Fréttatíminn - 12.09.2014, Qupperneq 20
Fáðu þetta heyrnartæki
lánað í 7 daga
- án skuldbindinga
Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu
og fáðu Alta til prufu í vikutíma
Sími 568 6880
Prófaðu ALTA frá Oticon
Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Þjónusta á landsbyggðinni | Sími 568 6880
| www.heyrnartækni.is |
Góð heyrn er okkur öllum mikilvæg. ALTA eru ný
hágæða heyrnartæki frá Oticon sem gera þér kleift
að heyra skýrt og áreynslulaust í öllum aðstæðum.
ALTA heyrnartækin eru alveg sjálfvirk og hægt er
að fá þau í mörgum útfærslum.
„Ég væri til í að fara til Tyrk-
lands. Þeir eru að fá til sín marga
af bestu leikmönnum heims í dag
og það er einhver stemning. Svo
er Istanbúl ein skemmtilegasta
borg sem ég hef heimsótt, svo það
væri gaman. Eins er ég með tilboð
frá Belgíu sem virkar spennandi
en það þarf margt að ganga upp í
þessu áður en maður ákveður eitt-
hvað. Ég hef líka fengið nokkur til-
boð frá Spáni, sem er kannski ekki
eins spennandi. Ég vil berjast um
titla, ég hef ekki gert það lengi og
maður finnur að það er ekki sjálf-
gefið. Þangað til ég tek ákvörðun
nýt ég þess að vera með fjölskyld-
unni. Ég er mikill fjölskyldumaður,“
segir Jón sem er í sambúð með Lilju
Björk Guðmundsdóttur lögfræðingi
og eiga þau tvö börn, þau Guðmund
Nóel 3 ára og Stefaníu Björk sem
varð 1 árs í sumar.
Jón verður 32 ára síðar í mán-
uðinum og gerir sér grein fyrir því
að hann á aðeins nokkur ár eftir
sem atvinnukörfuknattleiksmaður.
„Ég get hæglega spilað í u.þ.b.
4 ár til viðbótar, á háum standard.
Ég held samt að hausinn sé orðinn
þreyttari en líkaminn. Persónulega
langar mig ekki að spila svona
lengi, mig langar að fara að koma
heim og gera eitthvað annað.“
Þið eruð genatískt heppnir þið
bræður, eigið báðir auðvelt með að
halda ykkur í toppstandi, þrátt fyrir
aldur.
„Já, ég hugsa það, en vissulega
hefur maður séð vel um líkamann,
sérstaklega undanfarin ár og með
því getur maður lengt ferilinn um
nokkur ár,“ segir Jón sem er, eins
og flestir vita, bróðir Ólafs Stefáns-
sonar handboltamanns.
„Maður finnur mun á líkam-
anum, það er ekki lengur hægt að
háma í sig McDonalds og fá sér
bjór kvöldið fyrir æfingu. Maður
gat það þegar maður var yngri og
fór létt með það. Ég er samt ekki
alveg jafn ferskur og Óli sem spilaði
til fertugs og hafði gaman af því.
Ég er á öðrum stað. Ég er byrjaður
að fá heimþrá og langar að fara að
gera eitthvað annað. Konan mín
vill líka fara að vinna í sínu fagi, og
við viljum að börnin fari í íslenska
skóla.“
Kjöt- og fiskverslun
Jón Arnór er komin með annan
fótinn heim til Íslands og er farinn
að einbeita sér að rekstri kjöt- og
fiskverslunar í miðborginni.
„Ég hefði aldrei veðjað á að ég
mundi opna fisk og kjötverslun
fyrir nokkrum árum. Þetta er hug-
mynd frá Pavel Ermolinski, vini
mínum og félaga í landsliðinu.
Hann fékk mig með í þetta. Við
fundum húsnæði sem hentaði og
við fengum strákana á SNAPS til
þess að vinna í þessu með okkur,
þar sem við höfum aldrei unnið
í matariðnaði áður. Þá fór hug-
myndavinnan í gang og það er svo
rosalega gaman. Gaman að fá hug-
myndir og gera eitthvað í því. Ég
hef aldrei verið týpan sem gerir
eitthvað spontant, en þetta var
spennandi og eg ákvað að stökkva
á þetta,“ segir Jón Arnór.
Kjöt og fiskverslunin Strætið
mun opna í lok september í gömlu
kjallarahúsnæði við Bergstaða-
stræti 14, sem eitt sinn hýsti Bern-
höftsbakarí.
„Ég hef lengi verið á Spáni og
Ítalíu og þekki vel matarmenningu
þessara landa og Pavel var líka
lengi á Spáni og Frakklandi. Okkur
langar að færa þessa stemningu
hingað heim. Miðbærinn er orðinn
svo skemmtilegur í Reykjavík
og sérstaklega í kringum Skóla-
vörðustíginn og Þingholtin. Þetta
vantaði og við ætlum að gera þetta
almennilega.“
Ætlar þú þá að standa vaktina við
búðarborðið?
