Fréttatíminn - 12.09.2014, Side 10
ÞYKKSKORIÐ BEIKON
Þykkt og bragðmikið fyrir þá
sem vilja kröftugt beikon.
Gæðavara úr völdu svínafille,
matarmiklar og ljúffengar sneiðar.
HEFUR ÞÚ STERKAR BEIKONTILFINNINGAR?
Prófaðu þykkskorna beikonið frá SS.
Þykkt og
bragðmikið
Gott á
grillið eða
pönnuna
Sérvalið
svínafille
100% íslenskt kjöt
PI
PA
R\
TB
W
A
–
S
ÍA
É g ákvað bara að slá til og nú sitjum við, aðstoðarkonan mín, í bílskúrnum mínum í Hafnarfirði að vinna námsefni fyrir Arabíu-
markað. Það er eiginlega svolítið óraunverulegt
að segja frá þessu,“ segir dr. Rósa Gunnarsdóttir,
sérfræðingur í nýsköpunarmennt. Hún hefur um
árabil verið frumkvöðull á sviði nýsköpunar- og
frumkvöðlamenntunar á Íslandi. Rósa er enn-
fremur hönnuður námskeiðsins „Litli uppfinn-
ingaskólinn“ sem haldið er í Nýsköpunarstofu
Klifsins í Garðabæ, og vinnur nú að uppbyggingu
nýsköpunar- og frumkvöðlamenntunar í Sádi-Ar-
abíu en sú vinna byggir á þeirri aðferðafræði sem
hún hefur þróað hér á landi.
„Það býr enginn til unga uppfinningamenn. Við
einfaldlega styðjum við þá skapandi virkni sem
er í ungum huga,“ segir hún. „Börn koma með
afskaplega hreinar og tærar skapandi lausnir sem
við erum oft búin að loka á sem fullorðnir. Við
verðum svo samdauna samfélaginu að við neitum
ómeðvitað að gera hlutina á nýjan og betri hátt.
Það er gríðarlega gefandi að vinna með ungum
hugvitsmönnum og hvetja þá áfram í að breyta
því manngerða umhverfi sem við búum í. Nýsköp-
unarmennt gengur út á að leyfa fólki að trúa að
maðurinn sé skapari síns veruleika en ekki bara
þiggjandi. Það er mjög einfalt að leyfa krökkum
að fljúga eins og þeir eru fiðraðir í staðinn fyrir að
klippa af þeim flugfjaðrirnar,“ segir Rósa.
Sagði upp góðu starfi
„Litli uppfinningaskólinn“ á upphaf sitt að rekja
ríflega tvo áratugi aftur í tímann þegar Gísli Þor-
steinsson kennari og Bragi Einarsson hugvits-
maður ráku Sumarskóla ungra hugvitsmanna
í Ketilsstaðaskóla í Vík í Mýrdal. Rósa kom inn
í það verkefni þegar hún lauk námi frá Kenn-
araháskóla Íslands árið 1993. Hún starfaði einnig
við Foldaskóla í Reykjavík og þróaði þar náms-
efni og námsgreinina nýsköpunarmennt ásamt
samstarfsfólki og var skólinn sama ár útnefndur
„móðurskóli fyrir nýsköpun í Reykjavík.“ Í raun er
„Litli uppfinningaskólinn“ endurvakning á stutt-
um námskeiðum sem haldin voru í Foldaskóla og
Ketilsskóla, og þau þróast áfram.
Rósa er með doktorsgráðu í nýsköpunarmennt
frá Háskólanum í Leeds í Englandi. „Þegar ég
var þar að kynna verkefnið mitt voru þar menn
frá Sádi-Arabíu að hlusta. Þeir voru svo hrifnir að
þeir báðu mig um að halda stutt námskeið fyrir
þá í Leeds til að sýna þeim þetta í verki. Árið
2011 fékk ég síðan tölvupóst frá þessum sömu
Þróar nýsköpunarmenntun í
Sádi-Arabíu úr bílskúr í Hafnarfirði
Dr. Rósa Gunn-
arsdóttir sagði
á vordögum
upp sem
framkvæmda-
stjóri hjá Háskóla
Reykjavíkur til að
helga sig þróun
nýsköpunar- og
frumkvöðla-
menntunar,
bæði á Íslandi og
Sádi-Arabíu. Hún
segir ómetanlegt
að vinna með
ungum hug-
vitsmönnum
sem eru með
hreinar og
skapandi lausnir
sem þeir full-
orðnu eru síður
móttækilegir
fyrir.
