Fréttatíminn - 12.09.2014, Blaðsíða 60
60 heilsa Helgin 12.-14. september 2014
Laugardagstilboð
– á völdum vörum til ræstinga og þrifa
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Verslun RV er opin virka daga kl. 8 – 18 og laugardaga kl. 10 – 16
16BLSBÆKLINGUR
STÚTFULLUR AF ÖLLUM HEITUSTU TÖLVU-GRÆJUNUM
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
Ástríðubakari sendir frá sér bók
H afdís Priscilla Magnúsdóttir er ástr íðubakari sem birtir reglulega girnilegar
uppskriftir á vefnum disukokur.
is. Allar eiga uppskriftirnar það
sameiginlegt að vera án sykurs
og hveit is . Einn meðl imur
fjölskyldunnar er með sykursýki
og því ákvað hún fyrir ári að taka
allan sykur úr mataræðinu og efla í
leiðinni heilsu fjölskyldunnar.
Núna fyrir jólin sendir Hafdís
frá sér uppskriftabók með 100
ljúffengum uppskriftum að bakstri,
eftirréttum og nammi. „Allar
uppskriftirnar verða án sykurs,
hveitis og glútens. Mér finnst
svo frábært að geta látið eftir
sér að borða súkkulaðiköku og
kókosbollur án sykurs og hlakka til
að koma þessu á bók.“
Við
baksturinn
not a r Ha fd ís
ið u l e g a vö r u r
f rá Funksjonel l .
„Sukrin sykurinn
er náttúrulegur,
kaloríulaus og
hefur ekki áhrif
á blóðsykur.
Síðast en ekki
síst hefur hann
ekki slæm áhrif
á tannheilsu og
sem móður finnst
mér það skipta miklu
máli. Börnin mega fá sér
eins mikinn kanilsykur og
þau vilja,“ segir hún.
Í staðinn fyrir hveiti
notar Hafdís y f irleit t
möndlumjöl eða kókoshveiti,
ýmist saman eða sitt í hvoru
lagi. „Eftir að ég hætti að neyta
sykurs og hveitis lærði ég
að baka upp á nýtt og
hef verið að prófa mig
áfram sem er mjög
skemmtilegt.“
Vö r u r n a r f r á
Funksjonell
henta einnig vel
fyrir fólk sem er á
lágkolvetnamataræði og
með glúten óþol. Hafdís
segir mixin einnig mjög
sniðug, sérstaklega
þegar ekki gefst tími
til að baka frá grunni.
„Þá er mjög sniðugt
að eiga brauð- og
kökumix og töfra
f ra m veit inga r á
örskotsstundu.“
Unnið í samvinnu við
Sanitas heildverslun
Á vefnum disukokur.is birtir Hafdís Priscilla Magnúsdóttir
girnilegar uppskriftir að góðgæti sem hvorki inniheldur
hveiti né sykur. Fyrir ári breytti fjölskyldan um
mataræði og síðan hefur Hafdís prófað sig áfram
í bakstrinum með góðum árangri.
Pizzusnúðar
18-20 stk.
1 pakki fínt brauðmix frá Funksjonell
Mat
2 dl hrein jógúrt
1 msk hvítlaukssalt
sykurlaus pizzasósa (til dæmis frá
Hunt’s)
pepperoni
skinka
rifinn ostur
Setjið
brauðmixið
ásamt
hreinni jógúrt og
hvítlaukssalti í skál og blandið vel
saman.
Látið standa í 5 mínútur.
Setjið deigið á smjörpappír og svo
annan smjörpappír yfir og rúllið út í
ferhyrning. Ef deigið er of blautt er gott
að strá smá kókoshveiti eða sesammjöli
á smjörpappírinn fyrst. Takið efri
pappírinn af.
Setjið pizzasósu, skinkubita og rifinn
ost á deigið og dreifið vel út.
Rúllið deiginu upp og notið pappírinn
til að hjálpa ykkur. Skerið lengjuna í um
1 cm rúllu og setjið í muffinsform eða
beint á bökunarpappír.
Bakið við 175 gráður í um 12 til 15
mínútur.
Sítrónu- og
bláberjakaka
1 pakki kökumix frá Funksjonell
1 dl brætt smjör
4 egg
2 dl jógúrt
1 msk vanillu
extract
Safi og börkur úr
einni sítrónu
200 gr bláber
Setjið kökumix, egg, smjör, vanillu
extract og jógúrt í skál og hrærið vel
saman.
Notið rifjárn til að rífa börkinn af
sítrónunni og passið að fara ekki í hvíta
hlutann því hann er rammur. Skerið
sítrónuna í tvennt og kreistið safann í
deigið. Bætið bláberjum við og hrærið
vel í. Smyrjið springform með bræddu
smjöri eða olíu og setjið deigið í. Bakið
við 175 gráður í 30 mínútur.
Ef þið viljið mjólkurlausa útgáfu, skiptið
út smjöri fyrir olíu og jógúrt fyrir vatn.
Vanillu ostakaka
fyrir tvo
Botn:
50 gr kökumix frá Funksjonell
1 tsk sukrin gold
5 gr sykurlaust síróp eða brætt smjör
2 msk vatn
Setjið allt í skál og blandið vel saman.
Setjið í tvö lítil form eða glös og setjið
í kæli.
Fylling
2 matarlímsblöð
100 gr jógúrt
50 gr rjómaostur
1 msk sukrin melis
1/2 vanillustöng
2 msk vatn
Setjið matarlímsblöð í skál með vatni og
látið liggja í 5 mínútur.
Jógúrt, rjómaosti og sukrin melis þeytt
vel saman í skál. Skafið vanillufræ úr
stönginni og bætið ofan í skálina og
þeytið vel.
Setjið
matarlímsblöð
í pott ásamt 2
msk af vatni
og hitið á
miðlungshita þar
til uppleyst.
Bætið varlega við fyllinguna á meðan
þeytt er.
Skiptið á milli í formin eða glösin og
látið kólna í klukkutíma í kæli.
Skreytið með berjum.
Hafdís Priscilla
Magnúsdóttir
Funksjonell býður upp á breiða línu af náttúrulegum og heilsusamlegum vörum í matargerð
og bakstur.