta- og hagfræðimenntun var 45 og hafði þeim
fjölgað um sex frá árinu 2002 (3). Þrátt fyrir þennan
góða mannafla töldu ráðamenn spítalans sig ekki
þurfa á tölfræðisérþekkingu að halda og lögðu í sparn-
aðarskyni niður einu stöðu tölfræðiráðgjafa sjúkra-
hússins og læknadeildar.
Fleiri ástæður eru til þess að tryggja þarf aðgengi
lækna að tölfræðiráðgjöf. Á síðustu árum hefur
þátttaka lækna í lyfjarannsóknum farið vaxandi og
einstaka rannsóknir eru í auknum mæli fjárhagslega
styrktar af viðskiptafyrirtækjum, einkareknum sjóð-
um og yfirvöldum. Slíkur fjárhagsstuðningur felur í sér
hættu á hagsmunaárekstrum. Oft hafa slíkir styrktarað-
ilar séð um úrvinnslu gagna en nú er vaxandi krafa um
að læknar sjálfir hafi beinan aðgang að gögnum rann-
sóknanna og geti tekið þátt í úrvinnslu. Þetta kallar á
að læknar hafi aðgang að óháðri tölfræðiráðgjöf (4).
Nauðsynlegt er að efla kennslu og þjálfun í
tölfræði við læknadeild og tryggja aðgengi vísinda-
manna læknadeildar og Landspítala að tölfræðiráð-
gjöf. Annars standast þessar höfuðstofnanir okkar í
læknisfræði ekki samanburð við neina þá stofnun á
Veslurlöndum sem við viljum bera okkur saman við.
Vandi þessarar greinar er ef til vill tengdur því að ekki
er skilningur meðal ráðamanna á þessari grein og
undirstrikar það sem á undan er rakið mikilvægi þess
að læknar og læknadeild Háskóla íslands taki þátt í
stefnumörkun. Mikilvægt er að læknar og læknadeild
hafi forystu um að efla þekkingu lækna og lækna-
nema á söfnun og úrvinnslu tölulegra upplýsinga í
vísindarannsóknum.
Heimildir
1. Chin G, Coontz R, Helmuth L. Biology by the numbers.
Science 2004; 303: 781.
2. The Economist June 5th-llth pp. 71-722004.
www. economist. com
3. www.landspitali.is
4. Uniform Requirements for Manuscripts Submitted to Biomed-
ical Journals: Writing and Editing for Biomedical Publication.
www.icemje.org/
Vilhjálmur
Rafnsson
Höfundur er prófessor
í heilbrigöisfræði viö
læknadeild Háskóla íslands.
Læknablaðið 2004/90 535