Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.09.2014, Side 4

Fréttatíminn - 12.09.2014, Side 4
CLAUDIA Hettuúlpa kr. 29.990 www.icewear.is FREISTANDI AUKAHLUTA- PAKKAR FYRIR AURIS MEÐAN TILBOÐIÐ VARIR Aukahluta- pakkar á tilboði LIVE PAKKI 259.000 kr. Filmur í rúður Krómlisti á skott Krómstútur á púst Þokuljósasett Krómlistar á hliðar 16” álfelgur (Orion) Fullt verð 426.829 kr. Tilboðsverð SPORT PAKKI 105.000 kr. Filmur í rúður Toppgrindarbogar Skíðafestingar fyrir 4 skíði Gúmmímotta í skott Hlíf á afturstuðara (póleruð) Fullt verð 173.568 kr. Tilboðsverð HLÍFÐAR PAKKI 168.000 kr. Toyota ProTect 5 ára lakkvörn Filmur í rúður Gluggavindhlífar 4 stk. Hliðarlistar (svartir) Hlíf á afturstuðara (póleruð) Stuðaravörn (svört) Gúmmímotta í skott Filmur á handföng að framan Fullt verð 246.581 kr. Tilboðsverð *Live pakkinn er ætlaður fyrir grunnútgáfu Auris og Auris TS. Óskir um Live pakka fyrir aðrar útgáfur bílanna kalla á sérsniðna aðlögun í samráði við söluráðgjafa.  Bílar EndurgrEiða þarf afsláttinn Ef BílalEiguBílar Eru sEldir innan 15 mánaða Bílaleigur fá ekki afslátt af vöru- gjöldum umhverfisvænstu bílanna Enginn afsláttur er veittur af vörugjöldum bílaleigubíla sem menga minna en 140 grömm af koldíoxíði á ekinn kílómetra en framkvæmdastjóri Brimborgar telur að um helmingur allra bílaleigubíla falli undir þessi mengunarmörk. Flestir seldir bíla- leigubílar frá ársbyrjun 2013 hafa verið 8 mánuði í leigu en nú eru aftur í gildi þær reglur að endurgreiða þarf afslátt af vöru- gjöldum bifreiða sem seldar eru fyrir 15 mánuði í leigu. B ílaleigur fá engan afslátt af vörugjöldum umhverf-isvænstu fólksbílanna. Af- sláttur af vörugjöldum tekur aðeins til bílaleigubíla sem gefa frá sér yfir 140 grömm af koldíoxíði á hvern ekinn kílómetra. Sem dæmi fellur mengun nýrrar Toyotu Corolla og Ford Fiesta undir þessi mörk. „Þess- ir minni bílar sem menga minna eru vinsælustu bílaleigubílarnir,“ segir Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri Brimborgar, sem bæði selur nýja, notaða og bílaleigubíla. Hann telur að þeir bílar sem falla undir þessi mengunarmörk séu um helmingur bílaleigubíla á Íslandi. Frá janúar 2013 hafa langflestir seldir bílaleigubílar á Íslandi verið 8 mánuði í leigu. Almenna reglan er að bílaleigubílar þurfa að hafa verið í leigu í 15 mánuði áður en þeir eru seldir á almennum markaði, annars þurfa bílaleigurnar að greiða viðbót- arvörugjöld sem nema afslættinum sem þær fengu. Í ársbyrjun 2011 samþykkti Alþingi undanþágu þess efnis að bílaleigur mættu selja hluta af bílaflota sínum eftir 6 mánaða notkun. Ástæðan var sú að endur- nýjun bílaleigubíla var lítil á þessum tíma og var ætlunin að örva hana. Þessi undanþága féll úr gildi síðustu áramót. Samkvæmt upplýsingum frá Sam- göngustofu hafa 216 bílaleigubílar verið seldir frá ársbyrjun 2013 eftir 8 mánuði í leigu. Um 100 bílar voru seldir eftir 10, 12, 14 eða 16 mánuði á þessu tímabili, alls tæplega 400 bílar. Gögn frá Samgöngustofu taka ekki tillit til aldurs bílsins en flestir bíla- leigubílar eru þó skráðir sem slíkir skömmu eftir nýskráningu. Þær reglur sem eru nú í gildi miða við 15 mánuði í leigu til að þurfa ekki að greiða viðbótarvörugjöld en þó ber að hafa í huga að það er alls ekki afsláttur af vörugjöldum allra bíla heldur aðeins þeirrar sem menga minnst. Almenn vörugjöld eru flokk- uð frá A - J þar sem þeir bílar sem menga minnst eru í flokki A og þeir sem menga mest í flokki J. Byrjað er að gefa afslátt af bílaleigubílum í flokki E, bíla sem gefa frá sér 141- 160 gr/km CO2. Almenn vörugjöld eru þar 25% en vörugjöld bílaleigu- bíla 5%. Þegar byrjað var að veita afslátt af vörugjöldum á bílaleigubílum var ekkert