Fréttatíminn - 12.09.2014, Blaðsíða 8
3 m/s - raforkuframleiðsla hefst 15 m/s 28 m/s 34 m/s - raforkuframleiðsla stöðvastKjöraðstæður til raforkuvinnslu
Takk fyrir komuna!
Það blés hressilega á gesti Landsvirkjunar við vindmyllurnar á Hafinu í sumar
þegar þúsundir kynntu sér orkuvinnslu úr nýjum orkugjafa.
Í sumar, líkt og fyrri ár, opnaði Landsvirkjun aflstöðvar sínar fyrir gestum sem
vildu kynna sér starfsemi fyrirtækisins og raforkuvinnslu úr endurnýjanlegum
orkugjöfum. Yfir 15 þúsund manns sóttu fyrirtækið heim, í Kröflu, Búrfellsstöð,
að vindmyllunum á Hafinu og Kárahnjúkastíflu.
Yfir helmingur gestanna voru erlendir ferðamenn sem sýndu orkuvinnslu úr
vatni, jarðvarma og vindi mikinn áhuga, enda Ísland eitt af fáum löndum í
heiminum sem vinna nánast allt sitt rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum.
Við þökkum öllum þeim sem lögðu leið sína til okkar kærlega fyrir komuna.
S mábókasafnið er byggt sam-kvæmt hugmyndafræði Little Free Library. Þetta er annað
safnið sem rís hér á landi en það eina
sem stendur núna,“ segir Brynhildur
Heiðar- og Ómarsdóttir bókmennta-
fræðingur sem lét reisa smábókasafn
við garðinn hjá sér á Sogavegi en ein-
kunnarorð hugmyndafræðinnar eru
„Taktu bók – gefðu bók!“ Bókasafnið
ber heitið Skakkasafn „því staurinn
sem heldur því uppi er örlítið skakk-
ur,“ segir hún.
Fyrsta smábókasafnið sem reis á Ís-
landi var Litla bókhlaðan sem Larissa
Kyzer, bandarískur bókmenntafræð-
ingur búsettur hér á landi, setti upp
í Hljómskálagarðinum í Reykjavík á
síðasta ári í samstarfi við Reykjavík
bókmenntaborg UNESCO en það var
tekið niður nýverið vegna skemmda
á hurð. Larissa fékk hugmyndina frá
Bandaríkjunum en fyrsta smábóka-
safnið af þessum toga setti maður
í Wisconsin upp í garðinum sínum
árið 2009 til minningar um móður
sína, grunnskólakennara sem hafði
mikla ást á bókum. Síðan hafa um 15
þúsund smábókasöfn í anda „Little
Free Library“ risið víða um heim og
á vefsíðunni Littlefreelibrary.com er
bæði hægt að nálgast teikningar til
að byggja sitt eigið smábókasafn og
hreinlega panta efnivið.
Brynhildur hreifst mjög af fram-
taki Larissu og ákvað að reisa nýtt
smábókasafn. „Hugmyndin á bak
við þetta er að auka aðgengi að lestri
með því að dreifa bókum, en líka að
auka á hverfisanda og leyfa fólki að sjá
hvað nágrannar þeirra eru að lesa,“
segir Brynhildur. „Þetta snýst líka um
endurnýtingu þannig að fólk sé ekki
að henda bókum og það er sérstaklega
hvatt til þess að notaður sé endurunn-
inn efniviður í húsin,“ segir hún.
Skakkasafn á Sogavegi er byggt úr
endurunnum pallettum og krossviði,
og hurðin unnin úr gömlum IKEA-
ramma. „Ég hef ekki eytt meira en um
15 þúsund krónum í þetta. Það eina
sem ég þurfti að kaupa var staurinn
sem safnið stendur á og einangrunar-
plastið. Ég kann ekki sjálf að smíða
og sneri því upp á höndina á systur
minni og handlögnum nágrönnum
sem byggðu þetta á meðan ég horfði
á,“ segir hún.
Brynhildur setti sig í samband við
Larissu áður en þau hófust handa og
gaf Larissa eftirstöðvar úr sínu safni
til Skakkasafns. „Ég reyndar þurfti
aðeins að vinsa úr. Þarna var mikið
af túristabókum og ítalskar þýðingar
af Arnaldi Indriðasyni sem ég býst
ekki við að íbúar í póstnúmeri 108 hafi
mikinn áhuga á,“ segir hún og bindur
vonir við að safnið nái að standa af
sér vetrarhörkurnar. „Skakkasafn er
annars bara komið upp og opið allan
sólarhringinn.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Bækur BókaSafnið er Byggt eftir hugmyndfræði „LittLe free LiBrary“
Smábókasafn risið á Sogavegi
Smábókasafnið
Skakkasafn er
risið á Sogaveg-
inum. Bókasafns-
fræðingurinn
Brynhildur Heiðar-
og Ómarsdóttir á
veg og vanda af
byggingu safnsins
sem í raun er
eins konar skipti-
bókamarkaður
sem er opinn
allan sólarhring-
inn. Safnið er
ætlað fyrir íbúa
í hverfinu og eru
einkunnarorðin
„Taktu bók – gefðu
bók.“
Skakkasafn
stendur á mótum
Sogavegar 109
og 111. Það líkist
helst gömlum
torfkofa og er
gervigras á
þakinu.
Ljósmynd/Face
book/108 Reykjavík
8 fréttir Helgin 12.-14. september 2014