Læknablaðið - 15.07.2005, Page 13
FRÆÐIGREINAR / D-VÍTAMÍNBÚSKAPUR BARNA
D-vítamín í fæði ungra
íslenskra barna
Inga Þórsdóttir
DOKTOR í NÆRINGARFRÆÐI
Ingibjörg
Gunnarsdóttir
DOKTOR í NÆRINGARFRÆÐI
Rannsóknastofa í
næringarfræði við Háskóla
íslands og Landspítala.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Inga Þórsdóttir,
rannsóknarstofu í
næringarfræði við HÍ og
Landspítala, Eiríksgötu 29,
101 Reykjavík.
ingathor@landspitali. is
Sími: 543-8414
Lykilorð: d-vítamín, ungbörn,
börn, lýsi.
Ágrip
Tilgangur: Að kanna neyslu á D-vítamíni meðal
ungra barna á Islandi.
Efniviður og aðferðir: Handahófsúrtök 180 nýbura
(þátttökuhlutfall 77%) og 140 tveggja ára barna
(þátttökuhlutfall 68%). Rannsókn á mataræði sex
ára barna byggði á rannsóknarhópunum tveimur
og var þátttaka 71%. Mataræði var kannað með
því að vigta og skrá neyslu barnanna. Stuðst var
við íslenska gagnagrunninn um efnainnihald mat-
væla við útreikninga á D-vítamínneyslu og töl-
fræðiforritið SPSS notað við úrvinnslu gagna.
Niðurstöður: Mikil dreifing var einkennandi fyrir
inntöku á D-vítamíni. Meira en fjórðungur ung-
barnanna og helmingur tveggja ára og sex ára
barnanna fékk innan við helming af ráðlögðum
dagsskammti (RDS) fyrir D-vítamín. Hlutfall
þeirra sem tóku lýsi eða annan D-vítamíngjafa var
á bilinu 40-68%, lægst meðal sex ára barnanna. D-
vítamín inntaka barna sem tóku lýsi eða D-vítamín
sem bætiefni var að meðaltali 10,4 pg/dag meðal 12
mánaða barna, 9,5 pg/dag meðal tveggja ára barna
og 12,3 pg/dag hjá sex ára börnum, samanborið
við 2,7 pg/dag, 2,1 pg/dag og 2,7 pg/dag meðal
jafnaldra þeirra sem ekki tóku lýsi.
Ályktun: Niðurstöðurnar sýna að börn sem ekki fá
lýsi eða AD dropa fá einungis fjórðung eða minna
af ráðlögðum dagsskammti D-vítamíns úr fæði. D-
vítamín er mikilvægt fyrir eðlilega virkni og þroska
líkamans og er hlutverk þess fyrir beinþroska vel
þekkt. Nauðsynlegt er að gefa skýrar ráðlegging-
ar um neyslu D-vítamíns meðal ungra barna og
kanna hvernig ráðleggingum er fylgt til að koma í
veg fyrir of litla og of mikla inntöku D-vítamíns.
Inngangur
D-vítamín er sterahormón sem myndast í húðinni
fyrir tilstilli útfjólublárra geisla (1). Þörfinni fyrir
D-vítamín er víða í heiminum hægt að fullnægja
með því magni sem framleitt er í húð við sólarljós.
Lífsskilyrði og lega Norðurlanda valda því að fólk
á þessu svæði getur skort D-vítamín sé ekki nægj-
anlega mikið D-vítamín í fæðunni (2). Mikilvægt
er því að huga að inntöku á D-vítamíni á þessum
svæðum og þá einkum á Islandi þar sem sólarljóss
nýtur við í litlum mæli yfir vetrarmánuðina.
D-vítamín sem myndast í húð eða er tekið
upp í þörmum er breytt í hormón sem stýrir
EIMGLISH SUMMARY
Þórsdóttir I, Gunnarsdóttir I
Vitamin D in nutrition of young
lcelandic children
Læknablaðið 2005; 91:581-7
Objective: The aim was to study vitamin D intake in
young lcelandic children.
Methods: Subjects were randomly selected infants
(n=180, 77% participated) and 2-year-olds (n=140, 68%
participated). These two groups were studied again at
the age of 6 years (71 % participated). The intake was
assessed by weighed food records. Vitamin D intake
was calculated using the lcelandic Nutrition Database
and SPSS used for statistical analysis.
Results: Characteristic for vitamin D intake was a wide
range of intake. More than quarter of the infants and half
of the two and six year olds received less than 50% of
recommended daily intake. The frequency of fish liver
oil consumption or use of other vitamin D supplement
was 40-68%, lowest among the 6-year-olds. Vitamin
D intake of those consuming fish liver oil or vitamin D
supplements was 10,4 pg/day on average for infants, 9,5
pg/dag for the two year olds and 12,3 pg/dag for the six
year olds, four or five times that of those not consuming
any vitamin D supplements (2,7 pg/day, 2,1 pg/day and
2,7 pg/day for infants, 2-year-olds and six-year-olds,
respectively).
Conclusion: The results show that children who do not
consume fish liver oils or vitamin D supplements get
only one quarter or less of recommended daily intake
for vitamin D from their diet. Vitamin D is important for
normal function and growth of the body and its role
for bone development is well known. It is important to
give detailed recommendations on vitamin D intake for
infants and children and ensure the compliance to the
recommended intake to avoid too low and too high
intake.
Key words: vitamin d, infants, children, fish liver oils.
Correspondence: Inga Þórsdóttir, ingathor@iandspitaii.is
kalkbúskap (1,25-díhýdroxývítamín D) í lifur
og í nýrum. Kalsítríol, virka form D-vítamíns,
eykur framleiðslu á próteini sem bindur kalk í
smáþörmum (calcium binding protein) og virðist
hraði kalkupptöku vera í réttu hlutfalli við rnagn
þessa próteins (3). Auk þess tekur D-vítamín
þátt í að viðhalda eðlilegum styrk kalks í blóði og
utanfrumuvökva og er því mikilvægt fyrir eðlilega
uppbyggingu beinagrindarinnar. Alvarlegustu af-
Læknablaðið 2005/91 581