Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2005, Síða 46

Læknablaðið - 15.07.2005, Síða 46
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNINGAMINJASAFN Hvað á að gera víð Nesstofu? joli@centrum. is Höfundur er sagnfræðingur. í allmörg ár hafa verið uppi hugmyndir að koma lækningaminjasafni fyrir í Nesstofu eða byggja sér- stakt safn í nágrenni hússins. Nesstofa var byggð á árunum 1761-1763 sem embættisbústaður land- læknis og þar bjuggu fyrstu landlæknar íslands til ársins 1833, og um tíma einnig lyfsali. A fyrstu árum landlæknis var tekið á móti sjúklingum í Nesi og landlæknir tók til sín nemendur og kenndi þeim læknisfræði. Stofnun landlæknisembættis 1760 markar upphaf opinberrar heilsugæslu og heilbrigðisþjónustu og staðfesti að heilbrigði þegnanna væri eitt af hagsmunamálum yfirvalda. Hlutverk stjórnvalda var að sjá til þess að fólk væri heilbrigt, meðal annars með forvarnarráðstöfun- um og að búa til það félagslega og efnahagslega umhverfi sem kæmi í veg fyrir útbreiðslu sjúk- dóma. í Nesstofu var sannarlega upphaf íslenskrar heilbrigðisþjónustu. Er ástæða til að stofna saf'n um sögu læknisfræð- innar, lækna og lækningar í Nesstofu eða nágrenni hennar? Margir læknar hafa verið fylgjandi þessari hugmynd og hún nýtur stuðnings Læknafélags íslands sem hefur jafnframt haldið því fram að það sé í verkahring Þjóðminjasafns Islands að reisa hús yfir safnið. Gömul læknisverkfæri sem voru til sýnis um tíma í Nesstofu eru hluti af Þjóðminjasafni og starfsmaður safnsins hafði umsjón með því. I Lœknablaðinu hefur verið fjallað um þessi mál og þar sagði meðal annars: „Staðan er sú að þótt Nesstofa sé hið mætasta hús og merkileg bygging þá er hún ekki vel fallin til sýninga á öðru en sjálfri sér. Nútíminn gerir kröfur til þess að rúmt sé um sýningargripi og safngesti og þess vegna var efnl til samkeppni um byggingu húss sem rúmað gæti sýningarsal, bókasafn og vinnuaðstöðu fyrir fræði- menn“ (Læknablaðið 2005; 91: 372-5). Teikning af safnahúsi liggur á borðinu og vísað er til hugmynda Jóns Steffensen um uppbyggingu á slíku safni en erfðafé hans átti meðal annars að nota til eflingar og rannsókna á sögu læknisfræðinnar. En hvað á að sýna í þessu safni, hvers vegna á að sýna það og hvcrt er niarkmiðið með sýningar- haldimi? Þeim spurningum hefur ekki verið svarað lil hlítar. Á íslandi eru fjölmörg söfn víða um land sem flest eru keimlík en á síðari árum hafa risið söfn þar sem einblínt er á ákveðin verkefni eða þemu, til dæmis Síldarminjasafnið á Siglufirði, Vesturfarasafnið á Hofsósi og Textílsafnið á Blönduósi. Einkenni allra þessara safna er að í þau er safnað saman gömlum hlutum sem tengjast viðfangsefninu og þeir merktir á einfaldan hátt. Yfirleitt er gert ráð fyrir töluverðri þekkingu á efninu til þess að gestir geti notið sýningarinnar en til að hjálpa til er stundum gefin út leiðsögn um safnið eða hengd upp upplýsingaspjöld. Á allra síðustu árum hefur tölvutæknin verið nýtt til sýningahalds og gefast þá mun fleiri möguleikar til að koma upplýsingum á framfæri með mynd- um, hljóði eða meiri texta. Nokkur söfn, svo sem Þjóðminjasafnið og Rafheimar við Elliðaár, bjóða upp á safnakennslu og taka á móti skólakrökkum sem fá leiðsögn og kennslu í þeim viðfangsefnum sem eru á safninu. Víða um lönd hafa verið sett á laggirnar söfn um lækna og lækningar, læknisfræði og lyfjafræði. Flest þessara safna eru hefðbundin, þar eru sýndir gamlir hlutir, myndir, líkamshlutar, beinagrindur, lyfjaglös og svo framvegis, þannig er til dæmis Lyfjafræðisafnið við hlið Nesstofu og Lækningaminjasafnið í Kaupmannahöfn. Þessi söfn fá yfirleitt ekki mikla aðsókn og eru sjaldnast notuð til annars en að geyma gamla hluti. Hug- myndin um læknaminjasafn eins og hún hefur verið kynnt er í þessum farvegi og er ekki líkleg til að auka þekkingu og áhuga á læknisfræði í fortíð og nútíð. Að byggja yfir gamla hluti sem hafa litla sem enga skírskotun til heilbrigðismála nútímans þjón- ar takmörkuðum tilgangi fyrir almenning þótt það geti verið athyglisvert fyrir áhugamenn um sögu læknisfræðinnar, sérstaklega þá sem hafa áhuga á aðgerðatækni fortíðarinnar. Sú hugmynd að byggja heilt safn fyrir slíka hluti með bókasafni og vinnuaðstöðu fyrir fræðimenn, eins og teikning arkitekta að lækningaminjasafni gerir ráð fyrir, er úrelt í ljósi nútímatækni og þeirrar aðstöðu sem nú þegar er til staðar á Landsbókasafni íslands - Háskólabókasafni og Þjóðminjasafni. í grein í Lœknablaðimi (2005; 91: 294-7) „Sagan stendur hjartanu næst“ segir Bengt W. Johansson meðal annars að nú á dögum sé allt umreiknað til fjár en saga læknisfræðinnar geti líka verið arðbær, og bætir við: „I samfélagi nútímans verða nýjungar fljótt að hátísku. Það gildir einnig um læknavísind- in. Vissulega verðum við að lifa í nútíðinni, en saga læknisfræðinnar opnar augu okkar fyrir því að það sem er talið óyggjandi sannindi í dag getur þurft að vfkja fyrir öðrum óhrekjanlegum sannleik strax á morgun. ... Saga læknisfræðinnar kennir okkur hversu mikilvægt er að sjúklingurinn sé ávallt mið- punktur athyglinnar. Hippókrates benti á þetta 614 Læknablaðið 2005/91

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.