Dr. Rósa þróaði nám-
skeiðið „Litli uppfinn-
ingaskólinn“ sem kennt
er í Klifinu í Garðabæ en
þar fá börn á aldrinum
9-12 ára tækifæri til að
þróa hugmyndir sínar.
Ljósmyndir/Ágústa Guð-
mundsdóttir
LitLi
uppfinningaskóLinn
Námskeið sem dr. Rósa Gunnars-
dóttir hannaði og stýrir í Klifinu í
Garðabæ. Hún hélt 2 námskeið í
sumar ásamt Þóru Óskarsdóttur.
Það þriðja hefst síðar í þessum mán-
uði. Námskeiðið er ætlað börnum á
aldrinum 9-12 ára þar sem leitað er
að þörfum í samfélaginu og fundnar
lausnir við þeim, búið til líkön og
frumgerðir. Meðal annars heimsækja
þau smiðjuna Fab Lab í Breiðholti
sem rekin er af Nýsköpunarmiðstöð
Íslands.
mönnum sem þá voru orðnir hátt settir innan
menntakerfisins þar í landi og vantaði kenn-
ara í nýsköpun- og frumkvöðlamennt. Þetta
verkefni hefur undið sífellt meira upp á sig og á
vordögum sagði ég upp sem framkvæmdastjóri
hjá Háskólanum í Reykjavík. Ég
er grunnskólakennari í grunninn
en hef kennt nýsköpunarmennt
á öllum skólastigum hér á landi.
Ég ákvað bara að slá til þegar mér
bauðst þetta tækifæri,“ segir Rósa.
Aðstoðarkona hennar í þessu verk-
efni er Þóra Óskarsdóttir sem vann
Nýsköpunarkeppni grunnskóla-
nema tvö ár í röð. Hún hefur unnið
til verðlauna í hönnunarkeppni á
vegum Reykjavíkurborgar og tekið
þátt í Gullegginu. Auk þess eru í
bílskúrnum hjá Rósu þrír forritarar
og einn útlitshönnuður og starfa
þau undir merkjum fyrirtækis
Rósu – RG menntaráðgjöf.
Ný leið til að rista brauð
Hún segist ekki geta gefið upp
hvers konar hugmyndir krakk-
arnir hafa komið með á námskeið-
unum hér á landi því hún sé bundin
þagnareiði og sumar hugmynd-
irnar einkaleyfishæfar. „Oft snýst
þetta um að búa til einhvers konar
róbot. Það er hluti af námskeiðinu
að börnin vinna kynningu á verk-
efninu sínu, við tökum það upp
og krakkarnir fara með upptök-
una til foreldra sinna,“ segir hún.
Rósa segist þó geta tekið dæmi frá
Bretlandi sem hún fékk leyfi til
að segja frá en Rósa hefur haldið
námskeið víða um heim. „Þar var
mjög lesblind stúlka sem upplifði
sig sem annars flokks námsmann.
Hún fann upp vél sem skar brauð
og ristaði eftir ákveðinni for-
skrift. Hún var mjög hrifin af því
að borða „toasted soldiers“ sem er
ristað brauð sem síðan er skorið
í ræmur og því oft dýft í linsoðið
egg. Stúlkan hreinlega tók í sundur
brauðristina heima hjá sér og
kynnti sér hvern hlut. Hún aflaði
sér upplýsinga um leiðni málma og
var á endanum heiðruð fyrir tækni-
legt innsæi. Hún var síðan hyllt í
skólanum sem einstaklingur sem getur. Í dag
er hún útskrifaður verkfræðingur. Það sem
skiptir máli er að gefa sér tíma til að hlusta á
barnið og vinna með því, ekki fyrir það eða yfir
það. Fyrir mér er það sem gefur lífinu lit að
vinna með þessu unga skapandi fólki, og líta á
það sem jafningja.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Dr. Rósa Gunnarsdóttir Hún hefur um árabil verið frumkvöðull
á sviði nýsköpunar- og frumkvöðlamenntunar á Íslandi. Hún
vinnur nú að námsefni fyrir Arabíumarkað í bílskúrnum sínum,
ásamt aðstoðarfólki. Ljósmnd/Hari
10 fréttaviðtal Helgin 12.-14. september 2014