Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.09.2014, Blaðsíða 86

Fréttatíminn - 12.09.2014, Blaðsíða 86
— 2 — 12. september 2014 Á þriðja þúsund látin vegna ebólu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin greindi frá því í vikunni að um 2.300 manns hafi látist úr ebólu í Gíneu, Líberíu og Sierra Leone síðan sjúkdómurinn kom upp þar í byrjun árs. Veiran dregur nafn sitt af ánni Ebólu í Austur-Kongó en þar og í Súdan kom hún fyrst fram á sjónarsviðið árið 1976. Talið er að ebóla smitist frá dýrum í menn en vísindamenn hafa ekki enn komist að því hvort apar eru dýrahýs- illinn eða hvort önnur spendýr, fuglar, skriðdýr, moskítóflugur eða blóðmítlar komi við sögu í lífsferli veirunnar. Ebóla veldur því að frumur og vefir skemmast. Tíminn frá smiti til einkenna getur verið 4 til 16 dagar en er oftast innan við tvær vikur. Tíminn frá því að sjúkdómurinn gerir vart við sig þar til sjúklingurinn annað hvort deyr eða byrjar að jafna sig er oftast sjö til tíu dagar. Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. Ritstjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@ frettatiminn.is. Ritstjórnarfulltrúi: Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@ frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónas- son teitur@frettatiminn.is . Líftíminn er gefinn út af Morgundegi ehf., prentaður í 85.000 ein- tökum í Landsprenti og dreift mánaðarlega með Fréttatímanum og á heilbrigðisstofnanir. Ný tækni við göngu- greiningu Flexor notast við nýja tækni við göngugreiningu. Göngu- og hlaupa- brettið okkar býr yfir innbyggðum þrýstinemum sem skilar nákvæmum upplýsingum um göngulag. Fáðu góð ráð, faglega göngugreiningu og lausnir við stoðkerfisvandamálum hjá Flexor. Pantaðu tíma í síma 5173900 Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900 Niðurstöður rannsókna vísinda- manna við University of Illinois benda til að efnið BPA geti haft skaðleg áhrif á frjósemi. BPA er skammstöfun á orðinu Bisphenol A. Efnið má finna í plastílátum, drykkjarflöskum og matarílátum úr plasti, niðursuðudósum og kassa- kvittunum. Efnið er notað til að herða plast. Í rannsókninni var ung- um kvenkyns músum gefið ákveðið magn af BPA daglega í mánuð og eggjastokkar þeirra síðan rannsak- aðir. Niðurstöðurnar bentu ótví- rætt til að egg músanna sem fengið höfðu BPA voru færri og smærri en annarra músa. Frekari rannsóknir sýndu að BPA getur valdið röskun á starfsemi hormóna. Þá sýndu niður- stöðurnar að mýsnar hættu að fram- leiða lífvænleg egg óeðlilega ungar. Niðurstöður annarra rannsókna hafa jafnframt sýnt fram á áhrif BPA á menn og dýr. Vísindamenn hafa áhyggjur af því að BPA á æskuár- um geti haft áhrif á frjósemi kvenna síðar meir og að innbyrði fullorðnar konur efnið geti það haft þau áhrif að barneignaraldur þeirra styttist. BPA var bannað í pelum fyrir ungbörn á Íslandi árið 2011. Frá og með 1. janúar 2015 verður efnið bannað í matarumbúðum í Frakk- landi. Nokkur lönd hafa þegar bann- að sölu á ungbarnapelum, snuðum og fleiru sem inniheldur BPA. Áhrif BPA á frjósemi kvenna Dagn ý HulDa Er lEnDsDót tir H júkrunarfræðingar sækja enn mikið til Noregs þar sem mik-il eftirspurn er eftir starfskröftum þeirra, að sögn Ólafs G. Skúlasonar, formanns Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga. „Sífellt fleiri vinna í lotum í Noregi. Í einhverjum tilfellum minnkar fólk við sig starfshlutfall hér á landi og hefur lotuvinnuna á móti. Með flutningum á norskum launum yfir til Íslands fást mun hærri laun en hjúkrunarfræðingur fær fyrir sama starf hér á landi.