Fréttatíminn - 12.09.2014, Blaðsíða 90
A ð meðaltali létust 22 kon-ur á ári hér á landi af völd-um krabbameina í kyn- og æxlunarfærum á tímabilinu
2008 til 2012, samkvæmt tölum frá
Krabbameinsskrá. Árin 2005 til 2009
voru að meðaltali 67 konur sem greind-
ust með fyrrgreind krabbamein árlega.
Á sunnudag verður Globathon hlaupið
haldið til að vekja fólk til vitundar um
krabbamein í kyn- og æxlunarfærum
kvenna og mikilvægi þess að fara reglu-
lega í leghálsskoðun. Krabbameinsfé-
lagið mælir með því að konur á aldrin-
um 23 til 65 ára mæti í skoðun á þriggja
ára fresti.
Að sögn Kristjáns Oddssonar, yfir-
læknis Leitarstöðvar Krabbameins-
félagsins, hefur þátttaka í skimun fyrir
leghálskrabbameini farið minnkandi
hér á landi á undanförnum árum. „Það
er okkur mikið áhyggjuefni. Þegar best
lét tóku 84 prósent kvenna þátt í skim-
un en nú er hlutfallið komið niður í 65
prósent. Samkvæmt alþjóðlegum við-
miðunum ætti þátttakan ekki að fara
undir 80 prósent,“ segir hann. Kristján
telur skýringarnar vera nokkrar, meðal
annars sú að krabbameinið sé sjaldgæf-
ara en áður og því hafi árveknin minnk-
að og skoðun ekki eins ofarlega á for-
gagnslista kvenna og áður.
Vitað er að HPV-veira er ástæða leg-
hálskrabbameins í nær 100 prósent til-
vika. Hún smitast á milli fólks við kyn-
mök. Kristján segir almenna þekkingu
um HPV-veiruna litla. „Ef konur vissu
þetta almennt myndu þær mæta betur í
skoðun því það er eina aðferðin sem við
höfum í dag til að vita hvort HPV-veir-
an veldur konum skaða.“ Nýlega gerði
Krabbameinsfélagið könnun í samvinnu
við Maskínu sem sýndi að vel innan við
helmingur þeirra kvenna sem þátt tóku
vissu að HPV-veiran orsakar legháls-
krabbamein en meðalaldur við grein-
ingu þess er 45 ár. Þá er talið að HPV-
veiran orsaki um 50 prósent tilfella
krabbameins í skapabörmum og um 50
prósent krabbameins í leggöngum.
Tuttugu og tvö andlát
árlega vegna krabba-
meina í kynfærum
Mun færri konur mæta í skimun fyrir leghálskrabbameini í dag
en áður og segir yfirlæknir Leitarstöðvar Krabbameinsfélags
Íslands það mikið áhyggjuefni. HPV-veira er nær undantekn-
ingarlaust ástæða leghálskrabbameins en almenn þekking um
hana er lítil.
Þegar best
lét tóku
84 prósent
kvenna þátt
í skimun en
nú er hlut-
fallið komið
niður í 65
prósent.
Meðalaldur við greiningu leghálskrabbameins er 45 ár. Talið er að HPV-veira orsaki
nær 100 prósent tilvika leghálskrabbameins og um helming tilfella krabbameins í
skapabörmum og í leggöngum. Ljósmynd/NordicPhoto/GettyImages
Líf styrktarfélag og Krabbameinsfélagið halda Globeathon hlaup næstkomandi
sunnudag, klukkan 14 og hefst hlaupið við Háskólann í Reykjavík. Í boði verður
að hlaupa 5 og 10 km og að ganga 5 km. Tilgangur hlaupsins er að vekja fólk til
vitundar um krabbamein í kyn- og æxlunarfærum kvenna. Globeathon hlaupið var
haldið í fyrsta sinn í fyrra á 130 stöðum um heiminn. Upphafsmaður hlaupsins er
læknir í Washington, Larry Maxwell, sem nýtti tengslanet sitt til að hefja vitundar-
vakningu um allan heim. Að sögn Þórunnar Hildu Jónasdóttur, framkvæmdastjóra
Lífs, tóku um 150 manns þátt í hlaupinu á Íslandi í fyrra en búist er við fleirum í
ár. „Með hlaupinu viljum við ýta við ungum konum að fara reglulega í skoðun. Því
fyrr sem krabbamein greinist, því fyrr er hægt að grípa inn í,“ segir hún. Í hlaupinu
verða glæsileg verðlaun í boði og margir útdráttarvinningar.
Með Globathon hlaupinu er ætlunin að vekja fólk til vitundar um krabbamein í kyn-
og æxlunarfærum kvenna.
12. september 2014— 6 —
Gum Original White munnskol og tannkrem hreinsa
burt bletti og óhreinindi og veita tönnunum vernd.