þak og gátu bílaleigur þá fengið allt að 3 milljónir í afslátt en nú er einnar milljóna króna þak og aldrei meiri afsláttur en sem því nemur. Egill Jóhannsson segir að fyrir sölu bílaleigubíla sé notað ákveðið reiknilíkan og þegar eknir kílómetr- ar fara yfir ákveðið viðmið lækki ásett verð sem því nemur. „Afsláttur af vörugjöldum skiptir miklu til að hægt sé að reka bílaleigur. Þegar bíl- arnir eru mikið eknir eru þeir fljótir að falla í verði og það er því ekki eins og afslátturinn dugi til að búa til ofsa- gróða,“ segir hann. Á síðasta ári var sérstakt leyfis- gjald í fyrsta sinn lagt á bílaleigur og fékk ríkið 65 milljónir króna vegna þessa gjaldaliðs á fyrstu 10 mánuðum síðasta árs. Um 150 bíla- leigur voru starfandi á síðasta ári og greiddu þær alls ríflega milljarð til ríkisins í gegnum virðisaukaskatt, tekjuskatt, tryggingagjald og vöru- gjöld, auk leyfisgjalds. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Dæmi 3 milljóna króna sportjeppi (Innflutningsverð) Gjaldflokkur F: 161-180 gr/km CO2 Almennt vörugjald: 35% Vörugjöld á bílaleigubíl: 10% Vörugjöld á fólksbifreið: 1,05 milljón Vörugjöld á bílaleigubíl: 300 þúsund Afsláttur fyrir bílaleigubíl: 750 þúsund * 1 milljóna króna þak er á afslættinum Dæmi 3 milljóna króna sportjeppi (Innflutningsverð) 1,5 milljóna króna smábíll (Innflutningsverð) Gjaldflokkur C: 101-120 gr/km CO2 Almennt vörugjald: 15% Vörugjöld á bílaleigubíl: 15% Vörugjöld á fólksbifreið: 225 þúsund Vörugjöld á bílaleigubíl: 225 þúsund Afsláttur fyrir bílaleigubíl: 0 krónur Dæmi Gjaldflokkar A-E: 0-160 gr/km CO2 Enginn afsláttur af vörugjöldum fyrir bílaleigubíla Ölgerðin fær reikning upp á milljarð „Þetta er fúlt mál en ég trúi því að þessu verði snúið við,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðar Egils Skallagrímssonar, en endurálagning ríkisskattstjóra vegna öfugs samruna fyrirtækisins frá árinu 2008 til loka árs 2013 nemur rúmum einum milljarði króna. Ölgerðin kom af þessum sökum út í tapi á síðasta rekstrarári. Bréf í Icelandair féllu um 2,22% Gengi hlutabréfa Icelandair Group féll um 2,22% í Kauphöllinni í gær. Eins og aðra daga var talsverð velta með hlutabréfin en hún nam 254 milljónum króna í gær. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa fasteignafélagsins Regins um 1,29%. Þá lækkaði gengi bréfa VÍS um 0,97%, N1 um 0,54%, Sjóvár um 0,49% og TM um 0,20%. Á móti hækkaði gengi bréfa Haga um 0,89%, Marel um 0,41% og HB Granda um 0,17%. Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,55% og endaði hún í 1.144 stigum. Heildarvelta með hlutabréf í Kauphöllinni nam 362,7 milljónum króna. Lyktin berst til Noregs Norska ríkisútvarpið NRK greinir frá því að vart hafi orðið við brennisteins- fnyk yfir norðurströnd Noregs þessa dagana og rekur óþefinn til eldgossins í Holuhrauni. Rætt er við Vibeke Thyness hjá norsku veðurstofunni. Hún segir að sennilega stafi gaslyktin af brennisteins- díoxíði frá eldstöðinni. Norðmönnum stafi ekki hætta af gasinu sem hafi farið langan veg og sé útþynnt. Leiða má líkur að því að lyktin sem Norðmenn eru að finna sé það sem Íslendingar kannast við sem hveralykt. Thyness segir jafnframt að minni líkur séu á öskuskýi eins og fylgdi eldgosinu í Eyjafjallajökli fyrir fjórum árum. Varamenn fái að taka sæti Átta þingmenn Samfylkingar, Pírata og Bjartrar framtíðar hafa lagt fram frumvarp á Alþingi um þingsetu ráðherra. Samkvæmt því er ráðherra sem jafnframt er kjörinn alþingismaður gert kleift, ef hann telur ástæðu til, að ákveða að varamaður hans taki sæti á Alþingi á meðan hann gegnir ráðherra- embætti.  Vikan sEm Var 4 fréttir Helgin 12.-14. september 2014

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.