Fréttatíminn - 12.09.2014, Blaðsíða 22
Otrivin Comp, nefúði, lausn. Innihaldslýsing: Xýlómetazólínhýdróklóríð 0,5 mg/ml og ipratrópíumbrómið. Ábendingar: Einkenni nefstíflu (þrútinnar nefslímhúðar) og nefrennslis af
völdum kvefs. Skammtar og lyfjagjöf fyrir fullorðna eldri en 18 ára: 1 úðaskammtur í hvora nös eftir þörfum, að hámarki þrisvar á sólarhring. Að minnsta kosti 6 klukkustundir skulu
líða milli tveggja skammta, draga skal úr skömmtum þegar einkenni lagast. Ekki má nota Otrivin Comp lengur en 7 daga þar sem langvarandi notkun xýlómetazólínhýdróklóríðs getur
leitt til bólgu í nefslímhúð og aukinnar slímmyndunar. Snýttu þér. Fjarlægðu glæru plasthettuna. Skorðaðu úðaflöskuna milli fingranna. Úðað er með því að þrýsta kraganum niður að
flöskunni. Hallaðu höfðinu örlítið fram. Stúturinn á úðaflöskunni er settur upp í nösina. Úðað er einu sinni, um leið og andað er að sér inn um nefið. Farðu eins að í hina nösina. Ekki má
nota lyfið ef þú ert með ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, ofnæmi fyrir atrópíni eða svipuðum efnum (t.d. hýoscýamín eða skópólamín), ef þú hefur gengist undir aðgerð í gegnum
nefið eða munninn, ef þú ert með nefþurrk vegna slímhúðarbólgu eða ert með gláku. Ráðfærðu þig við lækni áður en lyfið er notað ef þú ert: Þunguð, með barn á brjósti, næmur
fyrir adrenvirkum efnum, hjarta- eða æðasjúkdóm, skjaldvakaóhóf, sykursýki, háþrýsting, erfiðleika við þvaglát (stækkaðan blöðruhálskirtil), æxli í nýrnahettum, ef þú færð oft blóðnasir
(t.d. aldraðir), ert með þarmalömun, slímseigjusjúkdóm, þunglyndi og ert á lyfjameðferð við því. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður
en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
Otrivin Comp - gegn
nefstíflu og nefrennsli
Andaðu með nefinu
Með hundrað manns í vinnu
við að setja upp sýningar
É g hef haft það að leiðarljósi að fólk upplifi eitthvað sem það hafi ekki séð áður á Íslandi.
Þetta er að stærstum hluta tónlist eft-
ir listamenn sem eru ekki lengur að
og eru ekki að fara að koma hingað
til lands. Þetta er því flott leið fyrir
gamla aðdáendur að koma með börn-
in sín og barnabörnin og kynna tón-
listina fyrir næstu kynslóðum,“ segir
Friðrik Ómar Hjörleifsson, söngvari
og framleiðandi.
Friðrik Ómar er landskunnur tón-
listarmaður en hefur síðustu misseri
skapað sér nafn sem afkastamikill
tónleikahaldari. Sérsvið hans eru sýn-
ingar þar sem íslenskir tónlistarmenn
flytja lög erlendra tónlistarmanna.
Eins og á Broadway í gamla
daga
Það er vitaskuld ekkert nýtt að ís-
lenskir tónlistarmenn flytji lög er-
lendra listamanna. Árum saman
voru sett upp sjóv á Broadway og
Hótel Íslandi og hljómsveitin Dúnd-
urfréttir, sem fagnar á næsta ári 20
ára afmæli, hefur sérhæft sig í að
flytja lög eftir hljómsveitir á borð
við Pink Floyd og Led Zeppelin. Það
sem vekur athygli er annars vegar
að mjög mikið er lagt í tónleikana
og sýningarnar en hins vegar, og alls
ekki síður, magnið sem í boði er.
Svo farið sé á hundavaði yfir fram-
boðið á heiðurstónleikum og sýn-
ingum síðustu misserin má nefna:
Eagles, Afmæli Sgt. Peppers,
Freddie Mercury, Bee Gees, Led
Zeppelin, Abba, Meatloaf, ELO,
Eurovision og Tom Waits. Þá eru
ótaldir ýmsir tónleikar á Gauknum
þar sem rokksveitir á borð við Nirv-
ana, Pearl Jam, Alice in Chains og
Jeff Buckley eru heiðraðar.