“ Þá segir hann einnig töluvert um að hjúkrunarfræðingar flytji bú- ferlum til Noregs og nú nýlega í auknum mæli til Svíþjóðar. „Erfitt hefur verið að manna stöður hjúkr- unarfræðinga upp á síðkastið og er ástandið sérstaklega slæmt á hjúkrunarheimilum. Einnig hefur borið á skorti á stærri heilbrigðis- stofnunum.“ Á næstu þremur árum geta um 900 hjúkrunarfræðingar farið á eftirlaun og telst Ólafi til að á þeim tíma muni um 400 hjúkr- unarfræðingar útskrifast. Því blasi við verulegur vandi varðandi mönnun hjúkrunarfræðinga. Að sögn Kristínar Á. Guð- mundsdóttur, formanns Sjúkra- liðafélags Íslands, heldur straum- ur íslenskra sjúkraliða til Noregs áfram en einnig er algengt að þeir starfi í Svíþjóð og Danmörku. „Nú hefur keyrt um þverbak varðandi fjöldann sem starfar í Noregi. Einnig er mikið um að fólk nýti sumarfríin sín frá vinnu á Íslandi til að vinna þar.“ Þá segir Kristín nokkuð um að sjúkraliðar sem vilji flytja aftur til Íslands treysti sér ekki til þess og að launin séu ekki eina ástæðan, heldur einnig gríðarlegt álag í vinnu. „Á hinum Norðurlöndunum er menntun sjúkraliða mun betur nýtt. Þar sinna þeir þeim störfum sem þeir hafa menntun og þjálfun til. Hér á landi er það orðið þannig á sumum hjúkrunarheimilum að sjúkraliðar starfa í þvottahúsum og við skúr- ingar.“ Mikill meirihluti sjúkraliða á Íslandi er kominn yfir fimmtugt og því líkur á enn meiri vöntun á þeim á næstu árum. Á Landspítal- anum eru aðeins 58 sjúkraliðar 50 ára eða yngri en 309 eru komnir yfir fimmtugt. Flótti meðal íslenskra lækna var mestur árin 2009 og 2010 og fækkaði þeim þá um 10 prósent. Að sögn Þorbjörns Jónssonar, for- manns Læknafélags Íslands, hefur þeirri þróun ekki enn verið snúið við. „Megin vandinn er sá að ungir læknar flytja ekki til Íslands að sér- námi loknu. Frá hruni hefur með- alaldur sérfræðinga og yfirlækna á Íslandi hækkað um 3 ár og er í dag liðlega 55 ár. Þá er einnig töluvert um að læknar á miðjum aldri ann- að hvort minnki við sig vinnu á Ís- landi og vinni að hluta til erlendis eða starfi alfarið erlendis.“ Samantekt Læknafélagsins leiddi í ljós að af þeim læknum sem fengu lækningaleyfi og störfuðu á Íslandi á árunum 2004 til 2006 hafi aðeins fjórðungur komið til baka að loknu sérnámi. Þorbjörn segir það mun minna en fyrir hrun þegar búast mátti við að 80 til 90 prósent lækna flyttu til baka. Á næstu fimm árum fara 130 læknar á eftirlaun sem er helmingi meira en síðustu fimm ár. Ekkert lát á flóttanum Frá hruni hafa margir heilbrigðisstarfsmenn sótt sér atvinnu á erlendri grund þar sem laun og vinnuaðstæður eru betri. Þó sex ár séu liðin virðist lítið lát vera á flóttanum og stefnir í óefni. Nýliðun er ekki næg meðal sjúkraliða, lækna og hjúkrunarfræðinga og fer aldur stéttanna hækkandi. 900 hjúkrunarfræðingar geta farið á eftirlaun á næstu þremur árum. Á sama tíma er áætlað að um 400 nýir hjúkrunar- fræðingar ljúki námi. Hér á landi er það orðið þannig á sumum hjúkrunarheimilum að sjúkraliðar starfa í þvottahúsum og við skúringar. Árin 2009 og 2010 fækkaði læknum á Íslandi um 10 prósent. Ungir læknar flytja síður hingað til lands að loknu sérnámi og töluvert er um að þeir eldri starfi að hluta til eða alfarið erlendis. Ljósmynd/NordicPhoto/GettyImages Í dag koma 25% lækna aftur til Ís- lands að loknu sérnámi. Áður var hlutfallið 80 til 90%. Á Landspítal- anum eru 58 sjúkraliðar yngri en 50 ára en 309 eldri en 50 ára. 900 hjúkrun- arfræðingar geta farið á eftirlaun á næstu 3 árum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.