Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.2005, Page 16

Læknablaðið - 15.07.2005, Page 16
FRÆÐIGREINAR / D-VfTAMÍNBÚSKAPUR BARNA Tafla IV. D-vítamíninntaka 2ja og 6 ára barna. n Meöal- tal (pg) Hundraöshlutar SD 5 10 25 50 75 90 95 RDS Allir 2ja ára 93 6,5 7,0 0,7 1,0 1,8 4,8 8,7 13,4 21,2 10,0 Allir 6 ára 127 6,5 7,7 0,9 1,1 1,7 3,7 7,3 16,9 23,0 10,0 Strákar 2ja ára 52 6,8 5,6 Strákar 6 ára 63 6,0 6,8 Stelpur 2ja ára 41 6,2 9,1 Stelpur 6 ára 64 7,1 8,6 Matarœði tveggja ára íslendinga Niðurstöður fyrir tveggja ára börnin sem settar eru fram í töflu IV sýna að meðalinntaka D-vítamíns fyrir allan hópinn var nokkuð fyrir neðan RDS. Um helmingur barnanna fékk innan við helming af RDS. Dreifing neyslunnar hjá tveggja ára börn- unum var mikil, eins og hjá ungbörnunum, þar sem lægstu gildin eru undir 0,6 |ig/dag, en þau 5% barna sem mest neyta af D-vítamíni fengu meira en 21 pg/dag. Um 60% tveggja ára barnanna sem tóku þátt í rannsókninni tóku lýsi og var með- allýsisneysla þeirra 3,6 g/dag sem jafngildir um það bil einni teskeið af lýsi. Meðallýsisneysla alls hópsins var 2,2 g/dag. Dreifing lýsisneyslunnar var frá Og/dag og upp í 11 g/dag. Börn sem ekki tóku lýsi fengu að meðaltali 2,1 pg af D-vítamíni úr sinni fæðu daglega, en þau börn sem tóku inn lýsi fengu 9,5 pg að meðallali. Matarœði sex ára íslendinga Eins og hjá tveggja ára börnunum fékk rúmlega helmingur 6 ára barna minna en helming af RDS. Viðmiðunargildi fyrir hámarksneyslu D-vítamíns er 25 pg/dag. í töflu IV má sjá að um 5% barnanna var nálægt þessum viðmiðunarmörkum. Sé litið á meðaltal og miðgildi má sjá að meðaltalið er nálægt því að vera helmingi hærra en miðgildið og gefur það til kynna ójafna dreifingu á neyslu D-vítamíns. 40% barnanna sem tóku þátt í sex ára rannsókninni tóku lýsi og var meðallýsisneysla þeirra 3,4 g/dag sem jafngildir tæplega 1 tsk af lýsi. Meðallýsisneysla alls hópsins var 1,4 g/dag. Dreifing neyslunnar var frá 0 g/dag og upp í 8 g/ dag. Börn sem ekki tóku lýsi fengu að meðaltali 2,7 pg af D-vítamíni úr fæðunni daglega, en þau börn sem tóku inn lýsi fengu 12,3 pg að meðaltali. Umræða Niðurstöðurnar sýna að ung íslensk börn sem ekki fá lýsi eða AD dropa fá ekki nægjanlegt D-vítamín úr fæði og er D-vítamíninntaka þeirra langt frá inntöku þeirra barna sem taka inn lýsi eða AD dropa og einnig almennt langt frá RDS. I þeim rannsóknum sem niðurstöður eru birtar úr í þessari grein má sjá að meðalinntaka barnanna á D-vítamíni nær frá því að vera 6,0 gg/dag hjá sex ára strákum, upp í tæplega 11 pg/dag hjá fjögurra mánaða stelpum. Rétt er að vekja athygli á því að þrátt fyrir að meðalneysla D-vítamíns sé oft nokk- uð nálægt RDS þá er dreifing neyslunnar mjög mikil og fékk stór hluti barnanna D-vítamín sem var langt frá því sem ráðlagt er. í rannsókn Gunnars Sigurðssonar kernur fram að líklegt megi telja að í Reykjavík (64°N) sé engin framleiðsla á D-vítamíni í húð frá október fram í apríl (13). Erlendar rannsóknir styðja þessa tilgátu (14, 15). í rannsókninni (13) var sýnt fram á að mesta þörfin fyrir inntöku D-vítamíns er í febrú- ar-mars, en neysla D-vítamíns í júní og júlí virðist óþörf. Þetta staðfestir mikilvægi þess að huga að inntöku D-vítamíns, nánast allt árið um kring, en einkum þó yfir vetrarmánuðina. Rannsóknin var gerð á fullorðnum íslendingum, en líklegt má telja að það sama eigi við um börn,sem jafnframt verður að teljast viðkvæmari hópur. Dagleg inntaka D-vítamíns upp á 5 pg á dag er talin vera nægjanleg til að koma í veg fyrir bein- kröm hjá börnum (16). Sé litið á niðurstöður þeirra rannsókna sem hér er fjallað um má sjá að talsvert stór hluti barnanna nær ekki að fá 5 pg á dag af D- vítamíni. Um helmingur tveggja og sex ára barn- anna og að minnsta kosti fjórðungur ungbarnanna var með D-vítamíninntöku undir þessum mörkum. Neðri mörk D-vítamíninntöku hafa verið sett 2,5 pg/dag samkvæmt nýjum norrænum ráðleggingum og mikil hætta á skorti á D-vítamíni fari neysla þess undir þessi mörk (2). Samkvæmt niðurstöðum þeirra þriggja rannsókna sem hér er fjallað um má sjá að um fjórðungur ungbarnanna og barnanna nær ekki þessum lægri mörkum D-vítamíns. D-vítamíninntaka íslenskra ungbarna er tölu- vert lægri en sænskra ungbarna. Meðalinntaka á fyrsta aldursári er 11-15 gg á dag í Svíþjóð (17). Á íslandi er meðal neysla á fyrsta aldursári 6,3-10,6 pg á dag. Rétt er að árétta hér að við útreikninga á D-vítamíninntöku íslenskra ungbarna var stuðst við breskan gagnagrunn um næringargildi brjósta- mjólkur. Magn D-vítamíns í íslenskri brjóstamjólk er nokkuð hærra en gefið er upp í þeim breska 584 Læknablaðið 2005/91

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.