Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.09.2014, Blaðsíða 33

Fréttatíminn - 12.09.2014, Blaðsíða 33
H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA ur ferðarinnar var að kynna sér þann árangur sem náðst hefur í uppbyggingarstarfinu og að sama skapi til að sjá hvað mætti betur fara. „Við byrjuðum á að vera í höf- uðborginni Antananarivo en svo ferðuðumst við til Tamatave sem er borg á austurströnd eyjunnar. Þar heimsóttum við heilsugæslu- stöðvar og skóla og fylgdumst með starfinu þar. Mér fannst fal- legt að sjá hversu mikið af heima- mönnum og þá sérstaklega mæð- ur vinna fyrir UNICEF, jafnvel sem sjálfboðaliðar. Þær fylgjast með börnum og öðrum mæðrum í þorpunum sínum, hjálpa til við bólusetningar og nota málbönd til að mæla litla handleggina til að greina merki um vannæringu.“. Ólafur Darri heimsótti líka spítala. „Það var erfitt að sjá að- búnaðinn þar, hversu lítið er til af tækjabúnaði og hvað fólk hefur út litlu að spila. Allt er hreint og fínt en undir hreinu yfirborðinu sér maður gamlar vélar, nánast úr- eltan tækjakost og gamlar dýnur sem sjúklingarnir liggja á. En allir gera sitt besta og UNICEF styrkir spítala eins og þennan til að sinna allt frá fæðingarhjálp til meðferðar við vannæringu og malaríu.“ Ljúfsár upplifun í fátækrahverfinu Í Tamatave heimsótti Ólafur Darri líka félagsmiðstöð, sem rekin er með hjálp UNI- CEF. „Ég var frekar hissa þegar ég kom þar inn því hér á Íslandi erum við vön því að fé- lagsmiðstöðvar séu fyrir unglinga en þarna virtist vera fólk á öllum aldri, og þá var mér var sagt að aldursbilið væri fimm til þrjátíu og fimm ára. Þarna héngu bara allir saman, að spila á spil, syngja karaoke eða bara að hafa það notalegt. Húsið sjálft er ekki meira en tvö herbergi, hrein og fín með góðum græjum og allir eru þar velkomnir, sama hvort þeir hafa leiðst á vafasama braut í lífinu eða búa einfaldlega við mikla fátækt. Markmiðið er að veita börnum og ungu fólki stuðning og von, von um að láta drauma sína fyrir framtíðina rætast. Þetta fannst mér alveg stórkostlegt að upplifa.“ Framhald a næstu opnu Dagur rauða nefsins er í dag, föstudaginn 12. september. Hann nær hámarki í metnaðarfullum skemmti- og söfnunarþætti á RÚV í kvöld. Útsendingin hefst strax að loknum kvöldfréttum en þar kemur fram fjöldinn allur af lista- mönnum; tónlistarfólki, leikurum og uppistöndurum, sem allir gefa vinnu sína í þágu góðs málefnis. Tugir sjálfboðaliða verða einnig í símaveri Vodafone og taka við símtölum frá fólki sem kýs að leggja málefninu lið. Í þættinum verður sýnt frá starfi UNICEF, meðal annars á Madagaskar, þar sem Ólafur Darri kynnti sér starfið á vettvangi og sá með eigin augum hvernig gjafir heimsforeldra skipta sköpum. viðtal 33 Helgin 12.-14. september 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.