Læknablaðið - 15.07.2005, Blaðsíða 31
UMRÆÐA & FRETTIR / MALAREKSTUR Ll
Málefni lækna fyrirferðarmikil í dómsölum
- LÍ á aðild að fjórum málum sem varða kjör lækna
Læknafélag Íslands hefur að undanförnu séð sig
tilneytt að fara með ýmis túlkunaratriði kjara- og
ráðningarsamninga lækna fyrir dómstóla. í vor
féll úrskurður Félagsdóms í einu máli félaginu í
óhag. Tvö önnur mál bíða afgreiðslu dómstóla en
auk þess tók félagið að sér að kosta mál Tómasar
Zoega gegn Landspítalanum.
Málið sem tapaðist fyrir Félagsdómi snerist
um rétt heilsugæslulækna við Fleilbrigðisstofnun
Suðurlands til þess að ákveða sjálfir hvort þeir
ynnu á föstum mánaðarlaunum eða í afkastahvetj-
andi launakerfi. Forsagan er sú að með úrskurði
kjaranefndar haustið 2002 var kveðið á um að
heilsugæslulæknar gætu valið hvoru launakerfinu
þeir fylgdu. í fyrstu kusu fáir að vinna eftir afkasta-
hvetjandi kerfi en það breyttist í ársbyrjun 2004
þegar læknarnir á Selfossi ákváðu að vinna sam-
kvæmt því.
Þegar kom fram á mitt ár 2004 taldi yfirmaður
stofnunarinnar að launakostnaður væri orðinn of
hár og bað læknana að breyta ákvörðun sinni. Því
neituðu þeir og þá ákvað framkvæmdastjórinn að
frá og með síðustu áramótum skyldu læknarnir
vinna á föstum mánaðarlaunum. Þessu vildu lækn-
arnir ekki una og þess vegna stefndi LÍ fjármála-
ráðherra fyrir Félagsdóm. Niðurstaða dómsins
var sú að málinu hefði átt að vísa til almennra
dómstóla.
Gunnar Ármannsson framkvæmdastjóri LÍ
sem sótti málið fyrir hönd læknanna sagði í spjalli
við Læknablaðið að ákveðið hefði verið að fara
ekki með þetta mál fyrir almenna dómstóla.
Ástæðan er sú að ljóst þótti að endanleg niður-
staða fengist tæplega fyrr en um næstu áramót en
þá fellur gildandi úrskurður kjaranefndar úr gildi.
„Tilgangurinn með málssókninni fyrir Félagsdómi
var einmitt sá að fá niðurstöðu sem hægt hefði
verið að starfa eftir út gildistíma úrskurðar kjara-
nefndar. Það er nokkuð víst að ríkisvaldið muni
í komandi kjaraviðræðum setja fram kröfu um
að ákvæði sem samræmist þeirra skilningi - óháð
niðurstöðu dómstóla - verði fest í samningum,“
sagði Gunnar.
Dagvinnulaun og hvíldartími
Annað mál sem varðar túlkun kjarasamninga
bíður nú meðferðar fyrir Félagsdómi en það snýst
um skilgreiningu á hugtakinu dagvinnulaun. Málið
varðar lækna á Landspítala sem fá greidda svo-
nefnda viðbótarþætti ofan á föst dagvinnulaun.
Þeir geta verið vegna stjórnunar, kennslu eða ann-
arra sérverkefna og numið allt að fjórðungs upp-
bót ofan á dagvinnulaunin. Þegar þeir læknar sem
þetta gildir um ávinna sér frítökurétt vegna skerts
hvíldartíma og vilja fá hluta hans greiddan út eins
og samningar heimila, reka þeir sig á að launin sem
fást fyrir frítökuréttinn eru reiknuð á dagvinnu-
taxta án viðbótarþátta.
Um túlkun þessa ákvæðis í kjarasamningi
sjúkrahúslækna hefur verið deilt í samstarfsnefnd
LÍ og Landspítala í rúm tvö ár án þess að niður-
staða fengist. Þess vegna taldi stjórn LI nauðsyn-
legt að stefna Landspítalanum fyrir Félagsdóm svo
fá megi niðurstöðu um þetta atriði áður en kjara-
samningurinn rennur út.
Þriðja málið sem varðar túlkun kjarasamninga
var höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í apríl.
Það snýst um að tryggja unglæknum á Landspítala
sömu lágmarksréttindi og öðrum læknum hvað
varðar reglur um hvíldartíma. Eins og flestum er
kunnugt var samið um hvíldartíma lækna í kjara-
samningum sem gerðir voru í apríl 2002 og voru
„læknar í starfsnámi“ undanþegnir þessu ákvæði.
Síðan hefur staðið deila um hverjir teljist til þess
hóps. Stjórnendur spítalans hafa sett alla unglækna
undir þennan hatt og neita að viðurkenna að þeir
eigi rétt á fríi sem nemur hálfri annarri klukku-
stund fyrir hverja stund sem lágmarkshvíldartími
skerðist um.
Um þetta hefur staðið töluverður styr og átti
þetta ákvæði kjarasamningsins stærstan þátt í því
að unglæknar sögðu sig um tíma úr LÍ.
Með lagabreytingu sem gerð var í apríl 2003 var
öllu launafólki tryggður réttur á „samsvarandi"
hvíld síðar ef fullnægjandi hvíld fengist ekki á við-
miðunarsólarhring. Þetta hefur Landspítalinn ekki
viljað viðurkenna að gildi um unglækna og hefur
honum því verið stefnt vegna málsins.
Mál Tómasar Zoéga
Fjórða og síðasta málið sem LI hefur afskipti af
þessi misserin er málarekstur Tómasar Zoega
vegna þess sem hann telur ólögmæta breytingu
á störfum sínum hjá Landspítala. Málið höfðaði
Tómas eftir að stjórnendur Landspítala tilkynntu
honum 27. apríl síðastliðinn að hann yrði fluttur úr
Þröstur
Haraldsson
Læknablaðið 2005/91 599