Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2005, Blaðsíða 19

Læknablaðið - 15.07.2005, Blaðsíða 19
FRÆÐIGREINAR / SJÚKRATILFELLI Hálmsótt eða heysótt? Sjúkratilfelli Gunnar Guðmundsson1 SÉRFRÆÐINGUR í LUNGNA-, LYF- OG GJÖRGÆSLULÆKNINGUM Lýður Ólafsson2 AÐSTOÐARLÆKNIR Sigfús Nikulásson3 SÉRFRÆÐINGUR í LIFFÆRAMEINAFRÆÐI Birna Jónsdóttir4 SÉRFRÆÐINGUR í MYNDGREININGU ‘Lungnadeild Landspítala, 2lyflækningadeild sjúkrahúss- ins og heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi, Vannsóknastofu í meinafræði, Landspítala, 4Röntgen Domus í Mjódd. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Gunnar Guðmundsson, lungnadeild Landspítala, E-7, Fossvogi, 108 Reykjavík. Sími 543-6876, fax 543-6568. ggu(imund@landspitali. is Lykilorö: sjúkratilfelli, ofur- nœmislungnabólga, heysótt. Ágrip Ung kona var lögð inn á sjúkrahúsið á Akranesi vegna mæði, slappleika og hita. Hún reyndist vera með lungnabólgu í báðum lungum en ekki tókst að finna orsök. Hún var meðhöndluð með sýklalyfjum og batnaði vel og útskrifaðist eftir átta daga legu. Fjórum vikum síðar fann hún fyrir hratt vaxandi mæði og reyndist vera með lágan súrefn- isþrýsting í blóði, herpu við blásturspróf og dreifð- ar breytingar í millivef lungna á röntgenmynd. Tölvusneiðmynd sýndi dreifðar hélubreytingar. Vefjasýni frá lungum leiddi í ljós fjöldamarga litla bólguhnúða (granúlóma). Hún var meðhöndluð með prednisólón í stuttan tíma og batnaði fljótt. Hún var með hesta í húsi og var undir þeim hálm- ur sem í var lífrænt ryk. Hér er því um að ræða hálmsótt sem er mismunagreining við heysótt sem orðin er sjaldgæf á íslandi. Sjúkratilfelli Ung kona var lögð inn á sjúkrahúsið á Akranesi með sjö daga sögu um hita, slappleika og mæði. Hún var áður hraust og tók engin lyf að staðaldri. Við skoðun var hiti 38,1°C og við lungnahlust- un heyrðust brakhljóð í botnum beggja lungna. Að öðru leyti var almenn líkamsskoðun eðlileg. Blóðrannsóknir sýndu fjölgun hvítra blóðkorna með vinstri hneigð og hækkun á CRP (C-reac- tive protein) og sökki. Kuldakekkjunarpróf var neikvætt. Súrefnisþrýstingur í slagæðablóði var 51 mmHg án súrefnisgjafar. Röntgenmynd af lungum sýndi íferðir í báðum lungum, einkum í miðblaði hægra lunga og neðra blaði vinstra lunga. Engar bakteríur ræktuðust úr hráka. Mót- efnavakamælingar pneumókokka og legíónellu í þvagi voru neikvæðar. Mótefni gegn klamydíu og mykóplasma voru lág og hækkuðu ekki. Hún var meðhöndluð með sýklalyfjum og súrefni og varð hitalaus og útskrifaðist heim á átlunda degi með áframhaldandi sýklalyfjagjöf um munn. Við eftirlit viku seinna var líðan mun belri og hún var hita- laus. Endurtekin röntgenmynd af lungum sýndi að íferðir voru mjög minnkandi. Hún leitaði aftur til heilsugæslu 27 dögum seinna vegna hratt vaxandi mæði og kom þá í Ijós á röntgenmynd af lungum dreifðar millivefsíferðir í báðum lungum. Staðfest var með háupplausnar- tölvusneiðmynd af lungum að hér var um að ENGLISH SUMMARY Guðmundsson G, Ólafsson L, Nikulásson S, Jónsdóttir B Farmer’s lung disease caused by straw or hay? Case report Læknablaðið 2005; 91: 587-9 A young woman was admitted to Akranes Regional Hospital because of dyspnea, fatigue and fever. She was found to have bilateral pneumonia but etiology was not found. She was treated with antibiotics with good resolution and was discharged after eight days from the hospital. Four weeks later she noticed rapidly progressive dyspnea and was found to be hypoxemic, and to have restrictive spirometry and diffuse interstitial changes on chest radiography. Computerized tomography of the lungs showed diffuse ground glass changes. Transbronchial biopsies from the lungs showed numerous small granulomas. She was treated with prednisolon for a short time with excellent recovery. She stall-fed horses and underneath them was straw containing organic dust. This is important to keep in mind as a differential diagnosis to farmers lung disease that is caused by hay. Keywords: case report, hypersensitivity pneumonitis, farmers lung disease. Correspondence: Gunnar Guðmundsson, ggudmund@landspitali.is Mynd l.Tölvusneiðmynd aflungum með dreifðum hélu- breytingum í báðum lungum. ræða svokallaðar hélubreytingar (ground glass) eins og sýnt er á mynd 1 og voru þær dreifðar um bæði lungun. Blóðrannsóknir sýndu væga hækkun á CRP en voru að öðru leyti eðlilegar. Bandvefsónæmispróf og komplímentpróf voru Læknablaðið 2005/91 587
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.