Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2005, Síða 37

Læknablaðið - 15.07.2005, Síða 37
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AÐALFUNDUR LÍ / SAGA LÆKNISFRÆÐINNAR Siðamál lækna og læknisfræði á íslensku Málþing til heiðurs Erni Bjarnasyni Haldið laugardaginn 1. október 2005 í Hlíðasmára 8, Kópavogi Fundarstjóri: Jón Snædal 09:00-09:10 Setning - Sigurbjörn Sveinsson formaður Læknafélags íslands 09:10-09:30 Örn Bjarnason - Tómas Zoéga 09:30-10:00 Orðræða um læknisfræði á íslensku. Framlag Arnar Bjarnasonar - Guðmundur Þorgeirsson 10:00-10:30 Trúnaðarlækningar - Kristinn Tómasson 10:30-11:00 Kaffi 11:00-12:00 Dual responsibility - John R. Williams, Director of Ethics, World Medical Association Þíng áhugamanna um sögu læknísfræðinnar - verður haldið í Reykjavík 10.-13. ágúst í sumar heldur Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar alþjóðlegt þing í Háskóla íslands. Norrænu samtökin um sögu læknisfræðinnar þinga annaðhvert ár og er röðin komin að íslandi. Stjórn félagsins ákvað að gera þingið enn alþjóðlegra en ella með því að skylda fyrirlesara til að mæla á tungu eng- elskra en ekki á hefðbundna skandinavísku. Þegar hafa um 50 útlendingar boðað komu sína og nokkur fjöldi Frónbúa. Á þinginu verður fjallað um margvísleg söguleg efni en yfirskrift þingsins er „sjúklingur og samfélag". Rælt veröur um læknislist á miðöldum, konur í læknisfræði, sögu tannlækninga, sögu lyfjafræði, faraldsfræði pesta, heimilislækninn að fornu og nýju og fleira. Læknislist í íslendingasögum verður gerð sérstök skil. Þrír aðalfyrirlesarar flytja lengri tölur; Jan Sundin frá Svíþjóð, Haraldur Briem úr Laugarásnum í Reykjavík og Charlotte Kaiser frá Þýskalandi. Fjölmatgir verða með styttri erindi um margvísleg efni í amk. þremur sölum samtímis. Auk þess verða veggspjöld til sýnis. Miövikudag 10. ágúst - safnast þáltttakendur saman til skrafs og ráðagerða í Þjóðmenningarhúsinu til að bera saman fundargögn, lyfta glasi og hlýða á tónlist og stuttar hátíða- ræður. Finimtudag 11. ágúst - hefðbundið fyrirlestrahald með nauðsynlegum hressandi hléum. Föstudag 12. ágúst - fer öll ráðstefnan á Snæfellsnes og sigl- ir um Breiðafjörð. Ferðalagið á einkum að ljúka upp augum gesta fyrir þeim vanda sem læknar fyrri alda stóðu andspænis áður en jeppar urðu fleiri en prentuð eintök Passíusálmanna. Komið verður í Bjarnarhöfn og fræðst um Þorleif Þorleifsson smáskammtalækni, og síðan að Borg á Mýrum. Þar verður fjallað um einn öflugasta geðlækni Islendingasagna, Egil Skallagrímsson, sem stríddi reyndar eins og fleiri mektarmenn við margs konar geðfár. Á Breiðafjarðarsiglingunni verður fræðst um líf lækna sem áður stunduðu eyjaskeggja. Á heim- leiðinni verður snætt í Skessubrunni. Laugardag 13. ágúst - fyrirlestrar fram eftir degi, síðan farið í Bláa lónið þar sem Grímur Sæmundsen læknir og starfsmenn hans bjóða uppá bað og bús. Ráðstefnunni verður slitið með sameiginlegum kvöldverði.hefðbundnumræðumog verðlauna- afhendingu í veitingasal Lónsins. Við hvetjum lækna og aðra áhugamenn um sögu læknis- fræðinnar til að koma og taka þátt í þessu þingi. Því hefur stundum verið fleygt að íslenskir læknar telji að saga læknis- fræðinnar hafi þá fyrst hafist þegar þeir sjálfir byrjuðu störf og henni ljúki þegar þeir leggi hlustarpípuna á hilluna. Þátttaka í söguþingi sem þessu sendir slíkt ábyrgðarlaust gaspur beint til föðurhúsanna. Ráðstefnugjaldi er í hóf stillt fyrir meðlimi í Félagi áhugamanna um sögu læknisfræðinnar. Leitið frekari upplýsinga á heimasíðu ráðstefnunnar www.icemed.is/saga/ Óttar Guönuindsson Læknablaðið 2005/91 605

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.