Guðný Ævarsdóttir tannfræðingur hefur notað Gum
vörurnar í mörg ár á tannlæknastofunni Brostu. „Ég
mæli heilshugar með Gum vörunum. Vörulínan er breið
og góð og í henni má finna allt frá tann-
burstum og Soft Picks tannstönglum
til tannhvíttunarefna. Sérfræðingar
Gum eru fljótir að tileinka sér nýj-
ungar og mæta þörfum fólks sem er
virkilega gott í þessum geira,“ segir
Guðný.
Gum Original White munnskol og
tannkrem hreinsa burt bletti og
óhreinindi og tennurnar fá sinn
upprunalega lit. Báðar vörurn-
ar innihalda flúor og má nota
að staðaldri. Þær hafa ekki
skaðleg áhrif á almenna
tannheilsu og innihalda
ekki bleikiefni sem geta
skaðað náttúrulega vörn
tannanna. „Hvíttunar-
línan, Original White,
er mjög góð því hún
virkar vel en fólk
fær samt
sem
áður ekki tannkul. Slípimassinn er agnarsmár svo hann
rispar ekki upp glerunginn eins og oft vill verða þegar
notuð eru hvíttunartannkrem.“
Guðný segir það einnig kost að Original White línan
viðhaldi árangri eftir lýsingameðferð á tannlæknastofu.
„Soft Picks tannstönglarnir eru mitt uppáhald því þeir
komast vel á milli tannanna og innihalda engan vír og
eru ríkir af flúori. Frábærir einnota tannstönglar sem
virka eins og millitannburstar en þá er hægt að hafa í
veskinu eða heima fyrir framan sjónvarpið.“
Hvíttunarvörurnar innihalda sérstaka blöndu sem
Gum hefur einkaleyfi á og hreinsar betur en bleikiefni.
Vörurnar eru fáanlegar í flestum apótekum, í hillum
heilsuverslana, í Hagkaup og Fjarðarkaup.
Hvítari tennur með Gum Original White
Með Gum Original
White munnskoli og
tannkremi verða
tennurnar hvítari.
Vörurnar innihalda
flúor, veita vörn og
hreinsa burt bletti og
óhreinindi.
Soft Picks tannstönglarnir komast vel á minni tanna, innihalda flúor og engan vír.
Guðný Ævarsdóttir tannfræðingur
mælir með Gum vörunum.
UNNIð í saMVINNU VIð
icecare
OKKAR STYRKUR - YKKAR STYRKUR
Sjúkraþjálfun Styrkur - Höfðabakka 9 - sími: 587 7750
www.styrkurehf.is
Í heilsurækt Sjúkraþjálfunar Styrks er haustdagskráin að hefjast
í rúmgóðum og björtum húsakynnum að Höfðabakka 9
VEFJAGIGTARHÓPAR FYRIR KONUR
Sigrún og María sjúkraþjálfarar
kenna þessa leikfimi sem byggir á úthaldi, liðleika, styrk,
jafnvægi og slökun.
HJARTA- OG LUNGNAHÓPAR
Auður sjúkraþjálfari
sér um þjálfun þessa hóps ásamt blóðþrýstings, púls- og
mettunarmælingum, reglubundnum eftirliti og fræðslu.
DAGSKAMMTUR
Baldur, Einar Örn og Arnar Már
leiða 30 mínútna kröftuga og fjölbreytta stöðvaþjálfun fyrir
konur og karla í hádeginu.
HEILSUGRUNNUR
Erla og María sjúkraþjálfarar
bjóða upp á nýtt þjálfunarúrræði fyrir einstaklinga sem ekki
hafa fundið sér þjálfun við hæfi. Fræðsla og góð leiðsögn.
PILATES
Margrét pilateskennari
Frábærar 50 mínútna styrktaræfingar í hádeginu.
Æfingar sem þjálfa djúpvöðva líkamans.
Auður Hólmfríður Baldur MaríaSigrún Einar Örn ErlaArnar Már
FÆRNI- OG JAFNVÆGISHÓPUR
Hólmfríður sjúkraþjálfari
sér um þjálfun aldraðra með byrjandi færniskerðingar og
jafnvægisleysi.
TÆKJASALUR
mánaðarkort / árskort í vel útbúnum tækjasal
Einstaklingsmiðuð þjálfun ásamt reglulegum árangurs-
mælingum og eftirfylgni sjúkraþjálfara
JÓGA
Ásta jógakennari
kennir jóga sem eflir einbeitingu, bætir öndun og eykur styrk,
liðleika og jafnvægi líkamans. Byrjenda- og framhalds-
hópar, vefjagigtarjóga og krakkajóga.
Kynnið ykkur fjölbreytta þjálfunarmöguleika og faglega leiðsögn á www.styrkurehf.is
Ásta Margrét