„Á sumrin, alveg klárlega, ég
verð mættur og er mjög spenntur.
Við viljum kynnast fólkinu og
hverfinu og höfum verið að því.
Það eru alltaf einhverjir að kíkja
við þegar við höfum verið í fram-
kvæmdunum. Þetta verður hverf-
isbúð, með hverfisbúðaranda. Ég
hlakka mjög mikið til.“
„Mér finnst eins og ég sé að
staðna í boltanum, kannski er það
vegna þess að ég hef þurft meiri
áskorun undanfarin ár. Við erum
búin að eignast tvö börn með stuttu
millibili þannig að maður vill eyða
meiri tíma með þeim. Mig langar
að klára stúdentinn, á mjög lítið
eftir og í rauninni fáránlegt að vera
ekki búinn að því, svo hugurinn er
svona aðeins farinn að leita annað.“
Heldurðu að EM á næsta ári
verði þínir síðustu leikir með ís-
lenska landsliðinu?
„Það gæti verið, en það er ekkert
ákveðið. Ég hef velt því fyrir mér og
þarf ekkert að fara í felur með það.
Það væri fullkominn endir með
landsliðinu, ég væri samt alveg til í
að taka þátt á einhvern annan hátt.“
Ertu að gæla við þjálfun? „Nei,
en hef mikinn áhuga á viðskipta-
hliðinni á íþróttinni og áhuga á því
að hjálpa hæfileikaríkum leikmönn-
um að komast út. Það getur verið
erfitt og þá er gott að geta leitað
til einhverra sem vit hafa á því. Ég
er með mikil tengsl og í rauninni
meiri tengsl en ég geri mér sjálfur
grein fyrir.“
Elsta systirin límið í hópnum
Jón Arnór kemur úr stórum systk-
inahópi og segir þau öll samheldin
en ólík.
Ásamt Óla eru það Eggert sem
spilaði lengi knattspyrnu með
Fram, en er flugmaður hjá Ice-
landair í dag, Stefanía sem er tenn-
isleikari og Íris barnasálfræðingur
sem er elst. „Hún er svona stóra
systirin sem gnæfir yfir okkur hin
og hefur alltaf verið til staðar, gull
af manneskju,“ segir Jón. „Hún er
límið í hópnum, finnst mér, en við
erum öll mjög náin. Þó við hittumst
ekkert endilega oft öll saman, þá er
ástin til staðar.“
Þú hefur ekkert hent þér eins
djúpt í heimspekina eins og bróðir
þinn?
„Nei, ég hef alveg lesið hana,
en ekki kafað í hana eins og hann.
Ég get alveg skilið áhugann en er
ekki mikið að velta fyrir mér ósýni-
legum hlutum og slíku. Það er
hægt að grafa djúpt, en fyrir mér er
alltaf hægt að fara dýpra og dýpra,
en maður kemst aldrei alveg upp,“
segir Jón Arnór kíminn. „Þetta er
endalaus pæling en engin niður-
staða. Það er kannski það sem
heillar mig ekki.
Ég veit ekki hvort við erum líkir,
ég átta mig ekki á því. Örugglega,
við erum nú bræður, en allir samt
mjög ólíkir.“
„Ég er búinn að vera úti meira og
minna síðan ég var 15 ára, þegar
ég fór til Bandaríkjanna í skóla, og
hef verið einn meira og minna allt
mitt líf. Ég kynntist Lilju í kringum
2009 og síðan hef ég viljað rækta
samband mitt við vini og fjölskyldu
meira. Það er mikill skóli að vera
einn erlendis í svona langan tíma.
Maður lærði það snemma að standa
á eigin fótum og þetta er harður
heimur. Mig hefur vantað fjölskyld-
una oft á tíðum, það er ekkert gam-
an að upplifa alla hluti einn, erfitt
að geta ekki deilt upplifuninni með
einhverjum nema í gegnum ein-
hvern síma sem ég er ekki hrifinn
af. Ég er mjög mikill Íslendingur
í mér. Það kom til dæmis aldrei til
greina að eignast erlenda konu, ís-
lenska blóðið er mjög dómínerandi
í mér,“ segir Jón Arnór.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
„Við höfum bara ekkert verið góðir í körfubolta,” segir Jón Arnór Stefánsson
sem hér sést í leik með Lottomatica Roma á Ítalíu. Jón Arnór lék með Rómverj-
unum í eitt tímabil.
2000-2002 ........................................... KR
2002-2003 ................................. TBB Trier
2003-2004 ................... Dallas Mavericks
2004-2005 ....Dynamo Saint Petersburg
2005-2006 ....................... Carpisa Napoli
2006-2007 ................. Parmesa Valencia
2007-2008 ................ Lottomatica Roma
2008-2009 ........................................... KR
2009-2011 .............................CB Granada
2011-2014 ............................ CAI Zaragoza
FErlill Jón Arnórs
20 viðtal Helgin 12.-14. september 2014