Friðrik Ómar virðist staðráðinn
í að fara lengra með þetta en nokk-
ur annar. Honum hefur enda tek-
ist mjög vel upp. Freddie Mercury-
sýningin hans var til að mynda sett
fimmtán sinnum upp á sínum tíma
og Bat out of Hell, þrjátíu ára gömul
plata Meatloaf, komst inn á topp tíu
yfir söluhæstu plötur landsins eftir
Meatloaf-sýningu Friðriks.
„Þetta hefur haft mjög víðtæk
áhrif. Fólk sem hefur sett sig í sam-
band við mig hefur til dæmis sagt
frá krökkum sem hafa ekki hlustað
á annað en Meatloaf eftir sýning-
una,“ segir Friðrik.
Hver er hugsunin hjá þér?
„Ég sviðset lögin upp á nýtt og
reyni að nota þau í annarri umgjörð
en þau hafa kannski verið. Ég legg
meira upp úr sjóinu en kannski hef-
ur þekkst, búningum og sviðsmynd.
Þetta er samt ekkert annað en það
sem var að gerast á Broadway, kons-
eptið er það sama en allt er stærra.
Tæknin nú býður upp á meira.“
40-50 manns á launaskrá
Friðrik segir að mikil vinna fari í að
setja upp tónleika og sýningar eins
og hann geri það. „Það eru á milli
40-50 manns sem vinna við hverja
sýningu, fólk sem er á sviðinu að
skemmta og fólk á bak við sem
sér um búninga, lýsingu og
svo framvegis. Þetta er fólk
sem er á minni launaskrá. Í
vetur er ég með fimm verk-
efni í gangi og það eru yfir
hundrað manns sem taka
þátt í þeim.“
Er þetta þitt aðalstarf?
„Þetta er mín 9 -5
vinna. Ég byrjaði á
þessu sem krakki á
Dalvík, að setja upp
sjóv í leikhúsinu. Nú
er ég farinn að blanda
þessu meira saman, tón-
leikum og sýningum.“
Alltaf með í maganum
Telurðu að þessar sýningar
séu viðbót við markaðinn eða
fer fólk á færri tónleika fyrir vikið?
„Með tilkomu húsa eins og Hörpu
og Hofs eru fleiri og fleiri farnir að
fara á tónleika. Það hefur viljað loða
við að það er alltaf sama fólkið sem
fer á tónleika en mér sýnist það vera
að breytast. Ég hef til dæmis boðið
fólki sem hafði aldrei farið á tón-
leika en er í kjölfarið farið að sækja
þá. Sveitaböllin eru farin þannig að
þetta er leiðin til að hlusta á lifandi
tónlist í dag. Ég fæ ekki betur séð en
að allt styðji þetta við hvert annað.
Það má vera að það sé of mikið
framboð en ég tek ekki eftir
því á stærri viðburðunum.
Vissulega er áhættan allt-
af mjög mikil þegar þú ert að
halda stóra tónleika, eins og í
Eldborg. Maður er alltaf með í
maganum enda er fullt af fólki
að vinna fyrir mann. Þegar fram-
boðið er mikið þá verður fólk meira
„pikkí“ og þá treystir maður á góðar
umsagnir. Ég er að byggja upp vöru-
merki.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Friðrik Ómar setur upp
fimm sýningar í vetur
og verður með yfir
hundrað manns í vinnu.
Mynd/Gassi
Hópurinn sem setti upp Bat out of Hell í Eldborgarsal Hörpu var ánægður að
sýningunni lokinni.
Heiðurstónleikum og
sýningum þar sem íslenskir
tónlistarmenn flytja lög
erlendra kollega sinna hefur
fjölgað til muna að undan-
förnu. Íslenskir tónleika-
haldarar nýttu sér glufu á
markaði þegar Harpa og Hof
voru opnuð og hlé varð á inn-
flutningi erlendra listamanna
eftir hrun. Friðrik Ómar virðist
ákveðinn í að gera sýninga-
hald að nýrri iðn.
Framundan
hjá Friðriki
Bat out of Hell í september.
U2 tónleikasýning í október.
Töfrar Tom Jones í nóvember.
Afmælistónleikar Vilhjálms Vilhjálms-
sonar í apríl.
Til heiðurs Tinu Turner í maí.
Magni Ásgeirsson
Matti Matt
Friðrik Ómar
Eyþór Ingi
Eiki Hauks
Regína Ósk
Erna Hrönn
Heiða Ólafs
Jógvan
Pétur Jesú
Persónur og leikendur
Mikill fjöldi tónlistarmanna tekur þátt
í heiðurstónleikum og sýningum hér á
landi en þetta fólk virðist alltaf vera í
framlínunni:
22 úttekt Helgin 12.-14. september 2014