Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.09.2014, Page 25

Fréttatíminn - 12.09.2014, Page 25
Vegna flutninganna verða skrifstofur og vefkerfi lokuð frá kl. 14 föstudaginn 12. september en stofnunin opnar aftur í nýjum húsakynnum kl. 9 að morgni þriðjudagsins 16. september. Afgreiðslutími alla virka daga 9–16 UNDIR EINU ÞAKI Samgöngustofa flytur starfsemi sína í Ármúla 2 Samgöngustofa - Ármúla 2 - 108 Reykjavík - Sími 480 6000 - samgongustofa.is Mánudaginn 15. september mun öll starfsemi Samgöngustofu á höfuðborgarsvæðinu flytjast í eitt húsnæði í Ármúla 2, á horni Háaleitisbrautar og Ármúla. Breytingunni fylgir aukið hagræði, samræmdur afgreiðslutími og bætt þjónusta við viðskiptavini stofnunarinnar. Samgöngustofa er stjórnsýslustofnun samgöngumála og varð til við samruna Umferðarstofu, Flugmálastjórnar og stjórnsýsluhluta Siglingastofnunar og Vegagerðarinnar. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 1 4 -1 9 3 5 áskorun og kostað fórnir og hefði ekki verið hægt nema vegna þess að mannauður leikhússins er ein- stakur og hér eru allir alltaf tilbúnir til að gera betur en vel og það þó aðstæður séu erfiðar. Ég held að okkur hafi tekist að höndla þetta með ágætum og mér er til efs að leikhúsgestir hafi fundið nokk- urn mun á framboði eða metnaði í starfi. Aðsókn í leikhúsið hefur líka verið að aukast jafnt og þétt og þar með hefur aukið sjálfsaflafé vegið að nokkru upp á móti niðurskurð- inum, en þær tekjur eru stopular og það má ekki mikið út af bregða til að það fari að halla á.“ Hvað með listrænar áskoranir? „Þjóðleikhúsið hefur ákveðnum skyldum að gegna gagnvart inn- lendri leikritun og nýsköpun fyrir svið. Það er beinlínis áskilið í leik- listarlögum og orðað með þeim hætti að leikhúsinu beri að „kosta kapps“ um að efla innlenda leik- ritun. Þessi áhersla hefur verið undirliggjandi alveg frá upphafi. Vægi innlendrar leikritunar hefur þó lengst af verið lítið miðað við er- lend verk,“ segir Tinna. „Ég mótaði þá stefnu þegar ég tók við að helmingur sýndra verka á hverju leikári skyldi vera innlendur og það hefur gengið eftir. Á þessu ári tökum við þetta enn lengra og bjóðum upp á íslenskan vetur í Þjóð- leikhúsinu þar sem allar nýjar frum- sýningar eru á íslenskum verkum. Með því erum við ekki aðeins að sinna ríkri menningarskyldu heldur líka að efna til spennandi samtals við þjóðina. Við eigum ríkulega bók- menntahefð, það er þar sem fjársjóð- urinn liggur, þar er okkar klassík, en við höfum vissulega líka eignast nokkra höfunda sem hafa helgað sig skrifum fyrir leikhús. Hvorutveggja ber að efla og rækta eftir bestu getu og það er það sem liggur verkefna- vali leikársins til grundvallar.“ Hlutur kvenna mikilvægur Tinna hefur lagt mikla áherslu á að efla hlut kvenna í leikhúsinu, bæði sem leikskáld og leikstjórar. Í vetur eru 8 konur listrænir stjórnendur leikverka í Þjóðleikhúsinu. „Ég hef lagt mig fram um að efla hlut kvenna, en það verður ekki gert nema við veðjum á konur í auknum mæli. Ef við lítum yfir þetta leikár, þá er hlutur kvenna ríflegur í þessu tilliti. „Síðast en ekki síst hef ég lagt ríka áherslu á að efla barnastarf í leikhúsinu. Á mínum starfstíma höfum við opnað tvö leiksvið sér- staklega ætluð börnum og barna- starfi. Annarsvegar Kúluna sem er á neðri hæðinni í gamla íþrótta- húsinu við Lindargötu 7, en á efri hæðinni er Kassinn. Þar sýnum við styttri sýningar sem eru tilvaldar sem fyrsta leikhúsreynslan. Síðasta vetur opnaði svo Brúðuloftið í sam- starfi við Bernd Ogrodnik brúðu- meistara, uppi í rjáfri í aðalbygging- unni sjálfri. Á árinu bjóðum við í allt upp á samtals 10 sýningar sérstak- lega ætlaðar börnum. Í því felst rík viðleitni til að efla og glæða áhuga barna á leikhúsi og í raun opna þennan heim fyrir þeim. Ef börn kynnst leikhúsi snemma og njóta þess sem þau sjá, eru miklar líkur á að þau vilji koma aftur og verði handgengin leikhúsinu til framtíðar og það færir þeim heim auðlegð og nærir hugmyndaheiminn.“ Hvernig sérðu fyrir þér fram- tíð Þjóðleikhússins? „Þjóðleikhúsið er merkilegt hús. Það var fyrsta og stærsta húsið sem þjóðin reisti til að hýsa lif- andi listastarfsemi. Baráttan fyr- ir byggingu þess varð á sinn hátt táknmynd fyrir baráttuna fyrir menningarlegu sjálfstæði í upp- hafi síðustu aldar. Með opnun þess hófst nýr kafli í menningarsögunni og síðan hefur Þjóðleikhúsið gegnt lykilhlutverki í menningu okkar. Það starf sem hér hefur verið unnið í gegnum tíðina er okkar sameigin- lega auðlegð, engu síður en húsið sjálft. Ég vona innilega að við sem þjóð berum gæfu til þess að standa vörð um Þjóðleikhúsið til framtíð- ar,“ segir Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Ég gat samt hugsað mér að gera ýmis- legt annað í lífinu. Ég vildi gera gagn, jafnvel verða læknir og var komin í líf- fræðinám. „Ég hef lagt mig fram um að efla hlut kvenna, en það verður ekki gert nema við veðjum á konur í auknum mæli. Ef við lítum yfir þetta leikár, þá er hlutur kvenna ríflegur í þessu tilliti. Ljósmynd/ Hari viðtal 25 Helgin 12.-14. september 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.